Síða 1 af 1

Pæjan mín

Posted: 23.sep 2012, 18:52
frá pallihjaltalin
Þetta er Pajero langur 2.5 dísel sjálfskiptur.
38'' Arctic trucks léttmálmsfelgur.
Læstur að aftan 0g 4.88 hlutföll.
Loftdæla,vhf og allt þetta sem þarf.

Re: Pæjan mín

Posted: 23.sep 2012, 18:56
frá pallihjaltalin
DSC04371.JPG

Re: Pæjan mín

Posted: 23.sep 2012, 18:57
frá pallihjaltalin
DSC04372.JPG

Re: Pæjan mín

Posted: 23.sep 2012, 18:57
frá pallihjaltalin
DSC04373.JPG

Re: Pæjan mín

Posted: 23.sep 2012, 18:58
frá pallihjaltalin
DSC04367.JPG

Re: Pæjan mín

Posted: 23.sep 2012, 19:16
frá Mongó888
til hamingju með nýja bílinn Gamli

Re: Pæjan mín

Posted: 23.sep 2012, 20:04
frá pallihjaltalin
þakka þéééééééér Ibbi minn

Re: Pæjan mín

Posted: 23.sep 2012, 20:46
frá Aparass
Snyrtilegur og flottur bíll!

Re: Pæjan mín

Posted: 24.sep 2012, 00:39
frá pallihjaltalin
Takk fyrir það

Re: Pæjan mín

Posted: 24.sep 2012, 00:49
frá btg
Flottur. Átti einn svona með sama krami og keyrði hann um 270 þús þangað til ég skipti upp. Sé hann ennþá á götunni. Eðalvagnar, til hamingju með þennan.

Re: Pæjan mín

Posted: 24.sep 2012, 05:10
frá Jóhann
Til hamingju með bílinn flottur bíll, ég átti þennan einu sinni var þá á 35"fór víða á honum og sá alltaf eftir honum, en búin að eiga tvær pæjur síðan.

Re: Pæjan mín

Posted: 16.okt 2012, 14:51
frá HaffiTopp
pallihjaltalin wrote:Þetta er Pajero langur 2.5 dísel sjálfskiptur.
38'' Arctic trucks léttmálmsfelgur.
Læstur að aftan 0g 4.88 hlutföll.
Loftdæla,vhf og allt þetta sem þarf.


Ertu alveg viss um að það séu alveg örugglega 4.88 hlutföll í honum?

Re: Pæjan mín

Posted: 16.okt 2012, 22:24
frá Jóhann
Ég er nokkuð viss um að það er 5,29 í honum

Re: Pæjan mín

Posted: 16.okt 2012, 22:40
frá HaffiTopp
Ég er nokkuð viss um það líka :)

Re: Pæjan mín

Posted: 17.okt 2012, 22:25
frá pallihjaltalin
Nú okay ég var ekki búinn að skoða það. Fyrri eigandi sagði mér að það væri 4,88

Re: Pæjan mín

Posted: 17.okt 2012, 22:36
frá Aparass
Stendur í húddinu.

Re: Pæjan mín

Posted: 27.okt 2012, 10:28
frá pallihjaltalin
Jæja skiptingin fór í pæjunni svo ég keypti annan í varahluti og ætla að setja 5g kassa en ætla að nota millikassan af sjálfskiptingunni sem er með lægra hlutfalli. Svo er ég kominn með 40mm plastkubb sem ég ætla að nota sem millilegg fyrir short shifter.
Stuðaradraslið er að fara af honum að framan í heilu lagi og er að smíða rör í staðinn.

Re: Pæjan mín

Posted: 27.okt 2012, 23:30
frá Stebbi
pallihjaltalin wrote:.... en ætla að nota millikassan af sjálfskiptingunni sem er með lægra hlutfalli.


Ef það er ekki búið að setja í hann sérsmíðað 4:1 hlutfall þá tekur því ekki að standa í þessu. Munurinn á beinskipta og sjálfskipta er svo lítill að hann er ekki finnanlegur, hvorugur fer yfir 2:1.

Re: Pæjan mín

Posted: 27.okt 2012, 23:46
frá olihelga
Einkennilegur vagn þar sem ég vissi ekki til að það hafi verið til 2,5 sjálfskiptur í þessu útliti. Man eftir að hafa séð einn og þar var mér bent á að sjálfsiptingin hafi verið mixuð í.

Re: Pæjan mín

Posted: 27.okt 2012, 23:52
frá Stebbi
Bæði gamli bíllinn og þetta boddý voru til 2.5 sjálfskiptir en ekkert sérstaklega mikið af þeim.

Re: Pæjan mín

Posted: 28.okt 2012, 14:07
frá HaffiTopp
Galloperinn líka til sjálfskiptur með þessari vél. Húddið á þessum rauða sem þráðurinn fjallar um er reyndar af 2,8 bíl. Hvað veit maður fyrir víst að sé orginal í svona bílum ;)

Re: Pæjan mín

Posted: 28.okt 2012, 15:03
frá pallihjaltalin
Nei þetta er original húddið það er búið að mixa skópið á enda rammskakkt

Re: Pæjan mín

Posted: 28.okt 2012, 15:11
frá Jóhann
Hann var sjálfskiptur þegar ég átti hann og var alveg óbreittur þegar ég fékk hann hann var með öllu því sem er í 2,8 bílnum nema vélarstærð interkolerinn er á sama stað það er bara rás í húddinu í stað skópsins á 2,8 svo er minni hásing og lægra hlutfall.
Hann var með stillanlegum dempurum og fjaðrandi sætum að framan .