Síða 1 af 1

Skari! Litla barnið mitt.

Posted: 01.feb 2010, 10:32
frá EinarR
Einar heiti ég betur þekktur á netinu sem EinarR (nenni ekki að útskýra)
Mikill bílakall og í augnabikkinu kemst fátt annað að en súkkur. Enda frábærir bílar nú í kreppuni.
Ég á 2 Jeppa annar er Suzuki LJ10 sem er elsti Suzuki Jeppi sem hefur verið framleiddur. Einnig sá allra elsti hér heima.
Image
1971 árgerð ekinn aðeins 11.500 mílur, hann stendur en á Original dekkjunum!

Svo er það Hinn bílinn (Skari)
Suzuki Samurai 1989 árg. Ég kaupi þennan bíl og hef frá því ég fékk hann gert eftirfarandi.
Skipt um húdd, púst og það er kominn nýr bílstjórastóll. Málaði bílinn, útbjó mér brettakannta og skar úr fyrir 33" dekkjum sem hann stendur á. Búinn að taka kælikerfið alveg í gegn, ný dæla, kassi og lás. Liðhúsið h.m að framan fór í mauk hjá mér, þar skipti ég um Hjólalegur, Spindillegur og allar þær pakkdósir og pakkingar sem þarna eiga heima. Til að hafa hagstæðara hlutfall er ég með Millikassa úr 410. Annars ættu myndirnar að seiga allt sem seiga þarf.
ImageImage
ImageImage
Síðan er hægt að sjá hann á ferð hér http://www.youtube.com/watch?v=bj4yBJk2TYA

Sorry ef það eru stafsetningarvillur þetta er ekki slegið í stein svo endinlega leiðrétta bara.

Kv. Einar Sveinn

Re: Skari! Litla barnið mitt.

Posted: 01.feb 2010, 10:46
frá gislisveri
Flottur!
Hvernig fékk bíllinn nafnið Skari?

Re: Skari! Litla barnið mitt.

Posted: 01.feb 2010, 11:26
frá skari
nú það er svo flott nafn

Re: Skari! Litla barnið mitt.

Posted: 01.feb 2010, 15:10
frá Óskar - Einfari
Flottur LJ10 !!!

Re: Skari! Litla barnið mitt.

Posted: 01.feb 2010, 19:05
frá EinarR
Skari er með svalari teiknimyndafígúrum sem til eru. Hann er rauður og svartur eins og Hann var víst. bara nett nafn! :D

Re: Skari! Litla barnið mitt.

Posted: 04.feb 2010, 06:04
frá raudhaus
jaaaa skiptir tu um hjolalegur

Re: Skari! Litla barnið mitt.

Posted: 04.feb 2010, 10:33
frá EinarR
Með hjálp frá rauðhærðasta einstakling landsins
Image