Síða 1 af 1

Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 09:02
frá plummerinn
Góðann Daginn.. verður maður ekki að vera með og sýna sitt. :)

ég verslaði mér Landcruiser á 38" dekkjum í byrjun sumars 2011 svona til að draga hjólhýsið og kannski komast í mörkina á góðum degi en svo fór þetta aðeins úr böndunum hehehe..
ég ákvað að demba mér í að fara í næstu skóstærð og þar sem ég er búinn að reyna það að eiga svipaðann bíl á 44" cepek dekkjum kom ekkert annað til greina en að fara bara alla leið og í 46" mickey thompson.

ferlið tók c,a einn mánuð með hjálp virkilega góðra vina . bíllinn var auðvitað 38" breyttur og með aukatank og öllum auka raflögnum. Hérna er listi yfir það helsta sem er í bílnum og hvað var gert.

ný nelgd 46" dekk á 16 x 18" breiðum isuzu stálfelgum með bedlock.
framhásing smíðuð upp á Ljónstöðum . 9,5 patrol köggull . sérsmíðaðir hertir króm innri öxlar og hertir króm 6kúluliðir frá Longfield superaxles.
Arb loftlás í framhásingu.
4:88 hlutföll
intercooler og aukakælir f skiptingu.
Afturhásing færð aftur um 13 cm
allt nýtt í bremsum . diskar .klossar og allar lagnir .
heilmálaður í orginal lit.
sérsmíðaðir kantar. 44" kantar sem voru breikkaðir um 8 cm og lengdir um 10 .
trefjaplast afturhleri frá Smára í Trefjaplasttækni
filmaður hjá Fagform á Selfossi
Old man emu gormar með 7 cm lifti frá Bílabúð Benna.
Koni demparar frá N1
stýristjakkur frá Landvélum
nýr vatnskassi
stærri Túrbína frá Tryggva í Stýrivélaþjónustunni .
3" ryðfrítt púst með 3,5 cherry bomb kút.
nýr 120 lítra aukatankur
Auto gauge afgas mælir . ásamt boost mælirs og hitamælis á skiptingu.
Xenon í lága og háa geisla.
led afturljós.
50 l/min olíudæla til að dæla á milli bíla og milli tanka.

man nú ekki eftir meiru en þetta er amk það helsta. Hann kemur fanta vel útá fjöllum og er stórgóður í keyrslu beygjuradíus er nánst orginal enda var klippt vel úr og þar að auki stendur hann hátt .
( á þó eftir að setjast niður á gormunum með tímanum )
eyðslan er um 18 til 20 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri . sem mér finnst ekki mikið miðað við uppskrúfaðann bíl á 46" sem mokvinnur.
Hérna er linkur á breytingaferlið . albúmið á að vera opið öllum
http://www.facebook.com/media/set/?set= ... 258&type=3

Kv Haukur

Re: Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 09:31
frá Árni Braga
Töff tæki.
til hamingju með að vera komin í stóru deildina.

Re: Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 09:38
frá AgnarBen
Flottur bíll, til hamingju, alltaf gaman að sjá menn gera hlutina almennilega :)

Re: Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 09:39
frá steinarxe
Bara flottur krúser hjá þér,þú kemst upp afleggjarann á þessum;)

Re: Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 09:39
frá ellisnorra
Þetta er virkilega flott. Innilega til hamingju með nýja bílinn fyrir hjólhýsið :)
Þú kannski sýnir okkur breytingar á hjólhýsinu líka, græja glussadrif og 46" undir það? :)
Ertu búinn að reikna saman kostnað við þetta?

Re: Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 13:29
frá Hjörvar Orri
Þetta er flott græja, til hamingu með hann. Jeppar verða alltaf tuddalegri á "46 en "44. En smá forvitni, hvað kostaði þessi breyting?

Re: Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 14:01
frá HaffiTopp
Virkilega flottur bíll og vel breytt að því virðist vera :) Hvar keyptirðu efnið í pústkerfið? Til lukku með þrusujeppa.
Kv. Haffi

Re: Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 17:01
frá kjellin
flottur krúser hjá þer, , en hverning erþað áttir þú ecolinerinn með þessu númeri eða ?

Re: Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 20:32
frá plummerinn
Takk fyrir góðar kveðjur strákar. hmm.. hjólhýsið er til sölu , með líterinn að nálgast 300 kr , þá ætla ég frekar að nýta dropana í fjallaferðir.
Efnið í pústið var keypt í metal . en vinnan var þvíllík. . það er ekkert grín að smíða svona púst. hehe..
Og já ég átti econlininn þegar hann var m þessu númeri . vissi að ég myndi fara í stóru deildina aftur svo að ég hélt númerinu .. enda nokkuð gott númer.. hehe

ehhh kostnaðurinn er orðinn aaaaansi mikill þrátt fyrir að keypt vinna var í lágmarki.. best að vera ekkert að taka það til .

Gleðilega páska..

Re: Landcruiser "46

Posted: 05.apr 2012, 23:00
frá Maggi
Flottur bíll.

Hvar fékkstu afturljósin?

kv
Maggi

Re: Landcruiser "46

Posted: 06.apr 2012, 19:24
frá Dúddi
Sæll, hvernig er afstaðan á togstönginni að framan, ertu með einhvern hækkunnar arm? Mér finnst þetta óþarflega bratt hjá mér og ég er ekki frá því þinn bíll sé heldur hærri. Ertu kannski með eitthvað boddylift? Kv Dúddi

Re: Landcruiser "46

Posted: 07.apr 2012, 02:35
frá Turboboy
Sæll, flott breyting, enn agalega finnst mér þessi kanntar klunnalegir, eða felgurnar ekki nógu útvíðar til að fylla upp í þá...

Re: Landcruiser "46

Posted: 07.apr 2012, 02:56
frá LFS
hvernig soundar hann með 3" púst og cherrybomb ?

Re: Landcruiser "46

Posted: 07.apr 2012, 09:38
frá Þorsteinn
himmijr wrote:Sæll, flott breyting, enn agalega finnst mér þessi kanntar klunnalegir, eða felgurnar ekki nógu útvíðar til að fylla upp í þá...


ég er nú svo skrítinn að ég vill hafa kanntana utanum dekkin og láta kanntana þjóna þeim tilgangi að hylja dekkin þannig mér finnst þetta bara akkurat breiddin.

svo verður að spá í því að þegar bíllinn fer að misfjaðra þá er alveg ótrúlegt hvað það er lítið pláss eftir i hjólskálunum, 46" er svo breið þess vegna þurfa bílarnir alltaf að vera aðeins hærri en ef þetta væri td; 38" bíll

Re: Landcruiser "46

Posted: 07.apr 2012, 10:01
frá plummerinn
sælir..

afturljósin eru af ebay.

togstöngin er lárétt . var smíðaður turn á hásinguna.. sést á á einhverjum af smíðamyndunum

soundið er flott.. alveg passlegt bara.. amk var ég að koma úr 14 tíma ferð í gær og ég var alls ekki þreyttur á hávaða..

Hehehe... já það eru skiptar skoðanir með kantamál í dag.. en það er nú þannig að flestir ef ekki allir 46" 80 cruiserar eru með 44" kanta.. ég réðst í að breyta þeim einnig til að koma þeim ofar á bílinn . þið sjáið að kantarnir ná uppá stöðuljós að framan. ég er ekki með neina boddýhækkun . bara gorma með 7 cm lifti en það var búið að færa gormaskálar neðar í þessari 38" breytingu. en kantanir hylja munstrið á dekkjunum ekki banann svo að þetta á að vera eftir bókinni .. ( svo er líka agalega leiðinlegt að þrífa svona skrímsli svo að minni drulla er bara kostur.. ) :D

Re: Landcruiser "46

Posted: 07.apr 2012, 12:29
frá Hjörturinn
ég er nú svo skrítinn að ég vill hafa kanntana utanum dekkin og láta kanntana þjóna þeim tilgangi að hylja dekkin þannig mér finnst þetta bara akkurat breiddin.


Er einmitt á þessu sjálfur, munar alveg svakalega hvað maður þarf að þrífa bílinn sjaldnar heldur en þegar dekkin ná örlítið útfyrir kantana.

Re: Landcruiser "46

Posted: 07.apr 2012, 16:54
frá Hagalín
Til lukku með þennan hjá þér. Lookar mjög vel.... Komin einhver alvöru reynsla á fjöllum?

Er mikill munur á túrbínunni frá TNT?

Re: Landcruiser "46

Posted: 07.apr 2012, 17:31
frá plummerinn
takk f það .. já það er komin fín reynsla á hann . í miklum átökum hvort sem að draga eða í þungu færi. allt bara virkar og kemur vel út.. eina sem gæti mögulega vantað væri lo gírinn .

Re: Landcruiser "46

Posted: 07.apr 2012, 17:32
frá plummerinn
og já .. það munar helling um túrbínuna. :)