Síða 1 af 1

Land Rover Defender 110 '98

Posted: 14.aug 2012, 19:13
frá sigurdurk
Hér er Land-Roverinn minn sem ég eignaðist í byrjun sumars og er búinn að vera í hægri uppgerðþ

Fékk bílinn í frekar slöku ástandi og með bognar undirlyftustangir eftir að tímareim slitnaði.
byrjaði á að fá annan mótor og setti hann.
En svo kom í ljós að það var farin heddpakning í honum.
Þá var heddið rifið af og ventlar slípaðir, stálheddpakning sett í staðin og ventlabil stillt.
Hann gengur eins og klukka eftir það en þjáðist af svakalegri jeppaveiki í kringum 70 þá ætlaði hann að takast á loft ! .
Þá var farið í að skipta um allar fóðringar og gúmmí í bílnum og er hann allt annar eftir það.
Svo var það þrif að innan og það þýddi ekkert minna en skrúbbur,brunaslanga og smúlaður að innan,
eins og sönnum Land-Rover sæmir hehe.
Í fyrsta prufurúntinum sneri ég síðan í sundur afturdrifskaptið í honum og þurfti að smíða mér nýtt.

Hér er svo listinn yfir það sem búið er að gera eða er eftir að gera fyrir hann.

Kastarar Framan (X)
Þokuljós ( )
Fóðringar (X)
Laga Brettakanta (/)
Breikka felgur í 18" ( )
44" ( )
Færa afturhásingu 6cm ( )
Reimdrifin Loftdæla (X)
Úrhleipibúnaður ( )
1:4.70 Hlutföll ( )
Skipta út sætum ( )
Leggja aukarafkerfi ( )
Stærri toppgrind ( )
Skipta um afturrúðu (X)

Svona var hann þegar ég fékk hann
Image

Heddpakningin
Image

Þarna er fyrsti prufurúnturinn
Image

Drepleiðinleg Kantavinna
Image

Toppgirnd af Series III mátuð :)
Image

Og síðan er það 44" breyting byrjuð
Image

Re: Land Rover Defender 110 '98

Posted: 14.aug 2012, 20:49
frá hobo
Flott stöff!

Re: Land Rover Defender 110 '98

Posted: 14.aug 2012, 21:43
frá joisnaer
fer honum vel að vera á dekkjunum mínum ;)

Re: Land Rover Defender 110 '98

Posted: 24.aug 2012, 18:18
frá sigurdurk
Ef einhver hefur áhuga á þessum þá er hann jafnvel falur, er heitur fyrir skiptum á stórum amerískum 38" - 46" jeppa

Re: Land Rover Defender 110 '98

Posted: 24.aug 2012, 23:34
frá stebbi1
í hvaða ástandi og á hvaða verði?

Re: Land Rover Defender 110 '98

Posted: 25.aug 2012, 18:56
frá sigurdurk
stebbi1 wrote:í hvaða ástandi og á hvaða verði?

hann er skoðaður 13 en vantar á hann brettakantana óska eftir tilboði/skiptum í pm bara