Síða 1 af 1

Suzuki Vitara '95 33" - Fyrsti jeppinn!

Posted: 23.sep 2013, 02:30
frá tinni77
Sælt veri fólkið,

núna á föstudagskvöldið 20/09 verzlaði ég mér minn fyrsta jeppa. Jeppaveikin hefur alltaf blundað í mér frá því að ég ásamt foreldrum mínum vorum virkir meðlimir í Ferðaklúbbnum 4x4 fyrir u.þ.b. 15 árum. og nú loks er maður búinn að næla sér í sinn eigin jeppa, hér eru smá upplýsingar um hann:

Suzuki Vitara
*Árgerð 1995
*2 dyra
*1600 cc (innspýtingarmótor)
*33" mjög góð BFGoodrich
*Boddíhækkun 60 mm
*Kantar
*Stigbretti
*Toppgrind
*Bensínbrúsagrind á afturhlera
*Krókur
*4WD Hi/4WD Lo/2WD
*Drullusokkar


Hér eru svo 2 lélegar myndir af honum:
Image

Image


So far er ég allavega mjög sáttur með hann sem fyrsta jeppa, vonandi á hann eftir að standa sig í vetur !


Kv Tinni.

Re: Suzuki Vitara '95 33" - Fyrsti jeppinn!

Posted: 23.sep 2013, 08:03
frá sukkaturbo
Sæll til hamingju með fyrsta jeppan. Ég hef átt svona stutta Sukku og þetta er þræl duglegt í snjó og eyðir litlu og bilar lítið og gaman að leika sér á þessu. En varaðu þig á honum í hálku .kveðja Guðni

Re: Suzuki Vitara '95 33" - Fyrsti jeppinn!

Posted: 23.sep 2013, 19:52
frá nervert
ánægður með þig, þessi er í lagi

Re: Suzuki Vitara '95 33" - Fyrsti jeppinn!

Posted: 24.sep 2013, 14:06
frá Luxarinn
Almennilegur þessi,
Til hamingju með hann!

Re: Suzuki Vitara '95 33" - Fyrsti jeppinn!

Posted: 25.sep 2013, 00:29
frá alex-ford
til hamingju með þenan kall súkkunar eru goðar