Síða 6 af 6

Re: Grand Cruiser

Posted: 21.mar 2017, 14:00
frá Hjörturinn
Ekki að örvænta, svo kemur annað innslag að ári :P

Re: Grand Cruiser

Posted: 21.mar 2017, 15:47
frá Ásgeir Þór
Þetta er flott en er dálítið forvitinn Hvar þú fékkst miðjuna túrbínunna ? Þarf að fara endur nýja mína ct26

Kv. Ásgeir

Re: Grand Cruiser

Posted: 21.mar 2017, 16:41
frá Hjörturinn
Pantaði hana af ebay í bretlandi, Melett miðja, ekki kínversk.

Svo á ég auka afgashús ef mönnum vantar, skilst það sé ómögulegt að fá þetta nýtt í dag nema kaupa alla bínuna.

Re: Grand Cruiser

Posted: 27.nóv 2017, 21:03
frá Hjörturinn
Er ekki komið jæja á þetta?

20171125_134805.jpg
20171125_134805.jpg (4.47 MiB) Viewed 25803 times


drossían var rekinn inn á verkstæði um helgina og fer ekki þaðan út nema undir eigin afli.
tankar voru málaðir, slöngur voru keyptar og helvítis túrbínuógeðinu var komið fyrir á mótornum
20171126_180716.jpg
20171126_180716.jpg (4.87 MiB) Viewed 25803 times


þetter pínus skítredding á klúðri og verður tekið upp við tækifæri en til þess að fá hana á orginal stað þá þarf að taka vel úr grindabitanum og ég bara nenni ekki þannig rugli.

svo þarf bara að leggja olíu og rafmagn að mótornum og tékka hvort það sé hægt að vekja hana úr dvala eftir öll þessi ár :)

myndirnar komu á ská en það er bara töff.

Re: Grand Cruiser

Posted: 28.nóv 2017, 11:54
frá Startarinn
Mer finnst bara ekkert að þessu hjá þér, mætti kannski renna rokknum yfir þetta ef suðurnar eru góðar.

Alltaf gaman að sjá menn halda áfram :)

Re: Grand Cruiser

Posted: 28.nóv 2017, 13:46
frá jongud
Er ekki hægt að láta túrbínuna standa ofan á greininni (eins og hún er) og hafa svo smá húddskóp á húddinu? Jafnvel láta opið snúa aftur og hleypa hitanum af túrbínunni beint út?

Re: Grand Cruiser

Posted: 28.nóv 2017, 14:03
frá Hjörturinn
Nei hún fer nefnilega eiginlega bara til hægri á myndinni frekar en upp, en gæti gert stút sem snúr henni uppá við vissulega, en þá var pústið orðið hálf asnalegt.

ætla bara hafa þetta svona þar til hann er kominn á ról og taka þá annann hring ef mér verður búið að dreyma einhverja betri lausn, stundum verður maður að hætta að spóla í sama farinu og bara standann uppúr :)

Re: Grand Cruiser

Posted: 28.nóv 2017, 19:53
frá Sævar Örn
Ég sé ekki betur en að þetta sé bara hið besta mál! Gaman verður að fylgjast með framvindunni.

Re: Grand Cruiser

Posted: 02.jan 2018, 10:57
frá Hjörturinn
Gleðilegt nýtt ár spjallverjar!
Hérna er smá update af kagganum.

er búinn að vera tengja mótor og bremsur, ekki beint mest spennandi myndefnið að sýna slöngur og hosuklemmur út í eitt :P

20171229_155233.jpg
20171229_155233.jpg (83.16 KiB) Viewed 25270 times

Fékk alternator úr pajero sport, komst svo að því að beltahjólið er með annan halla á V-inu, 3V belti sem er með 30°halla en ekki 40°eins og í cruisernum þannig þetta var andvana fætt, veit einhver hvað menn hafa verið að nota á þessa mótora?

20171231_122322.jpg
20171231_122322.jpg (203.22 KiB) Viewed 25270 times

Tankarnir komnir undir, eru tengdir saman fyrir miðjum minni tank, nennti ekki að vera með eitthvað dæluvesen. þetta eru um 150 L

20171230_131642.jpg
20171230_131642.jpg (117.23 KiB) Viewed 25270 times

2 stykki rafgeymar komnir í, sá aftari passaði eins og flís við rass í hólfið sem ég gerði þarna fyrir 2 árum, held ég eigi framtíðina fyrir mér sem völva...

20171230_131620.jpg
20171230_131620.jpg (117.54 KiB) Viewed 25270 times

Smá mockup til að tengja gjöfina, kúlan passar reyndar ekki alveg á cherokee kapalinn, þarf eitthvað að finna út úr því, pússa hann mögulega bara niður.

20171230_131603.jpg
20171230_131603.jpg (157.18 KiB) Viewed 25270 times

Vatnskassinn orðinn tengur ásamt miðstöð, þurfti aðeins að eiga við hosurnar en passaði allt merkilega vel með orignal dótinu úr cruisernum.

Svo þarf að lengja drifsköft um sirka 27cm í heildina.

Þegar ég er búinn að fá alternator sem virkar og tengja vacuumið og túrbínuna má nú bara vara snúa í gang held ég :)

Myndirnar eru í einhverju hakki, koma ekki í réttri röð.

Re: Grand Cruiser

Posted: 15.jan 2018, 14:01
frá Hjörturinn
túrbína.jpg
túrbína.jpg (78.99 KiB) Viewed 25059 times


Búið að sjóða smá til að koma þessari elsku á sinn stað...

Re: Grand Cruiser

Posted: 15.jan 2018, 21:54
frá Robert
það verður spennandi að sjá þennan á götuni.

Re: Grand Cruiser

Posted: 01.feb 2018, 09:36
frá Hjörturinn
Já ég er allavega orðinn spenntur :)

Varð smá ruglingur sem endaði með því að túrbó gramsinu mínu var hent, sem var ekkert svakalega vinsælt, en er búinn að panta mér Supra túrbínu með öllu þessu helsta utaná frá UK, svo eru olíulagnirnar fyrir túrbínuna að koma frá Taiwan og eitt stykki 12 volta 60 cruiser alternator á leiðinni frá Ástralíu, er eiginlega komið með nóg af mixi og ætla að prufa að henda bara nóg af peningum í þetta, sjá hvort hlutirnir fari ekki að gerast þá :)

Svo er að fara víra þetta dót.

Re: Grand Cruiser

Posted: 14.feb 2018, 10:19
frá Hjörturinn
Áfram potast þetta.

Fékk alla parta í síðustu viku þannig hægt var að tengja túrbínu og allt það.

fékk líka þennan fína fína alternator:
20180211_180632.jpg
20180211_180632.jpg (1.55 MiB) Viewed 24417 times

svo var intercoolerinn mátaður, merkilegt nokk þá voru göt í þverbitanum úr cherokeenum sem smellpössuðu við coolerinn, eitt af kraftaverkum lífsins:
20180203_114851.jpg
20180203_114851.jpg (1.27 MiB) Viewed 24417 times


Hér er svo búið að tengja loftlögnina frá síu að vél, allt of mikið af siliconi þarna en það er bara gaman...
20180211_180038.jpg
20180211_180038.jpg (1.64 MiB) Viewed 24417 times

Re: Grand Cruiser

Posted: 19.feb 2018, 11:08
frá Hjörturinn
áfram heldur dagbókin.

Helgin var notuð í að klára bremsulagnir að framan og tengja "stóra" rafmagnið, er kominn þannig að ég get snúið honum í gang, en vantaði boltana í drifsköftinn þannig ég var ekkert að vera að því og smellti húddpinnum á hann, svona til að auka powerið.

20180217_170943.jpg
20180217_170943.jpg (53.01 KiB) Viewed 24151 time

Sköftin góðu.

20180217_170956.jpg
20180217_170956.jpg (133.18 KiB) Viewed 24151 time

Bremuslagnir að framan, þurfti að fara soldið skrautlega leið frá dælu að tengistykki við slöngu, sést reyndar ekki vel á þessari mynd.

20180218_170929.jpg
20180218_170929.jpg (242.54 KiB) Viewed 24151 time

Race stöff!

Re: Grand Cruiser

Posted: 19.feb 2018, 19:14
frá Robert
Verður tilbúinn fyrir páska.

Re: Grand Cruiser

Posted: 20.feb 2018, 13:23
frá Hjörturinn
hehe já verst hvað þeir eru snemma í ár :P

Re: Grand Cruiser

Posted: 23.apr 2018, 08:33
frá Hjörturinn
Jæja, undur og stórmerki gerðust á sunnudaginn, ákvað að vinna bara úti og aðeins kroppa í þetta.

12H sleggjan vaknaði til lífsins á fyrsta snúning þegar hún loksins fékk olíuna sína, mikill léttir að heyra gaggið í henni :)

Mátaði svo kannta við hann, betra að gera það úti til að fá smá perspective, sýnist ég þurfa að lengja framkanntana um sirka 10cm en annars sleppur þetta merkilega vel.
Svo þarf stuaðargismóið að aftan að taka við kanntinum einhvernveginn.

Já og gleðilegt sumar!

20180422_165855.jpg
20180422_165855.jpg (1.6 MiB) Viewed 23508 times

20180422_165957.jpg
20180422_165957.jpg (1.69 MiB) Viewed 23508 times

20180422_162916.jpg
20180422_162916.jpg (1.29 MiB) Viewed 23508 times

20180422_163322.jpg
20180422_163322.jpg (1.33 MiB) Viewed 23508 times

20180422_162820.jpg
20180422_162820.jpg (1.35 MiB) Viewed 23508 times

Re: Grand Cruiser

Posted: 23.apr 2018, 16:43
frá Startarinn
Af hvernig bíl koma kantarnir?

Re: Grand Cruiser

Posted: 23.apr 2018, 18:48
frá Hjörturinn
Minnir að þetta hafi upphaflega verið Blazer kanntar en þetta er teygð og toguð útgáfa af sömu könntum og ég var með á 60 cruisernum mínum, eins kanntar og þessir voru á rauða 46" rangernum sem Andri Björnsson breytti

Re: Grand Cruiser

Posted: 24.apr 2018, 22:00
frá Hjörturinn
Þetta gerðist í kvöld

[ Play Quicktime file ] Snapchat-1818490731.mp4 [ 12.47 MiB | Viewed 23278 times ]


Veit ekki hvort videoið komist til skila en prufum þetta

Re: Grand Cruiser

Posted: 25.apr 2018, 06:45
frá sukkaturbo
Jamm til hamingju með áfangan

Re: Grand Cruiser

Posted: 25.apr 2018, 09:23
frá Hjörturinn
Takk fyrir það, þarf ekki að drösla honum inn og út með lyftara lengur sem auðveldar hlutina töluvert :)

Re: Grand Cruiser

Posted: 25.apr 2018, 11:11
frá Járni
Snéri myndbandinu og snaraði því yfir í webm


Re: Grand Cruiser

Posted: 26.apr 2018, 09:09
frá Hjörturinn
Takk fyrir það, aðeins þægilegra að horfa á þetta svona :)

Re: Grand Cruiser

Posted: 17.sep 2018, 10:22
frá Hjörturinn
Jæja þá er kagginn búinn á stórsýningunni hjá f4x4, langar að þakka öllum þeim sem stoppuðu við hjá mér í spjall :)

Einstaklega gaman að fá hlý orð um dótið manns :P

20180914_194333.jpg
20180914_194333.jpg (259.3 KiB) Viewed 21713 times

Re: Grand Cruiser

Posted: 03.apr 2021, 13:28
frá Hjörturinn
Smá páskaupdate
Kanntarnir að verða djöfull líklegir bara
16174564253989158435772443900569.jpg
16174564253989158435772443900569.jpg (2.9 MiB) Viewed 16661 time

16174564117674646331880359039203.jpg
16174564117674646331880359039203.jpg (2.65 MiB) Viewed 16661 time

Re: Grand Cruiser

Posted: 04.apr 2021, 20:05
frá Orvis
Er hægt að versla svona kanta?

Re: Grand Cruiser

Posted: 06.apr 2021, 08:31
frá Hjörturinn
Hann Bjössi hjá Vögnum og þjónustu er með þessa kannta.

Re: Grand Cruiser

Posted: 06.apr 2021, 12:36
frá TF3HTH
Hvað eru þessir kanntar breiðir?

Re: Grand Cruiser

Posted: 07.apr 2021, 08:43
frá Hjörturinn
Man það ekki í veifið, en þetta var eitthvað um 30cm áður en ég fór að snikka þá til, tók alveg 15cm af þeim að hluta, þar sem grandinn mjókkar svo til endana

Re: Grand Cruiser

Posted: 26.júl 2022, 11:39
frá Hjörturinn
Smá update.
Sílsarnir voru farnir í drasl þannig það þurfti að gera eitthvað í því.
Ætlaði að fara amerísku leiðina og sjóða prófíl í staðin, en hefði þá ekki náð neinni suðu með A og B bitana sá ég þannig ákvað að sjóða flatjárn að neðan og loka svo með beygðri 2mm plötu.
Kominn með stýrisdælu líka sem fer vonandi í á næstu dögum/vikum
nokkrar myndir til að gleðja augað :D

20220710_134108.jpg
20220710_134108.jpg (463.46 KiB) Viewed 9597 times

20220710_115940.jpg
20220710_115940.jpg (41.29 KiB) Viewed 9597 times

20220710_144717.jpg
20220710_144717.jpg (586.58 KiB) Viewed 9597 times

20220714_185102.jpg
20220714_185102.jpg (562.55 KiB) Viewed 9597 times

20220725_211011.jpg
20220725_211011.jpg (533.05 KiB) Viewed 9597 times


eitt skref afturábak, tvör skref áfram :)

Svo er stefnan að mála hann allan með liner, keypti Mipa Protector frá Orku, var á betra verði en raptorinn, ku vera svipað dót.

Re: Grand Cruiser

Posted: 23.aug 2022, 14:58
frá Hjörturinn
Smá update.

Kláraði þetta sílsaævintýri og hnoðaði könntunum á hann, svona að mestu leiti, standa að megninu útaf honum :P

Svo slípaði ég upp allt ryð sem ég fann, lokaði gömlum loftnetsgötum og svo var búnaðurinn bara málaður.
Notaðir MIPA Protector pallahúð, svipað efni og Raptor nema ódýrara.

20220814_141853.jpg
20220814_141853.jpg (2.37 MiB) Viewed 8896 times

20220821_112604.jpg
20220821_112604.jpg (2.88 MiB) Viewed 8896 times

20220821_201018.jpg
20220821_201018.jpg (2.3 MiB) Viewed 8896 times

20220821_201227.jpg
20220821_201227.jpg (2.96 MiB) Viewed 8896 times


Mjög þægilegt að sprauta þessari pallahúð á, fyrirgefur meira í undirvinnu en venjulegt lakk en alls ekki allt, maður gat allavega verið graðari og hraðari í slípingunum

Re: Grand Cruiser

Posted: 23.aug 2022, 21:57
frá Sævar Örn
Heyrðu góði nú styttist í 10 ára afmæli þessa smíðaþráðar mikið er ég ánægður með þig að halda áfram með þetta og nú sýnist mér styttast í að verði nothæft! Ég spái líka hörku vetri núna

Þessi málning kemur mjög vel út á honum

Re: Grand Cruiser

Posted: 23.aug 2022, 22:51
frá ellisnorra
Rosalega verður spennandi að sjá framenda á honum :)

Re: Grand Cruiser

Posted: 24.aug 2022, 08:08
frá Hjörturinn
Já fjandinn, facebook talar alltaf um 8 ár en sé að jeppaspjallið er talsvert óvægnara :)

Varðandi framendann þá verður þetta einhver útgáfa af svona:
Capture.PNG
Capture.PNG (606.22 KiB) Viewed 8824 times

Þarf að taka inn einhver hugvíkkandi efni til að græja þetta hugsa ég

Re: Grand Cruiser

Posted: 30.jan 2023, 09:46
frá Hjörturinn
Talandi um framendann, þá gerðist þetta um helgina.

20230129_151128.jpg
20230129_151128.jpg (2.84 MiB) Viewed 7111 times


20230127_202637.jpg
20230127_202637.jpg (2.91 MiB) Viewed 7111 times


20230129_185412.jpg
20230129_185412.jpg (2.59 MiB) Viewed 7111 times


20230129_185601.jpg
20230129_185601.jpg (2.6 MiB) Viewed 7111 times


Svo er stefnan að taka hann heim í skúr og klára bremsur, stýri og rafmagn, þar sem stál og trebbavinnan er að mestu búinn.
Svo koma einhver sæt ljós á þetta mögulega

Re: Grand Cruiser

Posted: 05.feb 2023, 13:56
frá Sævar Örn
Þetta lýst mér vel á og verður örugglega flott þegar búið er að koma fyrir einhverjum loftunum, grilli og ljósagötum

Re: Grand Cruiser

Posted: 07.feb 2023, 08:35
frá Hjörturinn
Já ákvað að rumpa þessu af, svo koma ljós og mögulega eitthvað grill á nefið á honum, maður verður að byrja einhversstaðar :)

Annars þá fór ég með hann heim í kotið um helgina, hefur verið meira pláss í skúrnum en gott vinnupláss undir brettakönntunum þegar hann er á inniskónum.
321918225_642398537642336_5799548023046836603_n.jpg
321918225_642398537642336_5799548023046836603_n.jpg (818.74 KiB) Viewed 6662 times

Re: Grand Cruiser

Posted: 07.feb 2023, 20:01
frá StefánDal
Virkilega gaman að sjá eitthvað alveg öðruvísi!
Ætlaru að fella inn ljós þar sem þau voru? Gaman að sjá hvað nýsmíðin ber mikinn svip af ZJ þótt þetta sé orðið mikið breytt.