Síða 1 af 2

Jeep Willys 1963

Posted: 05.aug 2012, 12:30
frá Gunnar G
Image

Image

Image

Image

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 06.aug 2012, 17:24
frá Hrannar Ingi
Flottur !

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 06.aug 2012, 17:46
frá silli525
Sæðislegur...:)

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 06.aug 2012, 18:19
frá LFS
gaman að sjá að þu ert að taka þessi ogeðslegu aukaljós af hann a eftir að look-a

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 07.aug 2012, 16:37
frá StefánDal
Þessi er flottur! Vel spilað hjá þér að fjarlæga þessi ljós af brettunum. Þarftu samt ekki að koma þeim fyrir á stuðurunum fyrir skoðun amk.?
Já og endilega segðu okkur meira um bílinn:)

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 07.aug 2012, 21:13
frá Gunnar G
Heyrðu það er 307 chevy í honum eins og er og verður í vetur! Verið að smíða 383 í skúrnum í róleg heitunum 350 sjálfskipting sem ég er ekki mjög heitur fyrir( vil hafa beinskiptan) próf þetta í vetur.Sagt að það sé 60 land cruz framhásing og dana 44 afturhásing veit ekki hlutföllinn væri gaman að fá að vita það ef einhver vissi!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 18.aug 2012, 08:58
frá Gunnar G
Image

Jæja búið að taka ógeðsljósin af

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 23.aug 2012, 09:37
frá Groddi
StefánDal wrote:Þessi er flottur! Vel spilað hjá þér að fjarlæga þessi ljós af brettunum. Þarftu samt ekki að koma þeim fyrir á stuðurunum fyrir skoðun amk.?
Já og endilega segðu okkur meira um bílinn:)


Ef að kastararnir á stuðaranum eru aðalljós (og það er ekki meira en 50cm frá ystu brún bílsíns að ljósunum miðjum) þá sleppur hann svona í gegnum skoðuna, annars er nóg fyrir hann að setja litlar díóður í brettakantana.

Groddi

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 14.sep 2012, 21:52
frá Gunnar G
Jæja ákvað að smíða eitthvað til að binda í
Image

Image

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 15.sep 2012, 12:28
frá Gudni Thor
Flott hjá thér ad smída e-h til ad binda í en tad er mín reynsla ad willys eru samt ekkert gódir í ad draga virdast bara vera of léttir;)

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 15.sep 2012, 18:55
frá Gunnar G
En það kemur fyrir að maður þarf að láta draga sig!
Ákvað að sýna ykkur hvernig þetta þetta lýtur út full klárað
Image

Image

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 15.sep 2012, 21:20
frá Kiddi
Gunnar G wrote:Heyrðu það er 307 chevy í honum eins og er og verður í vetur! Verið að smíða 383 í skúrnum í róleg heitunum 350 sjálfskipting sem ég er ekki mjög heitur fyrir( vil hafa beinskiptan) próf þetta í vetur.Sagt að það sé 60 land cruz framhásing og dana 44 afturhásing veit ekki hlutföllinn væri gaman að fá að vita það ef einhver vissi!


Éééég myndi gefa skiptingunni séns. Það er nógu fjandi mikið að gera undir stýri á svona dóti þó maður bæti ekki við að þurfa að eiga við einhverja gírstöng líka, og ekki bætir að kassarnir sem eru í boði (á mannsæmandi kjörum!) og þola svona rellur eru... já, ekki alveg það sem maður myndi kalla liprir!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 15.sep 2012, 21:29
frá -Hjalti-
Gæjalegur Willys !

Þú átt eftir að bölva þessari staðsetningu á tjakknum þegar þú þarft að kafa eftir honum í krapapitt :)

Gunnar G wrote:Image

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 15.sep 2012, 21:43
frá Gunnar G
Hugsaði það strax ! Ákvað að láta slag standa!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 16.sep 2012, 00:15
frá stebbi1
Voðalega hefur þetta nú tekið á, fór úr einum becks í kassa af 33cl gyltum, og svo bara 0,5L mix. hvað var í mix flöskunni?
Annars nettur bíll

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 20.sep 2012, 20:21
frá Gunnar G
Jæja ákvað að kíkja á miðstöðvar mál í jeppanum komst að afhverju ég fékk valla blástur á framrúðuna 2 15mm slöngur fyrir blásturinn þangað! skipti þeim út fyrir 2 60mm barka sjáið hver mismunurinn er á myndinni!!

Image

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 21.sep 2012, 13:42
frá -Hjalti-
áttu ekki mynd af honum á hlið :)

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 21.sep 2012, 16:56
frá Steini
ég vona að þú hafir fengið góðan koss, konfekt og rós fyrir að losa þetta ljósa drasl af köntunum!
flottur bíll, staðsetningin á drullutjakknum hefur mjög líklega jafn marga kosti og galla.

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 21.sep 2012, 18:20
frá Gunnar G
Hérna er mynd af hliðinni reyndar áður en ég tók ljósinn af!

Image

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 22.sep 2012, 02:59
frá Stjáni
geggjaður! vona að það verði góðir skaflar í vetur fyrir þig til að sprauta í :D

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 22.sep 2012, 16:05
frá Stjáni Blái
Kiddi wrote:
Gunnar G wrote:Heyrðu það er 307 chevy í honum eins og er og verður í vetur! Verið að smíða 383 í skúrnum í róleg heitunum 350 sjálfskipting sem ég er ekki mjög heitur fyrir( vil hafa beinskiptan) próf þetta í vetur.Sagt að það sé 60 land cruz framhásing og dana 44 afturhásing veit ekki hlutföllinn væri gaman að fá að vita það ef einhver vissi!


Éééég myndi gefa skiptingunni séns. Það er nógu fjandi mikið að gera undir stýri á svona dóti þó maður bæti ekki við að þurfa að eiga við einhverja gírstöng líka, og ekki bætir að kassarnir sem eru í boði (á mannsæmandi kjörum!) og þola svona rellur eru... já, ekki alveg það sem maður myndi kalla liprir!


Ég er sammála þessu, tala nú ekki um fyrst það er verið að græja stroker sem á að fara í hann, þar erum við að tala um hvað, auðveld 350-400 hestöfl..! Og þá ætti skiptingin að njóta sín vel, hvernig kassa hafðiru annars hugsað þér að setja í hann ef þú endar á að fara þæ leiðina ? Mér persónulega lýst vel á Ax-15 úr Cherokee, hann á að vera býsna sterkur, lipur, léttur og 5 gíra. Eitt að lokum, ertu með upplýsingar um þennan 383 mótor sem er í vinnslu ?

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 22.sep 2012, 17:25
frá Gunnar G
Heyrðu ég var að spá í t-5 borg-warner . Var ekki ax-15 með svo veikum bakkgír en kemur vel til greina líka! Það er að segja ef maður verður ekki sáttur með skiptinguna!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 22.sep 2012, 21:15
frá Svenni Devil Racing
Gunnar G wrote:Heyrðu ég var að spá í t-5 borg-warner . Var ekki ax-15 með svo veikum bakkgír en kemur vel til greina líka! Það er að segja ef maður verður ekki sáttur með skiptinguna!


Þú brýtur nú T5 bara áður en þú setur í gír með 383 og 38" dekk , eða beygir skifti gaflana , , menn hafa verið að brjóta þetta með 305 eins smjör ,

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 25.sep 2012, 10:02
frá steinistimpill
þegar ég kaupi þennan var mér sagt að það væri 4:10 drif í honum og djöfull er gott að það sé búið að taka þessi ljotu ljós af brettunum það var altaf á dagskrá hjá mér en varð aldrei úr því en gott að hann er kominn á gott heimili sé mikið eftir þessum

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 25.sep 2012, 12:22
frá Freyr
Ég skoðaði þennan jeppa fyrir nokkrum árum með það í huga að kaupa hann. Þá átti hann maður í Grafarvogi, er ekki viss með nafnið en mig minnir að hann heiti "Konni". Sá talaði um að það væru ekki sömu hlutföll í fram og afturhásingu og vegna lítils úrvals í toyota framhásinguna væri erfitt að leiðrétta það, sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 25.sep 2012, 19:24
frá Gunnar G
Ég skoðaði þennan jeppa fyrir nokkrum árum með það í huga að kaupa hann. Þá átti hann maður í Grafarvogi, er ekki viss með nafnið en mig minnir að hann heiti "Konni". Sá talaði um að það væru ekki sömu hlutföll í fram og afturhásingu og vegna lítils úrvals í toyota framhásinguna væri erfitt að leiðrétta það, sel það ekki dýrara en ég keypti það.


Það finnst mér hæpið að einhver geri það en gæti verið að hann sé á 4:10 að aftan og 4:11 að framan því að 4:11 fæst í framhásinguna en það er bara svipað og gamli bronco 4:09 og 4.10 var í einhverjum af þeim! Steini þegar þú varst að nota hann varstu eitthvað var við að hann væri á allt öðru hlutfalli framan og aftan!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 25.sep 2012, 20:15
frá Freyr
Hlutföllin í gamla bronco voru já ekki nákv. þau sömu fr. og aft., það var örlítið hærra drif að framan og það var gert til að auka rásfestu í akstri í fjórhjóladrifinu. Sem dæmi er ég með 4,56 framdrif og 4,57 afturdrif í mínum cherokee. Ef þessu er hinsvegar víxlað og framdrifið örlítið lægra er hætt við að bíllinn sé mjög leiðinlegur í hálku í 4x4. Ég var að spá í að lækka hjá mér drifin í 4,88 en hætti við þar sem það var bara fáanlegt 4,86 en ekki 4,88 í 9". Þá hefði ég verið með 4,86 að aftan og 4,88 að framan og það vildi ég ekki.

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 26.sep 2012, 15:08
frá Dodge
Broco hönnuðir lögðu nú ekki mikið á sig til að auka rásfestu :)

Þetta stafar held ég í flestum tilfellum af því að það er ekki hægt að hafa sama tannafjölda á pinjón í öllum hásingum og því er þetta yfirleitt einhvernvegin svona með smá mismun.

Td geturu verið með í annari hásingunni 41 á kambi og 9 á pinjón - 4.5555
og í hinni 50 á kambi og 11 á pinjón - 4.54545.. minnir að það hafi verið þannig í raminum hjá mér.

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 28.okt 2012, 20:29
frá Gunnar G
www.facebook.com/photo.php?v=4323169529253

jæja setti nýtt hjlóðkerfi undir. Aðeins meira hljóð í honum ferguson kútarnir klikka ekki

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 24.nóv 2012, 10:44
frá Gunnar G
Image


Jæja þá kom jólagjöfinn í 383 mótorinn sem er verið að smíða!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 10.des 2012, 22:07
frá Gunnar G
Image


Jæja þá er djásnið komið á 39,5" irok og því líkur munur að á bílnum!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 11.des 2012, 09:41
frá Stjáni Blái
Lýst vel á þetta, Hvaða hedd verða á nýju vélinni ?

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 11.des 2012, 10:36
frá StefánDal
Verður bara betri og betri:) Hvað er hann langur á milli hjóla?

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 11.des 2012, 10:55
frá Gunnar
Gunnar G wrote:http://www.facebook.com/photo.php?v=4323169529253

jæja setti nýtt hjlóðkerfi undir. Aðeins meira hljóð í honum ferguson kútarnir klikka ekki


hvar fékkstu ferguson kútana og hvað eru þeir sverir?

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 11.des 2012, 17:15
frá Gunnar G
Kútarnir Fást hjá Vélfang það er 2" inn í þá grennra út en ég sveraði það bara uppí 2" kemur bara vel út!
Ég er ekki búinn að ákveða hvaða hedd ég ætla að setja á mótorinn!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 16.des 2012, 17:43
frá Gunnar G
Ein svona til gamans

Image

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 16.des 2012, 17:49
frá silli525
Gunnar G wrote:Ein svona til gamans

Image



Settu nù mynd af ferdafèlõgunum, Sérstaklega af pæjunni!!!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 16.des 2012, 18:01
frá kjartanbj
Misstuð af skemmtilegri ferð yfir jökulinn, helvíti þungt færi á köflum, kúludráttur langleiðina , skildum musso eftir bilaðan ca 6km frá skálpanesi

fóruð þið eitthvað annað eftir að þið sneruð við

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 16.des 2012, 18:16
frá Gunnar G
Tókum stefnuna heim fundum nokkrar snjóbreiður og brekkur til að djöflast í! Var rosafeginn að við snérum við þegar það sprakk vökvastýrisslanga hjá mér! Þrýstislangan náði að skít mixa það og keyrði heim! Hefði ekki viljað lenda í því uppá jökli!

Já ég frétti að það hefði verið þungt færi hjá ykkur! Hefði verið gaman að fara yfir með ykkur!

Re: Jeep Willys 1963

Posted: 29.des 2012, 10:01
frá Gunnar G
Image

HAHAHAH snjórinn er kominn!!!!