Síða 1 af 1

1982 Chevy Suburban Diesel

Posted: 05.feb 2013, 21:54
frá bfmagnusson
Langar að deila með ykkur smá mini uppgerð á trukknum.
Þetta er s.s 1982 Chevrolet Scottsdale/Suburban 6.2 Diesel BEINskiptur, 3 gíra með lowgír semi-float 14 bolti að aftan og 10 bolti að framan..
hann kom nýr til landsins og var strax settur í einkennisbúning , og þjónaði lögreglunni á Hólmavík í 10 ár skilst mér.
Setti mig í samband við ''boys in blue'' á Hólmavík og það hringdi einhverjum bjöllum að heira um T-500 , þeir réðust á skjalaskápinn og grófu upp myndir af gripnum og eiga þeir stórt hrós fyrir að nenna að standa í þessu rugli fyrir mig.
Image
Image
Image
svo fer hann á eftirlaun hjá lögreglunni.... á einhverjum tímapunkti missir hann einkennisbúninginn og orginal grillið en fær í skaðabætur hnausþykkt lag af rauðum skipagrunni...
þegar ég eignast bílinn í Desember 2012 er hann búinn að láta sér leiðast á bílaplani á Selfossi í þónokkur ár... og orðinn frekar dapur skrokkurinn á honum.. lítið annað að gera en að skrúbba hann aðeins upp ... en alger óþarfi að vinna þetta í silkihönskum samt sem áður.
stóri rokkurinn , trebbinn og trukkalakkið eru leikmennirnir í þetta skiptið ...
Image
Image
Image
Image

og þá er komin mynd á þetta..... spurningin er hver tekur við þar sem ég þarf að selja gripinn á þessum tímapunkti.
Image
Image
Image

Re: 1982 Chevy Suburban Diesel

Posted: 05.feb 2013, 22:01
frá stebbiþ
Vona að gamli höfðinginn komist í góðar hendur. Leitt að þú skulir þurfa að selja hann.

Kv, Stebbi Þ.

Re: 1982 Chevy Suburban Diesel

Posted: 05.feb 2013, 22:38
frá Offari
Flottur bíll hjá þér. Áttu einhverjar myndir innan úr honum?

Re: 1982 Chevy Suburban Diesel

Posted: 05.feb 2013, 23:01
frá magnusv
skoðaði þennan um helgina sá ekki upplýsingarmiðan í glugganum þannig ég vissi ekki að hann væri til sölu..

hvað villtu fá fyrir hann?

Re: 1982 Chevy Suburban Diesel

Posted: 05.feb 2013, 23:25
frá monster
væri lika til i að fa að vita hvað þessi kostar

Re: 1982 Chevy Suburban Diesel

Posted: 06.feb 2013, 00:14
frá Gilson
hrikalega töff trukkur. Hvar á selfossi stóð hann ?

Re: 1982 Chevy Suburban Diesel

Posted: 06.feb 2013, 13:10
frá -Hjalti-
Flottur hjá þér Bjarki ;) Alltaf sjarmi yfir gömlum C/k & Suburban

Gilson wrote:hrikalega töff trukkur. Hvar á selfossi stóð hann ?


Er nokkuð viss að hann hafi staðið við Nýju Gagnheiðina