Toyota ævintýrið

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 11.mar 2026, 21:11

Ég kemst ekki með í stórferð, enda bíllinn langt á eftir áættlun þannig að það var eitthvað potað í smotterý, uppfærði auxbeam brakkettið og er að verða helvíti ánægður með það, en tókst ekki allveg að hitta á rétta gráa litin, en þetta venst þó, reikna samt með að ég haldi áfram að reina að finna samsvarandi gráan lit.
Næst er bara að reyna að finna leið til að herma eftir auxbeam límmiðunum til að græja á þetta, en ég var ekki allveg ánægður með neitt af þessum límmiðum sem fylgdu með.


auxbeambrakk1.jpg
auxbeambrakk1.jpg (644.94 KiB) Viewed 5734 times

auxbeam brakk2.jpg
auxbeam brakk2.jpg (291.34 KiB) Viewed 5734 times

auxbeam.jpg
auxbeam.jpg (522.95 KiB) Viewed 5734 times


fór svo að máta við hásinguna ný bremsurör og slöngur.
Bremsuror.jpg
Bremsuror.jpg (1.13 MiB) Viewed 5734 times



Mig langaði að einfalda bremsukerfið töluvert, en mér var góðfúslega bent á það, að þrátt fyrir "breytta bifreið" þá væri samt krafa um að ABS kerfið væri í lægi fyrir skoðun. mig minnir nú samt að þegar ég renndi síðast yfir skoðunarhandbókina þá hefði ég skilið hana sem svo að ef bíllin væri með breytingaskoðun/með fallega rauða miðann sem segir að aksturseiginleikum hafi veirð breytt - þá mætti abs ljósið loga / mætti ég forrita ABS heilan í burtu.

er einhver ykkar sem er með þetta á hreinu?
Viðhengi
Festing_vx.stl
(3.68 MiB) Downloaded 225 times
frontur_vx.stl
(40.02 MiB) Downloaded 235 times



User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1943
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Sævar Örn » 11.mar 2026, 22:19

Sæll þetta lofar góðu hjá þér það er ekki gerð athugasemd í skoðun hérlendis við logandi ABS ljós í breyttum torfærubifreiðum fyrst skráðum fyrir 2013


abs skhb.PNG
abs skhb.PNG (82.88 KiB) Viewed 5728 times
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

jongud
Innlegg: 2732
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá jongud » 12.mar 2026, 08:55

Flott þetta, gott að vita af .stl skránum ef maður ætlar að setja eitthvað þarna.
Sjálfum finnst mér fínt að vera með ABS kerfið virkt, það virkar fínt með 40 tommu dekkjum, en portal-hásingar eru kannski fullmikið bras.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 12.mar 2026, 18:16

Takk fyrir þetta Sævar, þetta var akkurat það sem mig minnti að ég hefði lesið - vissi reyndar ekki af þessum aldursfordómum, þeir sem bentu mér á þetta eru að vísu allir á nýrri bíl en 2013.

Vissulega er ABS kerfið öryggistól og allt það og gott meðan það virkar, en ég hef því miður lent óþæginlega oft í því á gömlum breyttum bílum, að það gerir bara illt verra.
Nú síðast bara á Nissaninum, þá lenti ég í því að ABS kerfið ruglaðist eitthvað og fór alltaf á þegar ég reyndi að bremsa.en til lukku þá gerðist þetta um miðja nótt og það var sem betur fer engin umferð um gatnamótin en ABS kerfið kom í veg fyrir að nokkuð gæti gerst þegar stigið var á bremsuna. það var sprunga/gap í tónhringnum sem mig grunar að hafi valdið þessu, en eftir þetta fór abs öryggið úr og var bara sett í rétt á meðan á skoðun stóð.

lennti í svipuðu í cherokee sem ég átti, en hann var alltaf hundleiðinlegur með ABS á malarvegum/slóðum.


jongud wrote:Flott þetta, gott að vita af .stl skránum ef maður ætlar að setja eitthvað þarna.
Sjálfum finnst mér fínt að vera með ABS kerfið virkt, það virkar fínt með 40 tommu dekkjum, en portal-hásingar eru kannski fullmikið bras.

í sjálfusér er þetta ekkert mál þar, það er nýr tónhringur í portölunum og það fylgdu með framlengingar á ABS snúruna.

Ég get látið þig fá .obj (mesh skrárnar frá 3d-skönnuninni) eða .3mf fusion skránna ef þú vilt dunda við að hanna þína eigin útfærslu eða setja eitthvað annað í þetta hólf - spjallið leyfir ekki að setja inn .obj skrár

stokkur.jpg
stokkur.jpg (107.27 KiB) Viewed 5680 times

klinkbox.jpg
klinkbox.jpg (39.78 KiB) Viewed 5680 times

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 07.apr 2026, 20:59

Páskarnir voru þá notaðir til að koma portaldótinu fyrir. vissi svo sem fyrirfram að hann yrði frekar breiður/útvíður að framan, en þetta virkar mikið meira í raun en ég gerði ráð fyrir - verður eitthvað bras með þessar klassísku íslensku felgur sem eru vanalega með fremur lítið backspeis, en viðmiðunar felgurnar sem mér var gefið upp voru 17x8J með að lágmarki ET+30 - þ.e. c.a. 14CM backspeis að lágmarki. þær felgur sem ég hef séð hvað mest af í yfirbreydd eru bara með frá 8.7 til 10sm backspeisi. Eftir að hafa ráðfært mig við nokkra "sérfræðinga" í breytingum voru þeir flestir á því að taka AT 12" felgurnar, og breikka þær að aftanverðu, þá næðust þær úr 9.3sm backspeisi yfir c.a 14,5sm.

Allavegana, þá mundi ég eftir að taka nokkrar myndir af ferlinu.

byrjað var að taka lokin af portölunum að aftan og renna sæti og bora/snitta fyrir legris nippli.

rennt f urhleypinippli.jpg
rennt f urhleypinippli.jpg (469.1 KiB) Viewed 5278 times

urhleypinippill i flans framan.jpg
urhleypinippill i flans framan.jpg (420.94 KiB) Viewed 5278 times

urhleipinippill i framportal.jpg
urhleipinippill i framportal.jpg (469.41 KiB) Viewed 5278 times

borad fyrir urhleypingu i aftur portal.jpg
borad fyrir urhleypingu i aftur portal.jpg (799.49 KiB) Viewed 5278 times




svo var pallinum kippt af, þæginlegur bíll að gera það á að mörgu leiti, 6 skrúfur í palli, og ljósin tekin frá, bensínstútur og annað situr bara í gúmmígrommettu þannig að það þarf ekkert að aftengja þar. og fyrst pallurinn var kominn af, þá var um að gera að rústbanka, sýruþvo, epoxygrunna og mála undir pallinum.

mynd fyrir breytingu.jpg
mynd fyrir breytingu.jpg (687.13 KiB) Viewed 5278 times

pallur tekinn af.jpg
pallur tekinn af.jpg (690.81 KiB) Viewed 5278 times

fyrir.jpg
fyrir.jpg (906.74 KiB) Viewed 5278 times

rustbannkad og syruthvegid 2.jpg
rustbannkad og syruthvegid 2.jpg (877.57 KiB) Viewed 5278 times

rustbannkad og syruthvegid.jpg
rustbannkad og syruthvegid.jpg (744.44 KiB) Viewed 5278 times

epoxy grunnad.jpg
epoxy grunnad.jpg (620.27 KiB) Viewed 5278 times

malad yfir epoxygrunn.jpg
malad yfir epoxygrunn.jpg (792.47 KiB) Viewed 5278 times


Í sumar þá tók ég sénsinn og fór yfir nokkrar ár með orginal hásingunni án þess að vera búinn að færa öndunina upp - kom í ljós núna að það var kannski ekki besta hugmyndin sem ég hef fengið, en töluvert kom af kókómjólk þegar ég tók köggulinn frá - legur, kambur og pinjon sluppu samt þannig að þetta var bara þrifið og skellt í nýja rörið.

kokomjolk ur gomlu hasingunni.jpg
kokomjolk ur gomlu hasingunni.jpg (786.1 KiB) Viewed 5278 times

gamla hasingin.jpg
gamla hasingin.jpg (651 KiB) Viewed 5278 times

pinnboltar f koggul.jpg
pinnboltar f koggul.jpg (1.01 MiB) Viewed 5278 times

nyja hasingin.jpg
nyja hasingin.jpg (648.23 KiB) Viewed 5278 times

fyrsti portall kominn undir.jpg
fyrsti portall kominn undir.jpg (613.58 KiB) Viewed 5278 times

hasing komin undir.jpg
hasing komin undir.jpg (845.46 KiB) Viewed 5278 times

fyrsta dekkjamatun ad aftan.jpg
fyrsta dekkjamatun ad aftan.jpg (599.97 KiB) Viewed 5278 times

sma munur backspeis verdur vandamal.jpg
sma munur backspeis verdur vandamal.jpg (694.03 KiB) Viewed 5278 times

slongumartrod.jpg
slongumartrod.jpg (720.71 KiB) Viewed 5278 times

ad verda klart ad aftan.jpg
ad verda klart ad aftan.jpg (554.12 KiB) Viewed 5278 times

china special.jpg
china special.jpg (613.33 KiB) Viewed 5278 times

pallurinn kominn aftur a.jpg
pallurinn kominn aftur a.jpg (680.89 KiB) Viewed 5278 times

haed uppi kulu a 33tommu.jpg
haed uppi kulu a 33tommu.jpg (569.84 KiB) Viewed 5278 times

breyddin verdur vandamal.jpg
breyddin verdur vandamal.jpg (392.82 KiB) Viewed 5278 times


Eins og kom fram í upphafi, þá verður backspeisið líklega smá vandamál, en með gömlu felgunum, þá er scrub-radius inn orðinn svo mikill að hann er farinn að narta í aftur núna á 33" sem hann gerði ekki fyrir breytinguna, þrátt fyrir sirka 10cm hækkun. það lagast með meira backspeisi.

Annað sem verður mögulega vandamál eru brettakanntar - ég spjallaði við þá í formverk, og þeir voru ekki alveg vissir hvað væri best að gera, þeir voru ekki með mótin klár til að geta mælt, en reiknuðu með því að annaðhvort myndu 38" kantar með innfelldari felgum duga, en líklega þyrfti að skera úr köntum til að fá dekkja radíusinn - eða þá að taka 44" kantana þeirra og mjókka þá- en þeir kantar eru hannaðir fyir hásingafærslu sem ég gerði ekki. því er ég á höttunum eftir tacomu með 38" kanta til að geta mælt breyddina á þeim.

svo kom reyndar líka upp annað vandamál sem ég reiknaði ekki með, bremsudælurnar standa svo langt framm að þær rekast í felguna sem ég er nú þegar með, en þær standa sirka 5cm framar en "wheel-mount surface" stúturinn á AT felgunum er steyptur svo hátt að það er ekki vandamál á þeim, og mér sýnist af myndum að jeppafelgur.is felgurnar geri það líka, en þarf að komast yfir þannig stykki til að máta.

grunar líka að ég hafi klúðrað pinion hallanum, þarf að komast yfir pinion halla/öxulhalla skinnur einhversstaðar.

felguvandamal.jpg
felguvandamal.jpg (110.76 KiB) Viewed 5278 times


Elvar Turbo
Innlegg: 76
Skráður: 06.júl 2013, 19:28
Fullt nafn: Elvar Elí Jónasson
Bíltegund: Toyota Hilux

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Elvar Turbo » 08.apr 2026, 08:11

veistu þetta á eftir að vera svo drullu duglegt tæki í snjó. það sem er að hrjá alla jeppa er að draga hásingar/stuðara eða kviðinn í snjónnum sem veitir alltof mikla mótstöðu.
Fór með 54" bíl í ferð um daginn og er nokkuð viss um að svoleiðis tæki drífur mest á því að vera með hátt uppí hásingar.
þetta á eftir að skilja okkur aumingjana eftir fasta með "lowrider" dótið okkar

User avatar

jongud
Innlegg: 2732
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá jongud » 08.apr 2026, 08:14

Ég er með svokallaða 38 tommu kannta undir minni Tacomu, ég verð niðri í Síðumúla á opnu húsi í kvöld ef þú villt mæla kantana.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 11.apr 2026, 17:13

Jæja, fékk að mæla bílin hans Jongud í vikunni, kantarnir standa um 18 sentímetra út og sýnist því á öllu að allt stærra en 37 á 10" felgu myndi ekki sleppa með 38" köntunum.
eftir að hafa rætt við flesta sem koma að kanntasmíðum, þá kom í ljós að Gunnar Ingvi átti mót fyrir 44" kanta á tacomu í tveimur breyddum, og miðað við mínar mælingar ættu mjórri kantarnir hans að smell passa fyrir 42" á 14" felgum.

eftir páskabreytinguna, þá var allveg djöfullegur víbríngur, sérstaklega undir 2000 sn í fyrsta gír. þetta kom að sjálfsögðu frá drifskaftinu.
Þegar ég sauð fjaðursætin á Prado hásinguna, var ég eitthvað að flýta mér og stillti pinion hallanum upp eins og um einfalt drifskaft með einföldum lið í báða enda væri að ræða. en tacoman er vissulega með tvöfalt drifskaft og tvöföldum lið eftir upphengju. því var ekki um neitt annað að ræða en að sækja fræs og slípirokk og snúa hásingunni upp í rétta afstöðu áður en víbríngurinn myndi sprengja alla hjöruliðina og upphengjuna. nýr pinnion halli er þá orðinn 11.5 gráður og allur víbringur farinn og allt orðið uppá það besta.

Með mér vinnur lærður bílasmiður sem hefur breytt þó nokkrum bílum í gegnum tíðina, og þegar ég var að byrja á þessu hásinga brasi hafði hann orð á því að það væri líklega skynsamlegast að mála hásinguna í svörtum lit, helst matt/satin svörtum en ekki með bíla lakki þar sem það væri lang auðveldast að halda snyrtilegu þegar þyrfti að bletta í eftir steinköst og ef ég þyrfti að sjóða/breyta einhverju á hásingunni - að sjálfsögðu hunsaði ég þetta og notaði toyota Pyrite Mica (T43) sanserað bíla lakk.
með því að skera og snúa hásingunni þá entist þetta lakk heilt innan við viku frá því að hásingin var sett undir og er hún því orðin köflótt með svörtum ryðvarnargrunni.

kannski að maður ætti einhverntíman að hlusta á ráðleggingar annara.

vitlaus halli.jpg
vitlaus halli.jpg (793.89 KiB) Viewed 5166 times

fína lakkið.jpg
fína lakkið.jpg (608.65 KiB) Viewed 5166 times

nýr halli.jpg
nýr halli.jpg (716.35 KiB) Viewed 5166 times


Bilaður
Innlegg: 10
Skráður: 10.jan 2024, 11:05
Fullt nafn: Robert Gillespie
Bíltegund: Ford

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Bilaður » 11.apr 2026, 20:32

Er ekki mikill snúniningur á hásinguni svona? Enn geggjuð smíði.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 11.apr 2026, 22:31

Þú ert þá að tala um aukna vægið á hásinguna, en já þessi upsettning er mun líklegri til að vinda uppá fjaðrirnar í "S" þar sem það er komin töluverð vogstöng á hásinguna með þessari uppsettningu. - hef verið að fylgjast mjög náið með liðinu sem er að nota 74weld og portalpros portalana, þetta virðist ekki vera neitt ofsalegt vandamál þar.

í þessu tilviki þá snéri ég pinioninu um 2 auka gráður til að reyna að vega á móti því.
það sem gerir það verra er að ég fékk nýjar fjaðrir frá toyota í gegnum inköllun, og var hugmyndin að fá þær og bæta við auka blöðum úr gamla fjaðrasettinu ásamt mjúkum fjöðrum í svokallað "bastard pack".
Það varð smá misskilningur milli mín og toyota þannig að þeir settu nýju fjaðrirnar undir og hentu þeim gömlu, ég setti því 50mm klossa undir fjaðrirnar til að rétta bílinn aftur við snöggvast, þessir klossar margfalda þetta vandamál.

hugmyndin í framtíðinni er að annaðhvort setja aðrar fjaðrir sem fara undir hásinguna(SUA) í stað þess að liggja ofaná henni sem myndi laga þetta til muna eða þá fara í gorma og stífur sem tækju mið af þessu.


Róbert123
Innlegg: 3
Skráður: 06.nóv 2020, 17:53
Fullt nafn: Róbert Gillespie

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Róbert123 » 11.apr 2026, 22:41

Já finnst flott settuppið hjá Guðmundi á XJ-inum.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 14.apr 2026, 21:59

Nú bara þekki ég ekki þann bíl og þá upsettningu. er hann á fjöðrum eða stýfum?

Með gorma og stífur, þá hef ég ekki eytt neinum alvöru tíma í að mæla upp og skoða það mál, ég mældi bara upp í flýti nokkra punkta sem eru líklegir og auðvelt að græja brakkett á án þess að fara í einhverjar svaka styrkingar.

miðað við þessa punkta myndi mig langa í meira anti-squat í aksturshæð og minna í sundurslætti, pinion halla breytingin er full mikil og skyndimiðjan er full stutt, en ég þarf að leggjast betur undir bílin og skoða hvað ég hef mikið svigrúm til að færa stýfurnar til, ef ég man rétt þá er þessi hæð á efri stýfu hásingar megin algjört hámark áður en hún fer að rekast uppundir pallinn í fullum samslætti.

Untitled.png
Untitled.png (243.37 KiB) Viewed 5048 times

User avatar

jongud
Innlegg: 2732
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá jongud » 15.apr 2026, 08:02

Ekki berjast við að finna upp púðrið, notaðu eitthvað sem er þaulreynt.
4-link kerfið sem var hannað fyrir langalöngu er með efri stífuna rétt ofan við hásingarmiðju.

Image

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 15.apr 2026, 18:19

á þessari mynd er nefnilega útfærslan sem ég er að reyna að forðast þ.e. efri og neðri stífan er á sama X-plani og eru nánast samsíða, svipað og kemur orginal undir sumum bílum t.d. 120 cruiser. þessi upsettning er kinematískt nær radíus örmum heldur en raunverulegri 4-link upsettningu sem krossast.

Ég er lítið betur settur með svona upsettningu heldur en að fá bara mjúkar parabólu-fjaðrir sem fara undir hásingu.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 21.apr 2026, 20:30

Eitthvað smá snöfl, sá einhvern á Facebook "jeppaspjallinu" pósta aliexpress gúmmíklemmum einhverntíman, þannig að ég varð mér út um nokkrar þannig og festi skófluna, hef ekki nennt að setja blæjuna aftur á bílin þannig að hafa allt draslið laust afturí palli var ekki lengur að gera sig.
hef svo verið að dunda mér smá við að gera nokkrar útfærslur af úrhleypibúnaðir en mig langaði til að koma mér upp stýringu sem væri "open source" og hægt að yfirfæra á mismunandi kistur, upphaflega var ég að skoða að nota rofa borð úr Porsche Cayenne, en eftir að tala um þetta við nokkra jeppakalla þá var lendingin frekar að nota snúnings encoder ásamt litlum IC eða SPI skjá þar sem það væri auðveldara að koma því fyrir í hvaða innréttingu sem er. Cayenne borðið passar samt bara svo helvíti fallega inní tacoma stokkinn ;) er að vinna í því að flytja þetta úr arduino prufuborðinu yfir í ESP32 flögu , og hugmyndin var svo að fyrir rest að menn gætu bara sótt gerber skrá ef þeir vildu og fengið þá pcbway eða einhvern til að smíða prentplötuna fyrir örfáar evrur. eða keypt esp32 með breakout borði af aliex


gummiklemma.jpg
gummiklemma.jpg (624.14 KiB) Viewed 4877 times

cayenne borð.jpg
cayenne borð.jpg (22.79 KiB) Viewed 4877 times

víramess.jpg
víramess.jpg (792.02 KiB) Viewed 4877 times




Fékk brettakanta og prufaði að máta þá á.. hann verður kjánalega breiður sýnist mér, fékk nokkur komment um hvort ég væri að setja flugvélavæng á hann til að svífa yfir snjóinn... fékk þessa kanta frá Gunnari Ingva, en þeir eru "extra mjóir 44" kantar" þeir gera ráð fyrir töluverðri hásingafærslu miðað við dekkja gatið, neyðist eflaust til þess að færa afturhásinguna aftar einhverntíman til að hann looki "rétt" en hann verður bara að vera kjánalegur til að byrja með. það er síðan stórt "gap" að aftanverðum fram kantinum (þ.e. snýr að hurð) hef ekki séð þetta áður á brettaköntum, og er ekki viss með tilgangin af þessu. bíllinn er nú þegar svo svakalega óstraumlínulaga að ég efast um að þetta hafi mikil áhrif á "dælu effektinn" sem getur myndast innaní hjólaskál. fylli líklega bara uppí þetta eða set svart músanet.

slettur endi.jpg
slettur endi.jpg (367.98 KiB) Viewed 4877 times

frontal.jpg
frontal.jpg (889.2 KiB) Viewed 4877 times

profile.jpg
profile.jpg (1014.92 KiB) Viewed 4877 times

gat.jpg
gat.jpg (622.5 KiB) Viewed 4877 times

afturendi.jpg
afturendi.jpg (1.09 MiB) Viewed 4877 times


ég gerði reyndar ekki ráð fyrir því að kantarnir yrðu með slétta brún, þ.e. það er ekki brot/flötur sem legst uppað brettinu sem er skrúfaður/hnoðaður í blikkið, heldur þarf að útbúa einhverja vinkla sem eru festir á brettið og kantarnir svo kíttaðir á þá... ef einhver er með útfærslu af svoleiðis útfærslu þá væri vel þegið að sjá myndir og aðferðir af þeirri vinnu.

annars hef ég ekki komst í neina ferð til að prufa portalbúnaðinn að einhverju ráði.
Það styttist óðafluga í torfæruna á Hellu, og því hefur frítíminn að miklu leiti farið í þann pakka, Síðan að portalarnir fóru undir, þá hefur bíllinn semsagt bara verið notaður í innanbæjar snatt, og til að draga torfærubílinn .

Torfæru bröltið fór ekki betur en svo að við mættum síðasta laugardag uppá sandspyrnu braut til að mappa tækið og þar lentum við í því að vélin endaði gjörsamlega krossúrbrædd. Tacoman var því notuð til að draga líflausa greyið uppá vagn og brunað með hann uppí í bil og hjartað tekið úr. allar stangalegurnar snúnar og ein af höfuðlegunum snúin. blokkin og stimpilhausarnir sluppu þannig að það var farið á fullt að leita og fundust nothæfar stangir og sveifarás ásamt legum. nýja gumsinu skellt í og vélin kominn aftur í á alveg met tíma og farin að malla, stefnt er á að reyna að mappa aftur sumardaginn fyrsta.

LY6 blokk.jpg
LY6 blokk.jpg (1.01 MiB) Viewed 4877 times



síðan ef bíllin lifir af torfærukeppnina á hellu, þá er hann líka skráður í sandspyrnuna aðra helgi á eftir, því er útlit fyrir því að Tacoman fái ekki alvöru prufu túr fyrren seinni part Maí - en hingað til hefur þetta verið til friðs, enginn háfaði frá þessu eða skrýtnir aksturseiginleikar, þarf bara að fá felgur með miklu meira bakspeisi (ca 16 til 17 CM væri upplagt) og þá erum við góðir.

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1409
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Járni » 22.apr 2026, 10:10

Magnað, fullt af skemmtilegu í gangi! Ég myndi gjarnan vilja fylgjast með loftdæminu, ég hef byrjað nokkrum sinnum á þessu en aldrei klárað. Endilega verum í sambandi með þetta ef það er stemning fyrir því.
Land Rover Defender 130 38"

User avatar

jongud
Innlegg: 2732
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá jongud » 22.apr 2026, 12:08

Snæri wrote:á þessari mynd er nefnilega útfærslan sem ég er að reyna að forðast þ.e. efri og neðri stífan er á sama X-plani og eru nánast samsíða, svipað og kemur orginal undir sumum bílum t.d. 120 cruiser. þessi upsettning er kinematískt nær radíus örmum heldur en raunverulegri 4-link upsettningu sem krossast.

Ég er lítið betur settur með svona upsettningu heldur en að fá bara mjúkar parabólu-fjaðrir sem fara undir hásingu.


En hvað með svona uppsetningu frá Wildrover?
https://wildrover.is/cdn/shop/files/Scr ... width=1600

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 22.apr 2026, 22:52

Járni wrote:Magnað, fullt af skemmtilegu í gangi! Ég myndi gjarnan vilja fylgjast með loftdæminu, ég hef byrjað nokkrum sinnum á þessu en aldrei klárað. Endilega verum í sambandi með þetta ef það er stemning fyrir því.


Það verður líklega verulega rólegt í þessum málum á næstunni, annars er líka einn úr flugbjörgunarsveitinni í svipuðum pælingum, annars væri mest óskandi að fá einhvern sem er vanur að teikna prentplötur til að yfirfara/yfirfæra eftir að þetta er farið að virka alminnilega á stand-alone arduino/esp32 borðum

jongud wrote:En hvað með svona uppsetningu frá Wildrover?
https://wildrover.is/cdn/shop/files/Scr ... width=1600


svona krossaðir linkar væru einmitt besta útfærslan, en ég næ ekki örmunum nógu löngum fyrir ásættanlega skyndimiðju og pinionhallabreytingu nema að færa bensíntankinn, EVAP kerfið og allt sem fylgir því, sem ég er ekki í stuði fyrir alveg þessa stundina. gerðum einmitt svona útfærslu með sveigju í miðjum stífunum til að komast undir þverbita í ultra4/4600 bíl fyrir nokkrum árum síðan, það lukkaðist mjög vel í þeim bíl og sá bíll sá töluvert meiri hamagang en Tacoman á nokkurntíman eftir að sjá.. en held ekki að ég nái að hanna þá þannig að þeir sveigi svo glatt framhjá bensíntankinum. þetta var gert til að ná tæplega 35cm fjöðrunarsviði út úr 18cm dempar, en það mátti ekki skera þverbitann í burtu í 4600 flokknum.

efristifur.jpg
efristifur.jpg (288.77 KiB) Viewed 4802 times

neðristifur.jpg
neðristifur.jpg (130.63 KiB) Viewed 4802 times

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 27.apr 2026, 18:34

Það var stutt fjörið - ný uppgerða LY6 blokkin bara hvell sprakk og orðin ónýt aftur. Fengum lánaða 5.3L vél bara svo við getum rétt svo fengið að vera með á hellu um helgina.

LY6 i steik.jpg
LY6 i steik.jpg (109.72 KiB) Viewed 4698 times


þegar ég setti lc120 hásinguna undir um páskana, þá setti ég bara demparana eins og þeir voru undir, hafði ekki tíma/nennu til að breyta því eitthvað. forðabúrið stóð því full mikið niður fyrir grindarbitann fyrir minn smekk.

dempari.jpg
dempari.jpg (766.37 KiB) Viewed 4698 times



dempararnir voru því teknir undan og fittings og slöngu skipt út fyrir ORB/AN(JIC) sett með 90°hné, demparinn var svo tekinn í sundur, lofttæmdur, fyllt á olíuna, aftur saman og gasaður upp. forðabúrið liggur því samsíða grindinni núna.


nyjar slongur.jpg
nyjar slongur.jpg (997.13 KiB) Viewed 4698 times

sundur tekinn.jpg
sundur tekinn.jpg (954.69 KiB) Viewed 4698 times

nyja slangan.jpg
nyja slangan.jpg (820.96 KiB) Viewed 4698 times

fyllt a oliu.jpg
fyllt a oliu.jpg (824.51 KiB) Viewed 4698 times

gasad upp i 150 pund.jpg
gasad upp i 150 pund.jpg (611.62 KiB) Viewed 4698 times

dempari aftur a.jpg
dempari aftur a.jpg (333.54 KiB) Viewed 4698 times



svo var farið að máta kantana betur á.
Til að fá brúnina til að festa kantin á, þá ákvað ég bara að leggja resín blautan borða beint á boddýið, setja kantinn uppað og steypa svo vel af trebba á milli kants og borðans og fá þannig góða brún sem hægt væri að nota til að kítta á boddýið. er enþá að reyna að venjast þessum köntum, ég held að þetta teljist seint vera smekkleg tacoma með þessu. Minnir smá á íkorna með fullar kinnar.

viljum ekki fa resin a boddyid.jpg
viljum ekki fa resin a boddyid.jpg (440.44 KiB) Viewed 4698 times

trebba bordi.jpg
trebba bordi.jpg (1.09 MiB) Viewed 4698 times

2 log af trebba.jpg
2 log af trebba.jpg (480.3 KiB) Viewed 4698 times

smurt innanundir.jpg
smurt innanundir.jpg (342.62 KiB) Viewed 4698 times

hann verdur seint fagur svona.jpg
hann verdur seint fagur svona.jpg (633.15 KiB) Viewed 4698 times

framtidarlookid.jpg
framtidarlookid.jpg (28 KiB) Viewed 4698 times

fyrsta umferd af fylligrunni.jpg
fyrsta umferd af fylligrunni.jpg (458.97 KiB) Viewed 4698 times


Að aftan kom hinsvegar smá babb í bátinn. Þessir kantar gera nefnilega ráð fyrir hásingafærslu.
Þessir kantar voru hannaðir upphaflega miðað við 44" dekk og litla sem enga hækkun (sbr appelsínugulu tacomunni ef þið kannist við hana) ég í einfeldni minni reiknaði bara með því að með því að vera á 42" dekkjum og með 15cm hækkun, þá hlyti það nú að sleppa.. yrði bara ekki í miðju dekkjagatinu á brettakantinum og liti smá kjánalega út.
með brettakantinn teipaðann á, þá fannst mér hann liggja helvíti nálægt dekkinu, og prufaði að skella pappa úrklippu sem sýnir gróflega 42" og að sjálfsögðu liggur það beint í kantinum.

Það er verið að vinna í því að breikka felgur fyrir mig, og ætla ég að máta þetta alminnilega þegar ég er kominn með rétt dekk og felgur, mögulega dugar bara að rétt snyrta framan af kantinum, en annars þá verð ég að leggja í það verkefni strax í sumar að færa hásinguna til. aftari fjaður festingin er eins aftalega á grindinni og hún getur verið sem þíðir að mestum líkindum gormar+stýfur og þarf þá að styrkja alla grindina frá aftursætum og afturúr.

Ég ætlaði mér nú ekki að pæla í þessu fyrren á næsta eða jafnvel ári þar á eftir, en ef þetta verður að gerast núna, þá er mjög líklegt að ég endi bara í radíusörmum eða samsíða 5-link sbr því sem jóngud postaði hérna áður til að byrja með. er einhver sem á teikningar af grindarfestingunum og hásingafestingum fyrir 80mm hásingarrör ( bæði fyrir samsíða linkana og þverstífuna)? lítið mál að græja stífurnar sjálfar en nenni ómögulega að teikna upp og gera festingarnar ef einhver á þetta klárt.

jongud wrote:Ekki berjast við að finna upp púðrið, notaðu eitthvað sem er þaulreynt.
4-link kerfið sem var hannað fyrir langalöngu er með efri stífuna rétt ofan við hásingarmiðju.



urklippan verdur rosaleg.jpg
urklippan verdur rosaleg.jpg (381.2 KiB) Viewed 4698 times

en ekki hvad.jpg
en ekki hvad.jpg (324.84 KiB) Viewed 4698 times
Síðast breytt af Snæri þann 11.maí 2026, 19:06, breytt 1 sinni samtals.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 10.maí 2026, 22:36

Alltaf týnist til eitthvað smotterí að gera.

Það var skroppið á Hellu á blíðviðris degi, fyrsta "langkeyrslan" á portulunum á naglalausum dekkjum á auðu biki. þetta apparat er alveg merkilega hljóðlátt, ég heyrði allavegana ekki í því fyrir dekkjaniðinum, og Tacoman virðist höndla bara nokkuð vel þrátt fyrir að hafa ekki komist enþá í hjólastillingu.
En þegar ég var kominn þangað, þá lenti ég í því að þurfa að skrúfa rúðuna niður og upp, en á leiðinni upp komu bara brak og brestir og allt vont. Brakkettið sem heldur í rúðuna hafði bognað í keng, enda bara 0.8mm blikk dót. mér tókst að laga það með skiptilykli, vice-grip og hamri, og flýgur rúðan nú upp og niður betur en hún hefur nokkurntíman gert.

hurðarammi.jpg
hurðarammi.jpg (962.43 KiB) Viewed 4378 times

glugga armur.jpg
glugga armur.jpg (627.09 KiB) Viewed 4378 times


Fór svo og lét smíða fyrir mig felgur, flestar felgurnar sem ég var að sjá voru með svo litlu back-speisi (8-10cm) að ég ákvað frekar að fá hilux stálfelgur og láta breikka þær, endaði því í 14cm backspeisi á 14" breiðri felgu, hefði viljað nær 18cm backspeis, en 14 verður að duga.

felgur.jpg
felgur.jpg (544.94 KiB) Viewed 4378 times

grunnadar og maladar.jpg
grunnadar og maladar.jpg (2.06 MiB) Viewed 4378 times

kominn med dekk a hlid.jpg
kominn med dekk a hlid.jpg (120.33 KiB) Viewed 4378 times

kominn med dekk.jpg
kominn med dekk.jpg (147.14 KiB) Viewed 4378 times

felgumatun.jpg
felgumatun.jpg (1.72 MiB) Viewed 4378 times



Er ekki alveg búin að ákveða hvernig ég ætla að tækla þetta með afturendan, upp hafa komið mis-gáfulegar uppástungur, svo sem að sleppa brettaköntum og breikka bara pallin, svipað og hefur verið gert á stóru 58" fordunum og RAM-unum. eða þá finna styttri fjaðrir þar sem miðjuboltinn er ca 20cm aftar en á núverandi fjöðrum.. er ekki viss um að fjaðrirnar meigi við því að minka mikið.

síðan var skellt í litlunefndarferð með 4x4, stutt skrepp á Bása, grillað þar til að slútta þessu tímabili. á þeirri ferð, af ca 28 bílum, var Tacoman sú eina sem bilaði, en svo virðist sem að þegar ég var að koma uppúr krossá, þá hafi upphengjan fyrir bensíntankin brotnað (ryðgað) í sundur og tankrunn rakst í bakkan, hlífin undan tanknum bognaði við þetta og lagðist utaní drifskaftið. þessu var reddað bara með strappa á meðan beðið er eftir nýjum upphengjum.

adeins að narta i drifskaft.jpg
adeins að narta i drifskaft.jpg (460.75 KiB) Viewed 4378 times

bensintankur ad detta.jpg
bensintankur ad detta.jpg (469.07 KiB) Viewed 4378 times

P5090244-6.jpg
P5090244-6.jpg (735.12 KiB) Viewed 4378 times

P5090273-12.jpg
P5090273-12.jpg (1.24 MiB) Viewed 4378 times

P5090220-1.jpg
P5090220-1.jpg (912.53 KiB) Viewed 4378 times

P5090236-5.jpg
P5090236-5.jpg (1.35 MiB) Viewed 4378 times

P5090262-9.jpg
P5090262-9.jpg (1.02 MiB) Viewed 4378 times


Torfæru tímabilið hefur svo ekki alveg staðist væntingar hingað til. Strax í fyrstu braut var stefnan tekin til tunglsins, en því miður er 5.3 vortec, nítro og smá spoiler ekki nóg til að ná þangað og hröpuðum við því aftur niður og lentum á trýninu sem þýddi 2 brotnir stýrisendar, 2 bognar/ónýtar felgur, 1 brotin öxul og bogið liðhús. viðgerðin á þessu tók sinn tíma og mistum við því af okkar ræsingu í aðra braut og þurftum að fara aftur fyrir röðina. Komumst slysalaust í gegnum næstu brautir þar á eftir, en í síðustu braut "vatnsbrautinni" góðu, þá lentum við í því að bensíngjöfin festist inni, og á sama tíma brotnaði spindillinn sem að bremsupedallinn veltur á. það má því segja að við enduðum þá braut á toppnum

Yellow submarine.jpg
Yellow submarine.jpg (9.74 MiB) Viewed 4378 times

User avatar

muggur
Innlegg: 400
Skráður: 12.okt 2011, 15:16
Fullt nafn: Guðmundur Þórðarson

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá muggur » 11.maí 2026, 09:12

Þetta er mjög flott hjá þér og gaman að heyra að portalarnir eru að virka.

Tengi við það að vera eini bíllinn sem er með vesen en sem betur fer gastu reddað þessu með strappa. Erfiðara að redda brotnum öxli með strappa :-)
----------------------------------------------
Guðm. Þ.
Pajero 1998 V6 3000/3500 24V

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 72
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 15.maí 2026, 19:26

já lukkulega var þetta nú ekkert, það hefði svosum mátt keyra í bæinn með þetta lafandi, en hlífin var farin að nuddast í drifskaptið sem pirraði mig alveg ótrúlega.

-----

Fór og fékk Nesdekk til að skella dekkjunum á felgur ásamt míkróskurði og kíttun.
Fyrst dekkin voru nú komin á felgur, þá var um að gera að máta, haldið þið svo ekki að stóru flugvélavængirnir sem ég blótaði í sand og ösku fyrir að vera alltof alltof breiðir... hafi ekki bara endað á því að vera of mjóir um sirka tommu. einhverju hef ég klúðrar svona all svakalega í mælingunum.

spurning hvort maður endi þá ekki á því að taka afsteypu af frambrettinu og dunda sér svo við að breikka og færa brettakantana til og láti abs plast eða blikk skúffu duga sem brettakanta á meðan?

Dekk.jpg
Dekk.jpg (1.61 MiB) Viewed 354 times

framdekk.jpg
framdekk.jpg (494.43 KiB) Viewed 354 times

frammdekkfront.jpg
frammdekkfront.jpg (2.05 MiB) Viewed 354 times

med brettakanti.jpg
med brettakanti.jpg (1.79 MiB) Viewed 354 times

hvar klikkaði mælingin.jpg
hvar klikkaði mælingin.jpg (1.33 MiB) Viewed 354 times

pósa.jpg
pósa.jpg (376.98 KiB) Viewed 354 times



er samt ekki frá því að hann taki sig bara sæmilega út svona á 42" þegar þar að kemur.


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 9 gestir