Luxinn minn

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Luxinn minn

Postfrá ellisnorra » 07.feb 2010, 21:00

Gaman að sjá bíla meðlima hér, er þá ekki best að ég skelli mínum inn líka? Mín sjálfrennireið er Toyota Hilux árg 91 sem ég keypti í jan/feb 2007, þá með 22R-E með ónýta heddpakkningu, hálfónýtt klafasystem að framan, og blaðfjaðrir að aftan, 4,10 hlutföll, ferlega ljótt og upplitað lakk með ofboðslegt magn af litlum ryðbólum, hefur væntanlega lent í sandblæstri einhverstaðar auk þess að í honum voru stærri ryðgöt, sérstaklega í skúffunni í kringum pústið. Hann var haugskítugur að innan sem utan, meira að segja með lambaspörð í á pallinum :) Keyrður 247 þúsund þá.

Þá leit hann svona út
Image
Image

Bensínvélin fór í gang og keyrði, ég byrjaði nú á því að skipta um heddpakningu en það var fleira að þannig að ég náði mér í LC70 til að rífa, ekinn NÁKVÆMLEGA 220 þúsund þegar ég reif hann. Hann bauð uppá ágæta 2L-T díselvél sem ég fiffaði ofaní luxinn. Jæja þá gat ég farið út að keyra. Örfáum mánuðum seinna þá var ég orðinn þreyttur á þessu pústcomboi mínu, en það samanstóð af 2" pústinu undan 70 bílnum nema öðruvísi uppröðun á beyjum og dóti (skorið og soðið til að það passi) en það náði næstumþví einn og hálfum meter allt í allt. Til að fara í gegnum skoðun lét ég blása í gegnum örmjóa rörið sem bensínvélin blæs í gegnum, en það var bara rétt í gegnum skoðunarstöðina! Vá hvað það var þröngt.. En ég keypti mér 2.5" rör og smellti því undir, engar ógeðslegar beyjuvélabeyjur heldur skar ég fullt af 15° skurðum þannig að hver beyja er 30°. Síðan er bara besta leiðin valin, merkt, soðið og svo heilsoðið í restina. Fullur sverleiki alla leið, 2.5" en ekki 2" í beyjum eins og pústverkstæði bjóða uppá. Menn sjá væntanlega að ég er illa pirraður á þessum endalausu vörusvikum!

Það þýðir ekki að hafa suma hluti örgranna, bætti líka við afgashitamæli til að geta skrúfað allt í botn á olíuverkinu
Image
Image
Image

Þarna sést líka boost controlerinn, ég er að blása rétt tæplega einu bari og olíuverkið passlega uppskrúfað líka. Einn daginn bætti ég líka við intercooler ættuðum úr volvo 760 og var það stórmunur.
Einhverntíman þarsíðasta vor þá var farið að braka og marra svo í þessu háþróaða IFS fjöðrunrsystemi sem prýtti bílinn að framan, fóðringarnar bæði margar og dýrar þannig að ég sá framá tugi þúsunda bara í að fóðra þetta upp, þannig að ég skar allar festingar og allt sem fylgdi framfótabúnaði úr LC70 líffæragjafanum og smellti því undir luxinn að framan. Alltannar bíll með gorma og marrlaus :) Þá skipti ég líka um hlutföll, notaði 4,88 sem krúserinn bauð einnig uppá. Svona keyrði ég bílinn framá þarsíðasta haust.
Þá fékk ég leið á því hvað hann var fjandi ljótur, keypti mér málningu og fór að rífa og slípa upp ryð!

Image
Image

Víða þurfti að forma hlutina algjörlega uppá nýtt einsog gengur og gerist í svona verkefnum
Image
Image

Svo fóru nokkur hundruð klukkutímar í þetta í viðbót og þá leit hann svona út
Image
Image
Image

Þarna var ég nú orðinn fjandi montinn með drusluna! En auðvitað getur maður áfram haldið áfram að bæta!
Image
Image

Og þá getur hann teygt sig örlítið betur
Image
Þvílíkur munur á bílnum.

Svo í svona verkefnum þarf náttúrulega að hafa örlítið stærri dekk, ég fer lítið útfyrir veg og nota bílinn mest sem vinnubíl með möguleika á að komast örlítið meira en meðal fólksbíll. Ég smellti 35" undir og þá er hann fjandi góður
Image

En ef menn vilja skoða þennan hilux minn eitthvað frekar þá er alveg gomma af myndum af honum inná síðunni minni, elliofur.123.is
Takk fyrir mig.


http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

Polarbear
Póststjóri
Innlegg: 874
Skráður: 31.jan 2010, 23:15
Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
Bíltegund: Toyota

Re: Luxinn minn

Postfrá Polarbear » 07.feb 2010, 21:04

reffilegur brummi hjá þér Elli, en mér finnst þú þurfa að fara að stækka skóna aðeins :)

jeppakveðjur,
Lalli

User avatar

JonHrafn
Innlegg: 578
Skráður: 06.feb 2010, 10:41
Fullt nafn: Jón Hrafn Karlsson
Staðsetning: Keflavík south

Re: Luxinn minn

Postfrá JonHrafn » 07.feb 2010, 21:08

Orðinn helvíti flottur hjá þér bara.

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1391
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: Luxinn minn

Postfrá Járni » 07.feb 2010, 21:14

Lagleg endurnýjun þarna, vel gert.

Sé ég rétt, er þetta pæjeróinn hans Jóa litla þarna á neðstu myndinni?
Land Rover Defender 130 38"

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Luxinn minn

Postfrá ellisnorra » 07.feb 2010, 22:21

Lalli já, ég er með bíl til þess að fara á stóra skó...
Image

Og já þetta er pæjan hans Jóa þarna með í ferð :)
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

Polarbear
Póststjóri
Innlegg: 874
Skráður: 31.jan 2010, 23:15
Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
Bíltegund: Toyota

Re: Luxinn minn

Postfrá Polarbear » 07.feb 2010, 22:24

Looking good :)

User avatar

ofursuzuki
Innlegg: 270
Skráður: 31.jan 2010, 15:47
Fullt nafn: Björn Ingi Óskarsson
Staðsetning: Skagaströnd
Hafa samband:

Re: Luxinn minn

Postfrá ofursuzuki » 08.feb 2010, 12:11

elliofur wrote:Lalli já, ég er með bíl til þess að fara á stóra skó...
Image

Og já þetta er pæjan hans Jóa þarna með í ferð :)

Er þetta Dodge eða Plymouth sem á að fara á stóru skóna hjá þér.
Líst annars bara vel á þetta allt saman.
Björn Ingi Óskarsson
_____________________________
Nissan Patrol 260 38"
Suzuki SJ 410 Pickup 38" 1986 Seldur
Suzuki Vitara 33" 1993 R.I.P
Suzuki SJ 413JX 33" 1988 Seldur

User avatar

gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1067
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Suzuki Fox
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: Luxinn minn

Postfrá gislisveri » 08.feb 2010, 12:13

Powerwagon! Elliofur, þú tvínónar ekki við hlutina.

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Luxinn minn

Postfrá ellisnorra » 08.feb 2010, 21:07

Jam, powerwagon, en ég ætla ekki að hafa hann svona svakalega háan, ætla bara að hafa hann lágbyggðan og flottan, en ég ætla að halda honum eins og hann er á lengdina, hjólhafið 4.40m, (stórt) doublecab hús og langur stepside pallur
http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Re: Luxinn minn

Postfrá ellisnorra » 27.feb 2010, 20:16

Image

Image
http://www.jeppafelgur.is/


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 28 gestir