Síða 1 af 1
Willys cj7 '78 (Wrangler) ný mynd
Posted: 10.feb 2013, 16:05
frá Mongó888
Fékk mér þennan fyrir stuttu
Þetta er willys cj7 '78 árg. með wrangler boddy
360 amc
t 18
dana 20

svo fann ég þessar myndir og var að velta fyrir mér hvort þetta sé sami bíll???
http://www.cardomain.com/ride/2518760/1981-jeep-cj7/
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 10.feb 2013, 16:09
frá Mongó888
var reyndar að taka eftir að willysin á að vera 81 árg
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 10.feb 2013, 16:16
frá Stjáni Blái
Þessar myndir af facebook eru ekki að virka.
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 10.feb 2013, 16:20
frá Mongó888
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 14.feb 2013, 07:39
frá Runar Gunnars
Jú þetta er sami bíllinn veit meiraðsegja um þetta body, og menn vildu meins að hann hafi farið upp á hvannadalshnjúk svona
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 14.feb 2013, 08:04
frá sukkaturbo
Þetta er bílinn sem var í ferðinni upp að Hvannadalshnjúk. Einnig var í þessari ferð grænn Suzuki Fox með tvo gírkassa. Mér var sagt að þessi Wyllis og Foxinn hafi drifið vel og farið aðra leið en hinir þegar farið var til baka. Einhverja styttri leið. En þetta er svo langt síðan og kanski hef ég ekki rétt eftir.kveðja guðni
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 14.feb 2013, 12:17
frá nervert
þetta er samibílllinn, boddýið situr á brettum uppí landsveit
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 16.feb 2013, 11:23
frá Mongó888
Runar Gunnars wrote:Jú þetta er sami bíllinn veit meiraðsegja um þetta body, og menn vildu meins að hann hafi farið upp á hvannadalshnjúk svona
er bodyið ónýtt??
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 17.feb 2013, 19:05
frá StefánDal
Flottur jeppi með mikla sögu. Algjör synd að hafa þetta Wrangler lúkk á honum samt.
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 17.feb 2013, 19:12
frá Mongó888
StefánDal wrote:Flottur jeppi með mikla sögu. Algjör synd að hafa þetta Wrangler lúkk á honum samt.
er að vinna í því komin með húdd & grill og á bara eftir að sækja brettin
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 17.feb 2013, 21:44
frá jeepcj7
Foxinn var svartur í þessari ferð og þá í eigu Tóta túrbó með 1600 vélinni líklega ennþá með túrbó og já 2 gírkössum á hilux hásingum og bens fjöðrum og plast/álfelgum alveg svakagræja.
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 17.feb 2013, 22:36
frá Svenni30
jeepcj7 wrote:Foxinn var svartur í þessari ferð og þá í eigu Tóta túrbó með 1600 vélinni líklega ennþá með túrbó og já 2 gírkössum á hilux hásingum og bens fjöðrum og plast/álfelgum alveg svakagræja.
Volvo vél og volvo gírkassa og willys gír og millikassi.
[youtube]NNYQidFEutw[/youtube]
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 18.feb 2013, 10:35
frá Kiddi
Ef Wrangler húddið er óskemmt þá gæti ég verið til í að festa kaup á því!
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 18.feb 2013, 10:45
frá Skúri
Þetta er ´78 módelið af CJ7.
Gamla boddýið er nánast ónýt af ryði, ég skoðaði það fyrir örugglega 4 árum síðna og þá var það illafarið ;-)
Berti félagi minn flutti þennan Willys inn fyrir Jónas sem átti hann fyrst, það er ekki bara búið að skipta um boddý á honum heldur er líka búið skipta út hásingunum.
En restin af kraminu er það sama og Jónas var með.
Ps. Í Hvannadalshnjúkstúrnum keyrðu Jónas og Tóti uppí Grímsvötn á meðan hinir urðu eftir að taka til eftir spilvinnuna, þeir sem urðu eftir við Hnjúkinn urði veðurtepptir í 2 sólarhringa á meðan Jónas og Tóti voru á Grímsfjalli. Allur hópurinn sameinaðist svo í Hermannskarði þegar veðrinu slotaði, fór þeir Jónas og Tóti með öllum hópnum niður Breiðamerkurjökul
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 18.feb 2013, 10:58
frá Kiddi
Kristján, hver var það aftur síðan sem fór með Freysa heitinum beint niður? Ef mig misminnir ekki þá tókst þeim að brölta niður hjá Sandfelli?
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 18.feb 2013, 12:50
frá Skúri
Ingimundur fór með Freysa beint niður á Hnappavelli, þeir gátu ekki snúið við þegar þeir komust að því að þetta væri brjálæði að fara þarna niður.
Þetta var víst með því svakalegasta sem þeir höfðu lent í og voru þeir alvanir ýmsum ævintýrum á þessum tíma.
Ég hef einu sinni farið uppá Öræfajökul , reyndar komumst við ekki niður að Hnjúknum þar sem stór sprunga sem lá eftir allri Snæbreiðinni hamlaði okkur för, en mér leist ekkert á blikunna að fara þarna beint niður.
Þegar ég fór hringin í sumar þá var mér einmitt litið þarna upp og ég gat engan veginn séð hvar þeir hefðu komið niður.
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 18.feb 2013, 17:51
frá Mongó888
Kiddi wrote:Ef Wrangler húddið er óskemmt þá gæti ég verið til í að festa kaup á því!
Það eru dældir á því en mátt kíkja á það ef þú vilt
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 23.feb 2013, 22:58
frá jeepcj7
Laukrétt það var komin volvo í húddið fyrir þessa ferð hjá Tóta hann seldi svo græjuna fljótlega eftir þetta og fór að nota Astroinn.
Re: Willys cj7 '78 (Wrangler)
Posted: 24.feb 2013, 13:41
frá beygla
bíllin sem Jónas skófla átti flottur bíll ferðaðist eitthvað með honum í gamladaga með samfarafelaginnu :)