mmc pajero/montero, húðstrýktur og illt í rassinum

User avatar

jongud
Innlegg: 2625
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: mmc pajero/montero, húðstrýktur og illt í rassinum

Postfrá jongud » 15.mar 2014, 10:24

Eitt sem má athuga vegna EGR vandamálsins hjá þér, það er að skoða svokallaðar "freeze frame" upplýsingar. Allir betri OBD2 lesarar geta náð því úr tölvunni.
Þetta eru upplýsingar um það hvað var að gerast í vélinni þegar "check engine" ljósið kviknaði. Það gæti gefið vísbendingar af hverju vélin er alltaf að kvarta yfir EGR ventlinum



User avatar

Höfundur þráðar
íbbi
Innlegg: 1453
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: mmc pajero/montero, húðstrýktur og illt í rassinum

Postfrá íbbi » 16.mar 2014, 01:04

planið er að setja galaxytab þarna. þetta er xls bíll þannig að hann er upprunalega bara með klukku þarna.


varðandi EGR þá fékk ég ábendingu um að hvarfinn gæti kveikt EGR ljósið. hvarfinn hjá mér er í steik, þótt hann sé að vísu ekki stíflaður, en ég ætla rufa að skipta þeim út fyrir uversal hvarfa og sjá hvort ljósið fari.

varðandi ganginn í honum er ég farinn að horfa á spíssa. ég heyrði af bíl sem var með svipaða stæla og spíssarnir á honum voru fullir af drullu, það var einmitt búið að fara alveg hringinn í að skipta út hlutum í þeim bíl líka
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.

User avatar

Höfundur þráðar
íbbi
Innlegg: 1453
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: mmc pajero/montero, húðstrýktur og illt í rassinum

Postfrá íbbi » 21.mar 2014, 19:59

alltaf eitthvað að gerast. skipti um stuðara og afturljós í dag

Image

Image
Image
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.


gudnimagni
Innlegg: 35
Skráður: 16.nóv 2011, 23:17
Fullt nafn: Guðni Magni Kristjánsson

Re: mmc pajero/montero, húðstrýktur og illt í rassinum

Postfrá gudnimagni » 03.okt 2016, 23:08

Þetta með gjöfina á Pajero ..... Ég er með þetta vandamál á mínum 2000 árg 3,5 l bensín bíl.
Þegar ég bakka set í R og þá geris ekkert fyrr en búið er að gefa vel inn og þá hrekkur hann áfram..... Eða afturábak heldur að segja..... Heheheh .
Þetta er líka þegar ég set í Drive en ekki eins mikið....
Vitið þið hvað þetta gæti verið?

User avatar

Höfundur þráðar
íbbi
Innlegg: 1453
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: mmc pajero/montero, húðstrýktur og illt í rassinum

Postfrá íbbi » 04.okt 2016, 02:47

það er skiptingartengt myndi ég halda, væntanlega 5þrepa skipting?

bíll sem mágur minn á lætur eins
1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.


gudnimagni
Innlegg: 35
Skráður: 16.nóv 2011, 23:17
Fullt nafn: Guðni Magni Kristjánsson

Re: mmc pajero/montero, húðstrýktur og illt í rassinum

Postfrá gudnimagni » 06.okt 2016, 21:25

Já ok. Hefurðu einhverja hugmynd um hvað vandamálið gæti verið?
Þarf að skipta um síu í skiptingunni kannski?


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 30 gestir