Big Red's Smurfmobile


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Big Red's Smurfmobile

Postfrá Big Red » 25.nóv 2013, 20:32

*var verkefni hjá okkur fyrrverandi en þar sem vírinn í spilinu slitnaði þar á milli held ég einn og óstuttur áfram með þetta verkefni.

Langaði að gera betri þráð um bílinn þar sem ég mun uppfæra fyrsta póst hverju sinni og láta vita í commenti. Hinn er svolítið út og suður og vildi hafa þetta meira svona í tímaramma.

Þar sem mér hefur alltaf langað að ferðast um fjöll og firnindi og búin að eiga misgóða og skemmtilega bíla var ákveðið að finna eitthvað hrikalega ódýrt (í kaupum, rekstri og varahlutakostnaði). Helst orðinn fornbíll eða að detta í fornbíl. Sem ég gæti svo með tíð og tíma sniðið að minni hentisemi. Það er líka skemmtilegra að geta sagt að ég hafi staðið í þessu öllu sjálfur, þó enn sem komið er það kanski ekki ýkja merkilegt miðað við margt annað hér inni.

Eftir mikla leit og mikin hausahristing yfir verðlagningu á gömlum diselryðhrúgum eins og Patrol, Hilux og 4runner, að þá rakst ég á þennan. (Átti að vera disel) Eftir að hafa grennslast fyrir um þessa bíla á alnetinu og líka séð að ekki var nú mikið um þessa breytta hér heima, var ákveðið að skella sér á hann. Því það er alltaf gaman að vera öðruvísi.

30.11.'12 Sóttur í Hólmavík, eftir að hafa staðið þar síðan fyrrihluta árs 2009. Þar þjónaði hann sem bryggjubíll en lítið sem ekkert ryð var í bílnum. Framstykki alveg heilt sem og gólfið og hornin aftan á húsinu. Pallurinn var líka merkilega heill og allar bodyfestingar líka.
Númerin voru tekin út í RVK og svo hoppað uppí strætó og af stað til Hólmavíkur. Lagt var af stað í þetta verkefni samt vegna þess hann átti að vera dísel sem reyndist ekki þegar í Hólminn var komið. En hann rauk í gang og allt virtist vera í lagi svo keyrt var að stað í rvk. Hann fór með 35lítra þessa leið á original dekkjum og 85km meðalhraða. Komst svo að því að hann er Ameríkutýpa með öllum "lúxus", topplúgu og rafmagn í rúðum, stærri drifum og fleira

Strax eftir að komið var í RVK var farið í að skipta út öllum vökvum á bílnum nema það gleymdist að skoða kúplingsvökvann. Sprakk svo neðri þrællinn í gær 13.12.'12 þegar átti að fara að sækja varahlutabílinn. Kom í ljós að vökvinn var orðin svo gamall og ónýtur að hann var orðinn að svartri leðju. Svo allt var rifið úr og hreinsað, skipt um gúmmí og þéttingar. AB varahlutir áttu til gúmmísett í þetta merkilegt nokk og kostaði rétt um 3000 krónur. Í umboði var hægt að panta það fyrir rétt um 15þúsund krónur.

14.12.'12 er búið að keyra bílinn í tvær vikur og skoðað var ástand á öllu. Farið var yfir allar olíur á mótor, kössum, drifum og allir vökvar í lagi. Brennir ekki olíu og er bara með sæmilega eyðslu miðað við gamlan V6 bíl.

18.12.'12 Síðan bíllinn var sóttur þá er búið að þurfa að skipta um kveikjulok, hamar, kertaþræði og lagfæra kúplinguna (þrælanna). Fór svo hleðslan að haga sér leiðinlega í gær. Alternatorinn var tekinn úr og skoðuð kolin og fl. Setti hann í aftur þar sem hann heldur við og bílinn ekki mikið notaður og ekki peningar til fyrir viðgerð á honum á þessum tíma. Einnig var pústinu reddað en það var orðið frekar dapurt. Svo var ákveðið að keyra bílinn í tvær vikur í viðbót og sjá hvort eitthvað fleira gefur sig. Ef ekki þá bara í skoðun og vona það besta og svo í framhaldi vinna í áttina að 36".
Reyndar var ljósatakkinn með leiðindastæla og hann kostaði nýr úr umboði 34þúsund (Skýring fyrir þessu verði var víst sú að hann væri svo gamall og búinn að liggja lengi hjá þeim uppí hillu!). Gamli var rifinn úr og hreinsaður upp, reynt að laga snerturnar og virkaði þannig í viku en byrjaði svo aftur.

30.12.'12 fékk partabíl (King Cab 1987) frá akranesi og aðal ástæða sem sóst var eftir honum var vegna bremsudælanna, ljósatakkans, manual lokunum, handbremsubörkunum og tanknum.
Ekki var hann fallegur greyið. Orðinn svolítið þreyttur og bjóst ekki við að geta nýtt mikið úr honum.
Image
fékk þessa fínu heysátu með
Image
Enn þegar verið var farið að rýna undir allt ryðið og drulluna uppgötvuðust svo að segja gersemar. Polyurithan fóðringar í öllu og poly samsláttarpúðar.
Image

Hér eru nokkrar myndir:

Þegar sóttur. Bryggjubílinn góði. Fylgdu honum ýmis gömul veiðafæri og sjómennskutengt ónýtt dót.
Image
Image
Image
En hann var voða kózý að innan
Image

9.1.'13
Varð mér útum felgur og 33" dekk í skiptum fyrir túpusjónvarp. Felgurnar reyndust illa farnar og dekkin eins og svissneskir ostar.
Image
sandblásnar og málaðar
Image
Henti svissnesku ostunum því ég fékk 33" nánast gefins og aðeins skorið úr fyrir aftan frammdekk til að hægt væri að beygja að framan og fjaðra um leið. Svona var ákveðið að láta hann vera meðan beðið var eftir að finna það sem þyrfti fyrir 36" (kantar dekk og felgur.)
Image

Til að fá fjármagn í meiri aðgerðir var húsið selt af honum norður á Dalvík.
Þá uppgötvaðist leiðindaleki í opnanlegu afturrúðunni, þar sem það var heil rúða í partabílnum ákvað ég að setja hana bara í.
Gamla afturrúðan með opnanlega faginu.
Image
Fannst þá svolítið ryð í fölsunum þannig hreinsaði upp og grunnuð.
Image
Grunnað og nýja rúðan komin í
Image
gamla rúðan
Image
Það var bunað á þetta allt svo með brunaslöngu og engin leki með neinum rúðum nema framrúðu.

18.1.'12 Fór með bílinn í skoðun og sett var útá óþétt púst, demparagúmmí, bremsulagnir og breidd kanta. Átti eftir að setja gúmmirenninga á þá. (En endaði á að fá 5 16" Terrano felgur, 2 splunkunýjar og 3 notaðar. Með þessum felgum passaði 33" undir original kantanna. Seldi þá fínu felgurnar og dekkin til að geta fjármagnað meiri dútlerí í bílnum.)
Mér var líka vinsamlega bent á að það þyrfti að skipta um frammrúðu.
Þar sem það var nánast splunkuný frammrúða í partabílnum var hún rifin úr og sett í bílinn. Hreinsuðum upp ryðið sem byrjað var að myndast í fölsum.

22.2.'13 Tók hann í gegn að innan þreif allt hátt og lágt. Bar eitthvað efni á allt plastið inní honum til að lífga við innréttinguna. Orðin þurr en sem betur fer ekki byrjuð að springa. Leit út og ilmaði eins og hann var bara að koma frá verksmiðju. (allavega að innan)

2.2.'13 Einhverstaðar hér í millitíðinni byrjaði hann að eyða öllu sem var á hann sett og haga sér leiðinlega, varð hálfkraftlaus. Skipt var um kerti aftur og smíðaði "nýtt" 2" púst og notast var við einn kút og litlu öftustu túpuna úr patrol. Í leiðinni var pústkynjaranum skipt út og aðrir skynjarar hreinsaðir upp. Fór hann þá að haga sér eðlilega aftur.

7.2.'13 Nú eru komið í hann ALLT nýtt í bremsurnar. Var allt nýtt og ónotað í partabílnum. Frammdælurnar gerðar upp samt aftur með nýjum gúmmíum og keyptar nýjar dælur að aftan frá Stillingu. Lagðar voru nýjar bremsulagnir í hann líka.

16.2.'13 Hér fékk ég í skiptibraski Patrolhræ. Sem er með handónýt body og grind. Er innréttingarlaus en allt kram virðist vera í fínu standi og einhvertíma mun þetta fara í bílinn. Svona þegar ég verð ríkur og eignast bílskúr ;)

19.2.'13 Alternatorinn var rifinn úr og farið með hann í PG þjónustuna. Þar buðust þeir til að taka hann uppí 150amp alternator uppgerðan og borgaði nánast sama á milli og hefði kostað að gera gamla upp. Settar voru nýjar reimar í hann líka.

11.3.'13 Setti CB stöð í hann, svaka fína Midland stöð. Tók startarann úr og skipti um kolin í honum.

4.4.'13 Hérna er hann kominn með fulla skoðun á 33" dekkjunum og farið var í stuttar jeppaferðir, einu sinni inní Þórsmörk.

16.4.'13 Ákvað snemma að smíða sjálfur pallgrind á hann, sem myndi geyma loftnetin og kastara. 4 kastara framm og 2 aftur. Kostaði hún undir 5þús krónum tilbúin. Beygði 2.5" ryðfrítt pústefni eftir miklar pælingar og úthugsanir. Allt soðið saman og smíðaði á hana eyru fyrir loftnetin. Boraði með 2.5" dósabor í 3mm járnplötu 4x. tók svo "útskornu" hringina og stækkaði miðjugatið og sauð ró á hana. Því næst stakk ég þessum plötum 3cm inní hvern rörabotn og sauð fast með rónna fyrir innan. boraði 4 göt í pallinn og þarsem grindinn settist niður og stakk rústfríum boltum í gegn og þar með var grindin skrúfuð niður og föst á pallinum.
Image
Image
Image
Image
Hér er grindin máluð og fín
Image

18.4.'13
Fékk 35" dekk frekar slitin gefins og setti hana á 8.5" breiðar felgur og fittaði hana undir bílinn. Gat fjaðrað í sundur að endingu og beygt fulla beygju. Þannig ekki ætti að vera mikið mál að koma 36" undir á góðum felgum. Var hann svona framm undir sumarið og þá sett undir hann aftur Terrano felgurnar með 33" dekkjum sem mun bara vera sumagangurinn.
Image
Image
Image

18.6.'13
Fékk original aircondælu og setti hana í, en það á eftir að klára frágang á henni svo hún verði fullfrísk loftdæla..

15.8.'13
Vann svo í bílnum um sumarið. Farið í að ryðhreinsa og mála. Pallurinn var tekinn og ryðhreinsaður sem mest mátti, á eftir að taka hann í gegn að innan. Ekki er búið að ákveða hvort verður sett í hann svona gúmmíkvoðu frá Arctic truck. Eða bara ryðhreinsað, vinnuvélalakkað og svo makað koppafeiti yfir allt saman. Þar sem það er plastskúffa í pallinum hvort eðer. En í ljós kom að frambrettin voru ónýt.
Image
Ekkert hægt að gera til að bjarga þeim, hefði þurft að skera þau fyrir ofan miðlínu til að ná öllu ryði burt, svo þeim var hent og farið í að leita að öðrum.
Allar rúður (já líka topplúgan) voru teknar úr og allt ryð hreinsað burt (reyndar óþarfi með frammrúðu).
Það á eftir að ryðhreinsa milli palls og húss, það verður gert þegar body verður hækkað um 2". Allir þéttilistar voru teknir burt og öll föls ryðhreinsuð og máluð. Þetta var allt málað með bláu vinnuvélalakki með gljástigi 90 frá Hörpu ;) Kom þetta líka bara ágætlega út. Allt auka á bílnum verður hvítt, pallgrind, speglar, húnar, kantar og svo framvegis. Það á eftir að taka hurðarnar í gegn sem og ristina fyrir neðan framrúðuna. Og náttúrluega frambretti þegar þau myndu finnast.

Verst er að það gleymdist alveg að taka myndir af ryðhreinsuninni og sparslvinnunni. Kom líka í ljós að bíllinn hefur einhvertíma tjónast á vinstri hlið og var búið að skera burðar/árekstrarbitan úr hurðinni. Húddið var líka leiðinlega dældað og líklega krakkar búnir að hoppa og skoppa á því. Fékk hurð og húdd af 1996 bíl sem var alveg óryðgað og ódældað dót.

Nýja húddið sem er óbeyglað og óryðgað og er aðeins öðruvísi look á því.
Image
Nýja húddið komið á.
Image
Hérna var enn verið að vinna í að mála fölsin
Image
Hér er eftir að búið var að raða saman aftur og mála kantanna hvíta og setja grindina á pallinn.
Image

1.10.'13 Fann eftir ábendingu frá spjallmeðlimi þessi bretti í vöku. Eru svo að segja ryðlaus og komst ég að ástæðunni þegar ég var að skrúfa þau af. Einhvertíma hefur einhver tekið þessi bretti líklegast af og makað þykku lagi af koppafeiti innan í þau. Það eru 3 ryðbólur á þeim að utanverðu en það er allt og sumt fyrir utan náttúrulega gatið fyrir loftnetið. En þvi verður hvort eðer lokað alveg.
Image
Image

1.11.'13 Var hálfpartinn búinn að gefast uppá að finna 36" undir hann bara vegna verðs á þeim að þá ætlaði ég ekkert að pæla meir í því í smátíma. En ég fékk dekk í hendurnar sem ég vorum beðin um að selja en gátum samið um að fá í vinnuskiptum. Svo nú er þetta allt á góðri leið aftur. Þó svo það verði ekki klárað að mála fyrr en næsta sumar.

16.11.'13 Þá er 36" komin undir með góðri hjálp frá heimasætunni
Image
Stendur orðið í öll hjól
Image
hér sést hvernig þetta fittar nokkurnvegin orðið í hjólskálina
Bílstjórmegin:
Image
Farþegamegin:
Image
Það þarf ekki að skera mikið úr að aftan.
Fékk í skiptum 36" kanta af 1982 Hilux (held þeir komi frekar af 1986 útaf laginu á þeim) virðast þeir ganga upp að aftan án neinna bellibragða. Í fljótu bragði virðist ekki mikið þurfa að gera til að fitta þá að framan líka.

25.11.'13 En svona stendur hann í dag og ég bíð bara eftir að geta orðið mér útum hækkun á body og verslað nýju demparanna að framan. Þá er nánast ekkert eftir nema fíneseringar. Setja brettin á og fitta kanta. Vonandi klárað að tengja loftdæluna líka.
A öllu jafna ætti ég loks að geta farið út að leika á honum í jan-feb.
Svo næsta sumar verður aukatankurinn fittaður undir, klárað að ryðhreinsa og mála. Örugglega eitthvað fleira sem á eftir að skríða uppá smíðaborðið.
Fékk allt lakk, sparsl og þess háttar gefins nema gerðum ein mistök, keypti tilboðsmálningarrúllu í BYKO sem voru stór mistök því hún tættist með í lakkið. Svo það þarf að slípa yfir og fara eina umferð aftur.
Þetta kemur allt hægt og rólega. Enda má þetta ekki kosta neitt nema vinnu.

27.11.'13 Tók allt úr tengt framljósunum. Sandblés allt heila klabbið og málaði. Sandblés einnig ljósin úr partabílnum því það var farið að sjást á þeim en þau eru ekki samlokur eins og voru í bílnum, heldur hægt að skipta um perurnar í þeim. Sem er stór kostur.
Versta er að engar myndir voru teknar af því þegar dóti var rifið úr. En hér eru myndir eins og þetta er núna.
Image
Image
Image
Image

11.01.'14
Skrúfaði undir hann sumarganginn þar sem 36" breyting er á smá bið. Setti svo á hann brettin sem ég fékk af Pathfindernum á hann og pössuðu þau bara svaka vel. Þakka aggibeip hérna kærlega fyrir aðstoðina. Einnig erum ég búinn að setja á hann svokallað facelift held ég að það sé kallað. Margfalt betri lýsing sem ég fékk með þeim framkvæmdum :D Tók líka kastaranna og vatnsþétti þá, þar sem ég komst að því að þeir voru óþéttir nánast með öllu. Lak inn með vírunum og rammanum sjálfum. En það leiðinlega er að þegar ég var að skipta um frammendan að þá komst ég að nokkrum hlutum, vatnskassinn Var orðinn handónýtur, (fékk annan ársgamlan fríkeypis) og frammstykkið orðið mjög illa farið eftir seltuna og að húddið er brunnið eftir einhverja vitleysinga um áramótin svo ég þarf að gera það aftur.
Því miður var myndavélin með leiðindi og vildi ekki tengjast tölvunni til að færa á milli myndir og svo gufuðu þær upp. En hérna er smá sýnishorn reyni að taka betri við tækifæri.
Brekkan sem virðist hafa sjokkerað mótorinn, reyndar tekin á leiðinni niður aftur.
Image
Hér sést nýji frammendinn
Image
og hér sést skemmtilega litasamsetningin sem er á honum núna
Image

13.01.'14
Fékk forláta spilara, eitthvað ódýrt dót en virkar fínt og setti í hann ásamt BOSE hljóðkerfinu sem ég fékk úr einhverjum Pathfinder. Komnar skemmtilegar græjur í hann núna.

16.01.'14
Mótorinn virðist vera búinn að leggja inn uppsagnarbréf, eftir að hafa verið keyrður áfram af hörku upp vegaslóða sem var á kafi í snjó og góður halli á honum, virðist hafa ákveðið að vinna uppsagnafrestinn með hangandi hendi svo nú er leitað að staðgengli fyrir hann. Ég hef fengið frábær viðbrögð við þeim leitum og allnokkrir búnir að hafa samband með 2.7DT og bjóða mér. Svo nú er bara að bíða eftir fjármunum. Versta er að mótorinn sem ég var búinn að fá velyrði fyrir, verður ekki aðgengilegur fyrr en eftir 7mánuði í fyrsta lagi. Svo ég ætla að sjá hvort ég geti ekki skrapað saman eða skiptibraskað fyrir öðrum.

23.01.'14
Ákvað að leggja inn númerin því það borgar sig ekki að fara að standa í samningaviðræðum á gamla mótornum þar sem hann heimtar meiri fríðindi en munu borga sig, þar sem búið er að ákveða að finna staðgengil fyrir hann vegna langrar starfsævi og heilsufars og kominn tími á eftirlaun.

02.02.'14
Fór og sótti Terrano II 2.7TDi 1999 í voganna (fékk hann frá Hr.Cummins) og keyrði hann í reykjavík. Mótor virðist virka fínt eina sem virðist vera að svona í fljótu bragði, það þarf að skipta um startara og sakar ekki að kauppa nýtt í kúplingu.
Image
Image

08.12.´14
Næst á dagskrá er eftirfarandi listi:

[ ] - Taka pall af, ryðbæta almennilega og klára að mála.
[ ] - Rífa kram úr + Rafkerfi.
[ ] - Bretti og húdd af, ryðverja almennilega og klára að mála.
[ ] - Finna skóp á húdd og setja á vegna top mount coolers
[ ] - Hurðar af, klára að ryðverja og mála.
[ ] - Hús af grind, ryðbæta, ryðverja og klára að mála.
[ ] - Ryðbæta framstykki, ryðverja og mála.
[ ] - Sandblása grind, ryðverja og mála.
[ ] - Setja í hann original 80l bensíntank á móti hinum. Þá tekur hann samtals 160l af eldsneyti.
[ ] - Setja undir hann 3" OEM upphækkunarsett á fjöðrun.
[ ] - 2" hækkun á body
[ ] - Breikka og lengja 33" kantanna
[ ] - Koma 2.7 turbo fyrir úr terrano.
[ ] - Leggja og hreinsa upp rafkerfið úr Terrano í pikkann.
[ ] - Finna þæginlegri stóla í hann.
[ ] - Finna önnur frammbretti af pathfinder skera til og skeyta við pall. Bæði vegna ryðbætinga og útvíkkunar
[ ] - Setja allt saman og fara glaður að keyra um fjöll og firnindi.
Síðast breytt af Big Red þann 08.feb 2015, 02:33, breytt 10 sinnum samtals.


Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

HLIÐARVERKEFNIÐ

Postfrá Big Red » 27.nóv 2013, 01:47

Hérna er svo aðeins um hliðarverkefnið:

Partabíllinn var rifin og ákveðið að smíða kerru úr honum. Sem hægt væri að dröslast með hingað og þangað. Undir kerrunni er verið að gæla við að setja 2 original 80l tanka, auka 160litrar ekki amalegt það ef farið verður einhvertíma í stórferðir. Hér er bölvað því á hverjum degi að hafa ekki bílskúr til að dunda sér í. Hér er kerrusmíðin í nokkrum myndum ;)

(verðið að klikka á þær til að sjá þær full size :/ )
Image
Á þessari mynd sést sá hluti hússins sem skorin var af og verður bætt framan á beislið á kerrunni til að útbúa geymslukassa og þyngja hana aðeins að framan.
Image
hér sést hvernig skorið var í grindina og hún svo beygð saman. Þá voru "hornin" skorin burt af samskeytunum og allt látið fitta saman rosaflott.
Image
Image
eins og þið sjáið á grindinni að þá fengu bodypúðafestingarnar að halda sér því þær verða færðar aðeins framar. Ástæða þess er að partur hússins sem notaður verður áfram verður snúið við og fest við grind með gömlu festingunum og svo soðið við pallinn.
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Svo fengum við þetta fína pallhús sem var sett á kerruna svo hún er lokuð og fín.
Image
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 04.des 2013, 20:40

Vilja menn koma með hugmynd að diesel mótor í þenann gæðing. Erum mikið að spá í að reyna að verða okkur útum bara 2.7 turbo dieel úr terrano svona seinna meir.
En eru einhverjir fleiri úr nissan línunni eða erum við kanski of þröngsýn að einblína bara á nissan? Og nei cummins kemur ekki til greina skiptir engu hvort hann kemur úr bát, flugvél eða lest.....!

Erum bara svona í vangaveltum meðan við erum stopp. Svo þið megið endilega velta upp hugmyndum sem eru sniðugar og einfaldar í þennan bíl.

Svo er nú annars það að við erum vonandi búin að ná að gera skiptidíl við mann úti á 2x 2.4 z24i mótorum og gírkassa. (eru voðalega vinsælir þarna úti í þessa bíla. sérstaklega þessa lækkuðu) á svaka skemmtilegu notuðu performance dóti. Var í bíl í um 4 mánuði þá valt sá bíll og allt legið uppí hillu inní skúr í um 2 ár. Gamli er útí Florida núna og er hann búinn að samþykkja að taka þetta með inn í enda jan ef af verður (kemur sem hluti af búslóð). en meir um það seinna eitthvað leyndó verður að vera í þessu ;)
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Stebbi » 04.des 2013, 21:00

Hjónakornin wrote:Vilja menn koma með hugmynd að diesel mótor í þenann gæðing. Erum mikið að spá í að reyna að verða okkur útum bara 2.7 turbo dieel úr terrano svona seinna meir.
En eru einhverjir fleiri úr nissan línunni eða erum við kanski of þröngsýn að einblína bara á nissan? Og nei cummins kemur ekki til greina skiptir engu hvort hann kemur úr bát, flugvél eða lest.....!


Þessi hérna er pottþéttur í þennan bíl
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 14.des 2013, 00:15

Við erum aðeins að spá í ljósamálum því við getum fengið svona framenda:
Image
Ljóskerin í þessu eru stærri og sitja aðeins framar.
meðan gamli er svona:
Image
Ljóskerin eru minni og sitja innar.

Er þetta eitthvað sem vert er að spá í eða bara skiptir engu máli uppá lýsingu að gera? Persónulega finnst okkur núverandi framendi flottari svo við erum aðallega að spá í sem bestu lýsingu.
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159

User avatar

íbbi
Innlegg: 1452
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá íbbi » 14.des 2013, 00:56

ég á 2.7l slátur, blokk með innvolsi, og hedd sem á að vera sprunga í. getur fengið þetta á 20k
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 14.des 2013, 13:07

Takk fyrir það höfum það bakvið eyrað þegar losna fjármunir.

En er engin sem getur sagt okkur hvort það sé eitthvað vit í að upgrade-a í þessi ljós af Pathfinder.
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Heiðar Brodda
Innlegg: 623
Skráður: 08.mar 2010, 19:59
Fullt nafn: Heiðar Steinn Broddason
Bíltegund: 4Runner '87 38''
Staðsetning: Egilsstaðir

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Heiðar Brodda » 14.des 2013, 14:21

flottur þráður og skemmtilegt verkefni ef að ljósin passa og grillið þá er ekkert því til fyrirstöðu að setja þetta á svo er sennilega auðveldara að sinna nýrra grillið ef þú skemmir það svo og ljósin heldur en gamla stöffið kv HB


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 14.des 2013, 17:55

Takk fyrir hlý orð ;) en við ætlum bara að prófa þetta (Fengum einn sem er tilbúinn að koma og stilla upp með okkur annað kvöld í myrkrinu og reyna að sjá muninn) og jú þetta passar beint á milli frammstykið er alveg eins. Eini munurinn er bara ljósabotnarnir, ljósin og grill.
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 12.jan 2014, 21:33

Jæja smá update, nema við fáum myndavélina ekki til að virka saman við tölvuna.

Við lentum í leiðindaratviki um áramótin þar sem fólk vel undir glasi í heimsókn hér í götunni ákváðu að skjóta upp tertunum og gosblysunum sínum nánast beint fyrir framan innkeyrsluna hjá okkur svo við þurfum að taka húddið aftur af og slípa það upp og mála því það er bruni alveg niðurí járn :( Svo það besta er að enginn vill kannast við neitt.

En að öðru leiti þá erum við búin að setja brettin sem við fengum af Pathfindernum á hann og pössuðu þau bara svaka vel. Einnig erum við búin að setja á hann svokallað facelift höldum við að það sé kallað. Margfalt betri lýsing sem við fengum með þeim framkvæmdum :D Tókum líka kastaranna og vatnsþéttum þá, þar sem við komumst að því að þeir voru óþéttir nánast með öllu. Lak inn með vírunum og rammanum sjálfum.

Núna erum við að bíða eftir 3" Rancho suspension liftkitti sem við fengum í skiptum að utan fyrir 2x 2.4 Z mótora ásamt einni skiptingu. Eru eitthvað voða vinsælir úti í Nissan pikkanna sem eru lækkaðir niður. Kittið kemur til landsins vonandi í febrúar byrjun mars. Þangað til er 36" breyting á hold. Erum líka komin með velyrði fyrir 2.7turbo mótor úr Nissan (fáum alla driflínuna eins og hún leggur sig). Bíllinn sem þetta er í er víst að ryðga í sundur og ætla eigendurnir að keyra hann út skoðunartímabilið og henda svo. Eigum bara ekki peninga fyrir því, vonandi breytist það áður en þau vilja losna við dótið.

Svo bíðum við bara eftir sumri og góðu veðri svo hægt sé að klára að ryðhreinsa og mála. Gengur hægt en gengur þó :)

Reynum að pósta myndum af framendanum sem fyrst, er reyndar svolítið litafagur núna. Blár, vínrauður, rauður, svartur og hvítur.
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159

User avatar

sonur
Innlegg: 1090
Skráður: 17.okt 2010, 01:29
Fullt nafn: Elías Guðmundsson

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá sonur » 13.jan 2014, 18:30

Þetta er skemmtileg lesning, kemur mér tilþess að langa útí rokið hérna í vesturbænum og skrúfa í Þrumugný :D
Elli 6921247
Nissan terrible 1991 v6 38"


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 20.jan 2014, 17:59

Takk fyrir það og um að gera að drífa sig út. Bara hressandi. Já eða allavega í smástund ;)

En svona í annað. Það kom í ljós þegar við vorum að skipta um frammenda að vatnskassinn er bara búinn. Hann á ekki mikið eftir. Við vissum af einum sem var að spá í að rífa Pathfinderinn sinn og hringdum í hann. Kom þá í ljós að hann er bara að fara að henda bílnum og sagði okkur að koma bara og hirða úr honum eins og við vildum. Við fengum ÁRSgamlan vatnskassa og loftflæðiskynjara. Algjör höfðingi þar á ferð. Svo sagði hann að það væri nýlegur startari, alternator, kanski 2 ára gamalt og ýmist fleira. Alveg sama hvað við buðum hann vildi ekkert í staðinn, sagðist muna hvernig það var að vera ungur og reyna að smíða sinn fyrsta jeppa. Sagðist meira að segja ætla bíða með að henda honum í svona mánuð svo við hefðum tíma til að týna úr honum.

Svo erum við komin með original BOSE hljóðkerfi sem við fengum að hirða úr öðrum Pathfinder, einhver amerísk lúxustýpa. Svo við erum svona útum allt að dunda og gera fínt svo að segja, meðan við bíðum eftir liftkittinu frá henni stóru ameríku.

En ein spurning: hann sagði að spindlarnir væru nýir í honum (6mánaða), efri og neðri. Er sniðugt að taka þá úr og nýta aftur eða bara gleyma því?

Ástæðan fyir að hann gafst uppá bílnum er sú að að grindinn er nánast horfinn víst og allt í kringum skotthlerann. Hann ætlaði víst að reyna að tjasla honum saman i ár kanski 2 en keypti sér svo bara nýlegan 4runner (minnir mig) sem hann ætlar að nota í veiðitúranna.

Svo erum við að reyna að fá myndavélina til að vera samvinnuþýða en það er eitthvað að ganga illa. Þegar það gerist þá update-um við fyrsta póst með myndum :D
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju á fjöll-

Postfrá Big Red » 20.jan 2014, 18:08

VIð fórum í smá ferð á Strumpnum. Vorum viku í burtu í rólegheitum og skoðuðum okkur um í haukadalnum þingvöllum og fleiri stöðum þar í kring. Komumst að því eftir að við lentum í veseni með einhverja brekku á kafi í snjó að það vantar allt torq í þennan mótor og svo fljótlega eftir æfingarnar að komast upp þessa brekku að þá byrjar hann að haga sér frekar leiðinlega. Byrjaði að freta og sprengja og láta ófriðlega. Eins líka að eldsneytið byrjaði bara að streyma í gegnum mótorinn á 3földum krafti. Heldur illa hægagangnum dettur í sirka 400snúninga með tilheyrandi freti og leiðindum. Ekkert gat á lögnum og tiltölulega nýleg kerti, þræðir, kveikjulok, hamar og háspennukefli.

(má samt alveg fylgja sögunni að hann er að detta í 400þús km, held ég að við höfum reiknað rétt þar sem að hann telur í mílum.)

Svo nú erum við í fýlu og vitum ekki alveg hvað við eigum að gera.
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Gunnar00
Innlegg: 222
Skráður: 29.mar 2012, 19:14
Fullt nafn: Gunnar Bjarki Hjörleifsson
Bíltegund: Land Cruiser 70

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Gunnar00 » 20.jan 2014, 18:33

ég held að nú sé tími til að fara í mótorskipti 2.7 terrano kannski? annars flottur þráður, bíð spenntur eftir næstu uppfærslu.

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Startarinn » 20.jan 2014, 18:37

Það gæti ýmislegt verið að, miðað við þessa lýsingu myndi ég horfa á loftflæðinemann eða hitamælirinn fyrir vélarheilann. ef hann gefur merki um að vélin sé köld hrúgast bensínið inn. annars er erfitt að segja til um þetta miðað við einfalda lýsingu

Svo er alltaf spurning um hvort háspennukeflið sé farið þó það sé nýtt
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"

User avatar

StefánDal
Innlegg: 1224
Skráður: 23.mar 2010, 21:21
Fullt nafn: Stefán Hrannar Dal Björnsson
Bíltegund: Toyota Hilux

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá StefánDal » 20.jan 2014, 18:52

Henda þessum mótor úr og setja dísel í. Það getur tekið mikinn tíma og kostað mikin pening að leita af draugum í svona gömlum V6 vélum með milljón vacuum slöngum og skynjurum.

User avatar

aggibeip
Innlegg: 438
Skráður: 07.feb 2011, 17:49
Fullt nafn: Agnar Sæmundsson
Bíltegund: Toyota Hilux 38''
Staðsetning: Reykjavík

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá aggibeip » 20.jan 2014, 19:34

Ég myndi leggja honum bara og fá mér Hilux..

Nei djók :) Er ekki bara spurning um að skella dísel mótor í þetta ? :)
Toyota Hilux V6 - Seldur
Toyota Hilux 2.4TDi 33" - Seldur
Toyota Hilux 2.4TDi 38" - Í notkun


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 20.jan 2014, 19:42

Gunnar00 wrote:ég held að nú sé tími til að fara í mótorskipti 2.7 terrano kannski? annars flottur þráður, bíð spenntur eftir næstu uppfærslu.

Takk fyrir það. Það er líklegast eina vitið að fara í mótorskipti. Við sitjum hérna að ræða þetta. Taka bara númerin af aftur og halda áfram með þetta í rólegheitum.

Startarinn wrote:Það gæti ýmislegt verið að, miðað við þessa lýsingu myndi ég horfa á loftflæðinemann eða hitamælirinn fyrir vélarheilann. ef hann gefur merki um að vélin sé köld hrúgast bensínið inn. annars er erfitt að segja til um þetta miðað við einfalda lýsingu

Svo er alltaf spurning um hvort háspennukeflið sé farið þó það sé nýtt


Veistu hvar við finnum hann? (hitamælinn fyrir vélaheilann) Loftflæðineminn er líka nýlegur, skiptum um hann áður en við fórum. Vorum með gamla með og gamla háspennukeflið en hann lét alveg eins þó við prófuðum að skipta því út. Og virtist vera að fá neista á öllum kertum, en erfitt að segja með vissu þar sem það var leiðindar truntugangur í honum þegar við prófuðum að taka einn og einn kertaþráð' úr sambandi.

StefánDal wrote:Henda þessum mótor úr og setja dísel í. Það getur tekið mikinn tíma og kostað mikin pening að leita af draugum í svona gömlum V6 vélum með milljón vacuum slöngum og skynjurum.


Ætlum ekki í neinar framkvæmdir við þennan mótor, vissum að hann færi að gefa sig en vorum nú að vonast hann myndi endast lengur en raun varð. Erum bara að vonast til að þetta sé kanski eitthvað einfalt. Verður farið yfir allar vaccumlagnir á næstunni, ef það skilar engu þá bara að fara að safna fyrir 2.7DT. Hugsa við fáum alveg feikinóg afl og tog fyrir þennan bíl með svoleiðis mótor.

aggibeip wrote:Ég myndi leggja honum bara og fá mér Hilux..

Nei djók :) Er ekki bara spurning um að skella dísel mótor í þetta ? :)


hehe kallinn fór bar að hlægja. Var einmitt að tala um það á leiðinni til baka að ef allt færi fjandans til ætlaði hann að hringja í þig og biðja um rescue leiðangur. Biðja þig bara að sækja beislið og renna eftir okkur. En jú það verður líklegast eina vitið að finna dísel. Erum með einn í sigtinu en okkur vantar bara pening fyrir honum. Það ætti að lagast á næstunni vonandi.

Takk fyrir skjót svör alltaf gaman hvað hægt er að treysta á jeppapsjallið.
Þegar hann var látinn ganga hægagang þá rétt hélst hann í gangi og svo þegar tekið var af stað kom svartur mökkur afturúr honum en fyrir utan það reykti hann sama og ekkert. Alltí lagi með vatn og olíur. Geta spíssar valdið svona truntugangi ef þeir eru orðnir ónýtir? Ef svo gæti það þá líka útskýrt þessa bensíneyðslu? Það var komið taktfast tikkhljóð í hann. Eins og það fylgdi einum til tvem stimplum.
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159

User avatar

Hr.Cummins
Innlegg: 703
Skráður: 06.jan 2013, 18:03
Fullt nafn: Viktor Agnar Guðmundsson Falk
Bíltegund: Dodge Ram 1500
Hafa samband:

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Hr.Cummins » 20.jan 2014, 20:25

Ég á handa ykkur heilan Terrano til að rífa kramið úr, það er ónýtur í honum startarinn, brotnar í honum 2 rúður og frambrettið er ljótt en má auðveldlega draga hann í gang svo að hægt sé að heyra hann í gangi..
Dodge Ram 1500 Cummins Compound Turbo Diesel:
[BBD 60# Valvesprings, 4k GSK, Raptor 150GPH LP, Marine HG, Maxed Out P-Pump, No Plate, Tuned AFC, 20° Timing, Colt BIG STICK]
[Custom 4,5" Downpipe, 5" Pipe & Dual 6" Stacks]

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Startarinn » 21.jan 2014, 12:10

Miðað við Lýsingarnar fær hann ALLTOF mikið bensín, Mér þykir ólíklegt að þetta gerist allt í einu ef þetta er spíss, nema kannski að hann nái að rugla afghasskynjara, það má svosem prófa að kippa afgasskynjarnum úr sambandi og sjá hvort gangurinn skánar.

Miðað við að bíllinn fá alltof mikið bensín mætti taka spíssana úr og prófa þá með því að blása gegnum þá og sjá hvort þeir haldi, ef hann er fastur opinn ætti að blása í gegnum hann.

Varðandi staðsetningu hitaskynjarans þá get ég ekki svarað því, ég er að tala út frá minni reynslu af öðrum vélum með beinni innspítingu
T.d. á Volvo vélinni hjá mér er sitthvor skynjarinn fyrir mælaborð og tölvu.
Svo má líka athuga loftflæðiskynjara með því að taka hann úr sambandi, hann á að ganga hægagang þannig, þó gangurinn verði aldrei góður, en ætti þó að vera betri en þú lýsir

En það er óskaplega erfitt að segja til um þetta allt án þess að hafa bílinn hjá sér og skoða, þar fyrir utan er ég enginn sérfræðingur í innspítingum, ég tala útfrá minni takmörkuðu reynslu í viðhaldi og breytingum á mínum eigin bílum og minnar fjölskyldu
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 21.jan 2014, 15:29

Takk kærlega fyrir þessar upplýsingar. Þetta hjálpar okkur örugglega aðeins áfram með þetta. Annars verður hann bara tekinn af númerum aftur greyið og byrjað að undirbúa vélaskipti.
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 22.jan 2014, 00:18

Settum inn myndir af frammendanum og litasamsetningunni ;)
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 02.feb 2014, 19:51

Hvað skyldi þetta vera? :D
Image
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Big Red » 03.feb 2014, 12:08

Nú jæja, við héldum þetta yrði auðveld spurning fyrir jeppamenn hérna en eitthvað virðist þetta hafa flækst fyrir þeim. En þetta er 2.7 TDI situr eins og er í 1999 Terrano. Sem við fengum í hendurnar má nánast segja eingöngu vegna gjaflmildar og heiðursmannlegrar framkomu Hr. Cummins hér á spjallinu. Það má segja að nánast eina sem hann bað um fyrir bílinn væri að við yrðum dugleg að pósta inn myndum af processinu. Hann sendi okkur eftir að hann sá að vandræðaskapinn sem við lentum í núna síðast. Og bauð okkur að koma og sækja bílinn. Vona það sé í lagi að vitna í það sem hann sagði við kallinn í gær þegar hann fór að sækja bílinn: Ég veit alveg hvernig það er að vera með lítið milli handanna og geta ekki framkvæmd það sem manni langar. Ég er bara glaður að geta aðstoðað.

Kallinn sagði líka að hann hefði verið allra vilja gerður að aðstoða þegar hann sótti bílinn og hinn þæginlegasti að tala við. Þökkum við honum mikið og vel fyrir góðvildina.
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159

User avatar

Hr.Cummins
Innlegg: 703
Skráður: 06.jan 2013, 18:03
Fullt nafn: Viktor Agnar Guðmundsson Falk
Bíltegund: Dodge Ram 1500
Hafa samband:

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá Hr.Cummins » 03.feb 2014, 20:32

Ekkert mál, gaman að geta aðstoðað...

Ég vona að kramið komi ykkur að góðum notum, en eftir að bremsurnar fóru að stríða mér og startarinn gaf sig hefur bíllinn bara staðið og orðið fyrir skemmdum af völdum e'h krakkavarga :)

Hlakka til að sjá ykkur trilla um, ég bætti aðeins við olíumagnið og hann er allur hinn hressasti þessi 2.7 endilega verið dugleg að pósta, og enn duglegri að skrúfa og græja :)

User avatar

aggibeip
Innlegg: 438
Skráður: 07.feb 2011, 17:49
Fullt nafn: Agnar Sæmundsson
Bíltegund: Toyota Hilux 38''
Staðsetning: Reykjavík

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá aggibeip » 03.feb 2014, 20:35

Hr.Cummins wrote:Ekkert mál, gaman að geta aðstoðað...

Ég vona að kramið komi ykkur að góðum notum, en eftir að bremsurnar fóru að stríða mér og startarinn gaf sig hefur bíllinn bara staðið og orðið fyrir skemmdum af völdum e'h krakkavarga :)

Hlakka til að sjá ykkur trilla um, ég bætti aðeins við olíumagnið og hann er allur hinn hressasti þessi 2.7 endilega verið dugleg að pósta, og enn duglegri að skrúfa og græja :)


x2
Toyota Hilux V6 - Seldur
Toyota Hilux 2.4TDi 33" - Seldur
Toyota Hilux 2.4TDi 38" - Í notkun

User avatar

aggibeip
Innlegg: 438
Skráður: 07.feb 2011, 17:49
Fullt nafn: Agnar Sæmundsson
Bíltegund: Toyota Hilux 38''
Staðsetning: Reykjavík

Re: Nissan King cab 1991 -frá bryggju, á fjöll-

Postfrá aggibeip » 03.feb 2014, 20:36

Hr.Cummins wrote:
Hlakka til að sjá ykkur trilla um, ég bætti aðeins við olíumagnið og hann er allur hinn hressasti þessi 2.7 endilega verið dugleg að pósta, og enn duglegri að skrúfa og græja :)


x2
Toyota Hilux V6 - Seldur
Toyota Hilux 2.4TDi 33" - Seldur
Toyota Hilux 2.4TDi 38" - Í notkun


Höfundur þráðar
Big Red
Innlegg: 1100
Skráður: 07.mar 2012, 12:17
Fullt nafn: Ástþór Margrétarson
Bíltegund: Nissan King Cab 1991

Re: Big Red's Smurfmobile

Postfrá Big Red » 08.des 2014, 18:58

Jæja eftir langt stop og erfitt ár fer þetta verkefni vonandi nú að sýna lit aftur.

Nokkrir smáhlutir ókláraðir og eftir að greiða úr í persónulega lífinu. Svo verður hægt að fara að setja smáupphæðir í þetta aftur.

Næst á dagskrá er eftirfarandi listi:

[ ] - Taka pall af, ryðbæta almennilega og klára að mála.
[ ] - Rífa kram úr + Rafkerfi.
[ ] - Bretti og húdd af, ryðverja almennilega og klára að mála.
[ ] - Finna skóp á húdd og setja á vegna top mount coolers
[ ] - Hurðar af, klára að ryðverja og mála.
[ ] - Hús af grind, ryðbæta, ryðverja og klára að mála.
[ ] - Ryðbæta framstykki, ryðverja og mála.
[ ] - Sandblása grind, ryðverja og mála.
[ ] - Setja í hann original 80l bensíntank á móti hinum. Þá tekur hann samtals 160l af eldsneyti.
[ ] - Setja undir hann 3" OEM upphækkunarsett á fjöðrun.
[ ] - 2" hækkun á body
[ ] - Breikka og lengja 33" kantanna
[ ] - Koma 2.7 turbo fyrir úr terrano.
[ ] - Leggja og hreinsa upp rafkerfið úr Terrano í pikkann.
[ ] - Finna þæginlegri stóla í hann.
[ ] - Finn aönnur frammbretti af pathfinder skera til og skeyta við pall. Bæði vegna ryðbætinga og útvíkkunar
[ ] - Setja allt saman og fara glaður að keyra um fjöll og firnindi.

Á allt til í hann nema stóla og efni í ryðbætingar svo þetta er í raun mest bara vinnan, svo hann hangir enn innan "BUDGET" verkefnisrammann.

Hér eru 2 spurningar:

1.
Á undir hann hásingjar undan ZJ cherokee með öllu á stífum og gormum og öllu saman, með einhverjum tregðulæsingum. Er ekki búinn að lesa mér nægjanlega til um þetta allt til að vita hvað nákvæmlega er í þessu dóti. Er eitthvað vit í að skipta því út fyrir klafasystemið sem er undir honum?

2.
Þegar menn eru að búa til lo kassa, úr hverju eru menn að búa þá til? er það úr öðrum gírkössum eða er millikössum breytt ? Því ég á líka millikassa úr ZJ cherokee. Hef aldrei verið í kringum bíla með LO gír svo ég veit ekkert hvernig það dót virkar allt saman.

Er að spá hvort eitthvað vit sé í að skoða þessa hluti frekar í bílinn eða reyna að selja þá til að fjármagna annað í bílnum.


Síðast fært upp af Big Red þann 08.des 2014, 18:58.
Nissan King Cab 1991 3.0 V6 BSK 36" - Dútlið, alltaf verið að breyta og bæta
787-2159


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 24 gestir