Síða 4 af 5

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 01.jan 2015, 21:40
frá elli rmr
sér þessi snjó í vetur?

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 02.jan 2015, 13:49
frá KjartanBÁ
Ég held að það sé tæpt að hann klári hann í vetur miðað við seinustu myndir en hvað veit ég. Ég er ekki að smíða heldur sit ég og stari á flotta jeppa á skjánum

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 02.jan 2015, 22:27
frá Hordursa
elli rmr wrote:sér þessi snjó í vetur?

Ég hennti í hann snjóbolta um daginn, hann varð voða glaður!

Ég er annars dottinn í smá verkfærasmíði í augnablikinu sem ég mun senda myndir af síðar.

Ég geri ekki ráð fyrir að keyra þennan veturinn, en það kemur alltaf annar. Þetta er svona langtíma verkefni sem er unnið í eftir nennu og stemmingu og eingöngu til ánægju fyrir eigandann:-).

vonast til að hafa skemmtilegar myndir fljótlega til að sína ykkur.

kv Hörður

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 23.feb 2015, 22:49
frá Hordursa
Góða kvöldið, loksins eitthvað að ske sem hægt er að sína.
Ég datt í brettakanta pælingu og komst að því að mig langaði ekki í trefjaplastkanta og ákvað þessvegna að smíða þá úr stáli.
190.jpg
Til að berja blikkið smíðaði ég þennan power hammer
190.jpg (154.62 KiB) Viewed 16213 times

191.jpg
Svo þurfti að smíða nokkur verkfæri í hamarinn
191.jpg (113.38 KiB) Viewed 16213 times

192.jpg
Hér er búið að skera og merkja plötu í hálfan afturkant
192.jpg (106.46 KiB) Viewed 16213 times

193.jpg
Þarna er soldið búið að berja og aðeins að komast form á kantinn
193.jpg (114.25 KiB) Viewed 16213 times

194.jpg
Kantur að taka á sig form
194.jpg (149.42 KiB) Viewed 16213 times

195.jpg
Ég var svo heppinn að vinur minn smíðaði sér enskt hjól og var til í að lána mér það
195.jpg (126.8 KiB) Viewed 16213 times

196.jpg
Hérna er búið að renna kantinum nokkrar ferði í hjólinu og ég er bara nokkuð sáttur með árangurinn sem fyrstu tilraun
196.jpg (115.18 KiB) Viewed 16213 times

197.jpg
Svona lítur prófíllinn á kantinum út
197.jpg (82.65 KiB) Viewed 16213 times

Ég ákvað að prufa að taka fyrst kantinn í tvennu lagi en mér sýnist að auðveldara verði að taka hann í þrennu lagi og mun prufa næsta kant þannig, bæti svo við myndum þegar eitthvað nýtt kemur.
kv Hörður

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 23.feb 2015, 23:38
frá Bskati
mikið er nú gott að þú skánar ekkert

ég verð að reyna að koma í heimsókn í páskafríinu

Beta biður að heilsa

Baldur Bróðir

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 24.feb 2015, 07:52
frá ellisnorra
Þú ert freeekar klikkaður, geggjað að fylgjast með þessu :)

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 24.feb 2015, 08:31
frá jongud
elliofur wrote:Þú ert freeekar klikkaður, geggjað að fylgjast með þessu :)


Skemmtilega klikkaður myndi ég segja...

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 24.feb 2015, 10:00
frá Ýktur
Þetta er algjörlega æðislegt :)

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 24.feb 2015, 12:27
frá Hjörturinn
Frábært að já nýjan vinkil á brettakannta pælingar, verður gaman að sjá útkomuna.

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 24.feb 2015, 18:02
frá olafur f johannsson
Það er bara snilld að fylgjast með þessu verki :)

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 24.feb 2015, 19:43
frá sukkaturbo
Sæll Hörður þetta er aldeilis flottur harðfiskhamrinn sem þú notar í kanta smíðina. Algjör snilld Þú gætir selt kannta í kílóa tali og er ég tilbúinn að kaupa 5 kíló á Bellu

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 25.feb 2015, 01:29
frá olei
Bjóst ekki við að sjá Enskt hjól í vinnu hér á jeppaspjallinu.

Gaman að þessu glæsilega verkefni.

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 26.feb 2015, 20:48
frá Hordursa
Hér eru nokkrar myndir af prufustykkjum, Guðni þú getur fengið það sem þú vilt af börðu blikki, allt á þessum myndum eru prufur sem verðu hent.
200.jpg
hér er haugurinn af dóti sem passar svona næstum því á annan veginn en ómögulega á hinn veginn
200.jpg (139.64 KiB) Viewed 15731 time

201.jpg
annað sjónarhorn á sama haug
201.jpg (140.72 KiB) Viewed 15731 time

202.jpg
skúffan er 3mm stál sem ég beygði í skúffu einföld prufa sem lofar góðu
202.jpg (120.03 KiB) Viewed 15731 time

Þetta er rosa gaman bara aðeins of margir möguleikar sem þarf að prófa.
Kv Hörður

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 27.feb 2015, 08:05
frá sukkaturbo
Hordursa wrote:Hér eru nokkrar myndir af prufustykkjum, Guðni þú getur fengið það sem þú vilt af börðu blikki, allt á þessum myndum eru prufur sem verðu hent.
200.jpg

201.jpg

202.jpg

Þetta er rosa gaman bara aðeins of margir möguleikar sem þarf að prófa.
Kv Hörður

Sæll Hörður og takk fyrir það þetta er allt gull maður og má ekki henda svona eðal vinnu, hægt að smíða úr þessu öllu saman kveðja guðni

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 27.feb 2015, 12:50
frá juddi
Ertu að nota alvöru boddy stál eða rafgalf ? mikill munur að smíða úr því

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 27.feb 2015, 15:50
frá Lindemann
Er boddístálið þá mikið mýkra en rafgalv?

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 27.feb 2015, 16:02
frá Hordursa
Guðni, við hendum þessu ekki en það passar ekki, ef einhver vill nota þetta þá er það til.
Juddi hvað kallar þú "Alvöru boddy stál"? Ég er að nota 1mm þykkt kaldvalsað blikk, líka búinn að prufa rafgalv og sé engan svaka mun.

kv Hörður

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 27.feb 2015, 20:05
frá stebbiþ
Sæll Hörður.
Við kaupum efni af Gvendi Ara fyrir milljónir á hverju ári í vinnunni hjá mér, þar á meðal mjög mikið af kaldvölsuðum plötum. Fyrir nokkrum vikum hringdi hann Þorlákur hjá GA í mig og sagði mér frá því að þeir væru aftur byrjaðir að flytja inn alvöru 1mm boddýstál, en það hafði verið ófáanlegt hér á landi í talsverðan tíma. Þetta verður lagervara hjá þeim í framtíðinni. Ég get sagt þér að það er himinn og haf á milli þess að vinna þessar plötur miðað við hefðbundnar 0,8 - 1mm svartar eða rafgalv plötur. Þú getur nánast hnoðað þessar með hnefanum. Þetta efni er t.d. notað í alla custom boddý vinnu erlendis.

Kv, Stebbi Þ.

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 01.mar 2015, 15:26
frá tommi3520
gott af vita af þessu!

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 02.mar 2015, 22:20
frá Hordursa
sælir félagar,

hér eru myndir af stöðunni eins og hún er í dag.
203.jpg
Kominn soðinn kantur og búið að útbúa skurðarlínu
203.jpg (102.7 KiB) Viewed 15114 times

204.jpg
Fyrsta mátun, þarf að útbúa mér haldara fyrir kantinn svo hægt sé að stilla þessu almennilega upp, hugmyndir????
204.jpg (105.91 KiB) Viewed 15114 times

meira síðar kv Hörður

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 03.mar 2015, 00:08
frá juddi
Sé að svarið er komið mikill munur að vinna með þetta efni

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 03.mar 2015, 00:24
frá Freyr
Segulstál á RAM kúlufestingum, e.t.v. sogskál sem legst að brettunum því þau eru með nógu fínt yfirborð til þess?

Image

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 03.mar 2015, 00:25
frá stebbiþ
Er ekki hægt að mixa einhverskonar stillanlegan suðuvinkil, sem nær 120-130° gráðum?
Eitthvað í líkingu við þetta.

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 04.mar 2015, 19:29
frá ellisnorra
Hvernig ætlaru svo að festa köntunum á bílinn? Sjóða þá? :)

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 04.mar 2015, 20:31
frá stebbiþ
Festa kantana á bílinn, meinarðu?
Nei vinur, þetta var bara hugmynd svo hægt væri að stilla þeim upp, meðan verið er að máta.

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 12.apr 2015, 22:17
frá Hordursa
Góðann daginn,
Elli, kantarnir verða límdir á á sama máta og plastkantar.
Til að geta klárað kantana varð ég að græja felgur til að máta dekk, fékk Smára í Skerpu til að stinga felgurnar og Héðinn smiðja skar flansa og valsaði hólka.
210.jpg
Efni í eina felgu
210.jpg (145.62 KiB) Viewed 14100 times

211.jpg
Þar sem ég hef ekki aðgang að rennibekk sem tekur 20" fegur varð ég að stilla felgunum upp undir bílnum
211.jpg (146.83 KiB) Viewed 14100 times

212.jpg
ynnri hluti í afréttingu
212.jpg (151.4 KiB) Viewed 14100 times

213.jpg
Hér sést útlit felgunnar sem er 18" breið
213.jpg (166.13 KiB) Viewed 14100 times

Meira síðar, kv Hörður

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 14.apr 2015, 23:41
frá Kiddi
Það er bara allt að gerast! Það er skemmtilegt að fá að fylgjast með því hvernig þú leysir hlutina. Það verður síðan spennandi að sjá gripinn kominn í hjólin og með bretti!

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 15.apr 2015, 08:04
frá sukkaturbo
Sæll Hörður ekki að spyrja af vinnubrögðunum. Hvað verða þessar felgur þungar. Þessar sem við smíðuðum urðu 32 kíló. Vil taka fram að það hefur aldrei affelgast af þeim þó við höfum farið nður í 0,5 pund og eru ekki með bedlock eða hvað þetta heitir.

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 18.apr 2015, 20:27
frá Hordursa
Sæll Guðni, veit ekki viktina nákvæmleg en held að hún verði um 40kg, bara boltarnir eru 2kg.


215.jpg
hringurinn inn í felguna er smíðaður úr 15mm plastplötu, sagaði 10mm djúpar raufar með 50mm millibili til að beygja um.
215.jpg (179.58 KiB) Viewed 13677 times

216.jpg
beygjutilraunir
216.jpg (137.27 KiB) Viewed 13677 times

217.jpg
Allt tilbúið til samsetningar
217.jpg (193.6 KiB) Viewed 13677 times

218.png
2 tímum seinna var fyrsta felgan komin saman.
218.png (1.18 MiB) Viewed 13677 times

Meira síðar
kv Hörður

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 18.apr 2015, 22:46
frá Bskati
kemur flott út :)

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 19.apr 2015, 10:52
frá Sæfinnur
Þetta er hreint ótrúlegt verkefni og magnaður þráður. Það er hérna smá hugmynd handa þér ef þig vantar leið til að fjármagna verkefnið. Hafa bara opið hús á einhverjum föstum tíma og selja inn. Ég er viss um að flestir bílakallar vildu borga fyrir að skoða þessa snilld.
Bkv Stefán

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 21.apr 2015, 20:38
frá Hordursa
Djöfull er stundum gaman í skúrnum.
220.jpg
Dekkin skapa bílinn
220.jpg (177.72 KiB) Viewed 14588 times

221.jpg
Hér er framdekk, ca 8cm eftir í samslátt.
221.jpg (154.5 KiB) Viewed 14588 times

Meira síðar, kv Hörður

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 22.apr 2015, 09:47
frá Arsaell
Djöfulli lookar þetta vel.

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 22.apr 2015, 12:32
frá sukkaturbo
Sæll Hörður það er farið að koma mannsmynd á þetta hjá þér.Þetta er þvílíkt verklegt og vel gert hjá þér allt saman. Menn eru að tala um að það sé svo hátt að stíga inn í bíla á Unimog hásingum og 54" dekkum.Það virðist ekki vera mjög hátt upp í bílinn hjá þér í þessari stöðu svipað og upp í 35" sukku. Hver er hæðinn inn á gólf í aksturstöðu hjá þér??. Hefur þú mælt það hún er 95 cm á Hulkinum

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 22.apr 2015, 13:52
frá atli885
gaman að fá að fylgjast með.. Kemur hrikalega flott út

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 22.apr 2015, 17:07
frá kári þorleifss
geggjað! Þetta er svona fullorðins

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 22.apr 2015, 23:26
frá Hordursa
Tvær í viðbót
222.jpg
Ég er mjög sáttur við útlitið
222.jpg (134.23 KiB) Viewed 14335 times

223.jpg
þarf að raða ljósum og stuðara á til að fá heildarútlit
223.jpg (127.52 KiB) Viewed 14335 times

Guðni, það á að vera ca 85cm á samt eftið að mæla.
kv Hörður

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 23.apr 2015, 10:22
frá Járni
Nýi Batmobile

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 23.apr 2015, 20:54
frá ellisnorra
Djöfull er þetta drullutöff. Hvenær verður þetta orðið "færsluhæft", þe getur færst úr stað undir eigin vélarafli? Væri gaman að sjá mynd af honum og lilla hlið við hlið.

Re: Chevy Avalanche verkefni

Posted: 23.apr 2015, 22:00
frá Bskati
mikið svakalega verður gaman í Drusló næsta vetur :)