Síða 1 af 1

Land Rover Discovery 44 " update 29,10,13

Posted: 08.nóv 2010, 13:16
frá joisnaer
Jæja, nú verður þræðinum mínum breytt.

Image

Hér er jeppinn minn sem er
Land Rover Discovery 1 árgerð 1998.
Disel tdi300 2,5 4cyl
Beinskiptur.
og er hann breyttur fyrir 44" dick cebik gleðigúmmí.

Hann er á 800kg loftpúðum að aftan einsog er, er að spá í að breyta kanski.
Hásingar eru undan range rover. þær skarta 4:70 hlutföllum, sterkari öxlum og Maxi Drive vacuum lásum.
Búið er að færa afturhásingu aftar um 16 cm samkvæmt mínum bestu mælingum en er að gæla við að færa hásinguna aftar.
Svo er í honum, VHF talstöð, Gps pungur tengdur við tölvu. 2 stympla N1 dæla fyrir púðana.
2x IPF 2geilsa kastar að framan, Svo 4x vinnuljós á topp.

Núna þessa dagana stend ég í því að breyta hjólaskálum og ryðbæta bílinn að aftan sem var orðin mikil þörð fá.
Og ætla svo að smíða undir hann loftkút, aukatanka, og jafnvel færa hásingu aftar ef tími leyfir.
Reikna líka með að ég þurfi að láta að mála eða sprauta blessaðan bílinn eftir þessa framkvæmd.

Image
þessi mynd var tekin í þorrablótsferð austurlandsdeildar f4x4 árið 2012

Image
hér sést hvað hjólaskál verður færð langt aftur.

Image
hér er fullkláruð hjólaskál.

Re: Nýji Jeppinn, Land Rover Disco

Posted: 08.nóv 2010, 18:51
frá StebbiHö
Það er víst til siðs að óska mönnum til hamingju með svona, og ætli ég geri það ekki Jói minn, þvert á betri vitund, til hamingju! Greinilegt hvar þú elur manninn flesta daga, Norðurdalurinn hefur verið ansi öflugur bakhjarl dráttarvéla sem þessarar! Vonandi að hann reynist þér vel og flytji þig sem flestar ferðir á fjöll, kv Stefán

Re: Nýji Jeppinn, Land Rover Disco

Posted: 09.nóv 2010, 21:37
frá Nóri 2
flottur hjá þér jói

Re: Nýji Jeppinn, Land Rover Disco

Posted: 09.nóv 2010, 21:46
frá Sævar Örn
og hvað varð um dæjarann

Re: Nýji Jeppinn, Land Rover Disco

Posted: 11.nóv 2010, 19:53
frá joisnaer
Rockyinn er bara heima, er að fara að vinna í því að gera við gírkassamixið hjá mér. verður vonandi klár um áramótinn.

langar að taka einn jepparúnt á honum áður en ég fer að pæla í því að selja :D

Re: Nýji Jeppinn, Land Rover Disco

Posted: 13.des 2011, 23:47
frá gudjonarnarr
flottur hilux þarna í bakrunn

Re: Land Rover Discovery 38"í átt að 44" update 11.1.12

Posted: 11.jan 2012, 01:56
frá joisnaer
uppfærsla

Re: Land Rover Discovery 38"í átt að 44" update 11.1.12

Posted: 11.jan 2012, 21:10
frá Dúddi
Gleymdist ekki eitthvað að toga hásinguna aftar þegar púðarnir voru settir undir??

Re: Land Rover Discovery 38"í átt að 44" update 11.1.12

Posted: 12.jan 2012, 08:53
frá joisnaer
hásingin var færð um 2cm aftar, "loftpúðaskálarnar" voru færðar aftur um 2 cm sem gefur mér í heildina 15-16cm (mælt rúmlega) í hásingarfærslu frá orginal. setti aðrar sterkari og lengri(2cm) stífur að aftan, í staðin fyrir þessar sem voru undir sem voru vægast sagt lengdar með tannstönglum. Svo var bætt við ca 3cm lengri bita á A-stífu til að retta drifkúluna.

samkvæmt mínum upplýsingum á afturhásingin að vera komin jafn aftarlega og undir bílnum hjá villa í möðrudal.

Re: Land Rover Discovery 38"í átt að 44" update 11.1.12

Posted: 12.jan 2012, 15:30
frá Nóri 2
þetta verðru flott þegar að þetta verðuru búið!

Re: Land Rover Discovery 38"í átt að 44" update 11.1.12

Posted: 12.jan 2012, 20:22
frá andrib85
þetta eru virkilega flottir bílar á 44". hvað reiknaru með að hann vigti fullbreyttur?

Re: Land Rover Discovery 38"í átt að 44" update 11.1.12

Posted: 13.jan 2012, 10:36
frá joisnaer
ég bara hef ekki gert mér það í hugarlund, en hann verður vigtaður þegar þessi framkvæmd er búin

Re: Land Rover Discovery 38"í átt að 44" update 12.2.12

Posted: 12.feb 2012, 14:28
frá joisnaer
smá uppfærsla

Re: Land Rover Discovery 44 " update 12.2.12

Posted: 12.feb 2012, 23:36
frá joisnaer
kominn á 44" og sómar sig vel

Re: Land Rover Discovery 44 " update 29,10,13

Posted: 29.okt 2013, 23:43
frá joisnaer
uppfært 29 okt 2013