Toyota ævintýrið

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 66
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 11.mar 2026, 21:11

Ég kemst ekki með í stórferð, enda bíllinn langt á eftir áættlun þannig að það var eitthvað potað í smotterý, uppfærði auxbeam brakkettið og er að verða helvíti ánægður með það, en tókst ekki allveg að hitta á rétta gráa litin, en þetta venst þó, reikna samt með að ég haldi áfram að reina að finna samsvarandi gráan lit.
Næst er bara að reyna að finna leið til að herma eftir auxbeam límmiðunum til að græja á þetta, en ég var ekki allveg ánægður með neitt af þessum límmiðum sem fylgdu með.


auxbeambrakk1.jpg
auxbeambrakk1.jpg (644.94 KiB) Viewed 821 time

auxbeam brakk2.jpg
auxbeam brakk2.jpg (291.34 KiB) Viewed 821 time

auxbeam.jpg
auxbeam.jpg (522.95 KiB) Viewed 821 time


fór svo að máta við hásinguna ný bremsurör og slöngur.
Bremsuror.jpg
Bremsuror.jpg (1.13 MiB) Viewed 821 time



Mig langaði að einfalda bremsukerfið töluvert, en mér var góðfúslega bent á það, að þrátt fyrir "breytta bifreið" þá væri samt krafa um að ABS kerfið væri í lægi fyrir skoðun. mig minnir nú samt að þegar ég renndi síðast yfir skoðunarhandbókina þá hefði ég skilið hana sem svo að ef bíllin væri með breytingaskoðun/með fallega rauða miðann sem segir að aksturseiginleikum hafi veirð breytt - þá mætti abs ljósið loga / mætti ég forrita ABS heilan í burtu.

er einhver ykkar sem er með þetta á hreinu?
Viðhengi
Festing_vx.stl
(3.68 MiB) Downloaded 56 times
frontur_vx.stl
(40.02 MiB) Downloaded 65 times



User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1944
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Sævar Örn » 11.mar 2026, 22:19

Sæll þetta lofar góðu hjá þér það er ekki gerð athugasemd í skoðun hérlendis við logandi ABS ljós í breyttum torfærubifreiðum fyrst skráðum fyrir 2013


abs skhb.PNG
abs skhb.PNG (82.88 KiB) Viewed 815 times
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

jongud
Innlegg: 2728
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá jongud » 12.mar 2026, 08:55

Flott þetta, gott að vita af .stl skránum ef maður ætlar að setja eitthvað þarna.
Sjálfum finnst mér fínt að vera með ABS kerfið virkt, það virkar fínt með 40 tommu dekkjum, en portal-hásingar eru kannski fullmikið bras.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 66
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 12.mar 2026, 18:16

Takk fyrir þetta Sævar, þetta var akkurat það sem mig minnti að ég hefði lesið - vissi reyndar ekki af þessum aldursfordómum, þeir sem bentu mér á þetta eru að vísu allir á nýrri bíl en 2013.

Vissulega er ABS kerfið öryggistól og allt það og gott meðan það virkar, en ég hef því miður lent óþæginlega oft í því á gömlum breyttum bílum, að það gerir bara illt verra.
Nú síðast bara á Nissaninum, þá lenti ég í því að ABS kerfið ruglaðist eitthvað og fór alltaf á þegar ég reyndi að bremsa.en til lukku þá gerðist þetta um miðja nótt og það var sem betur fer engin umferð um gatnamótin en ABS kerfið kom í veg fyrir að nokkuð gæti gerst þegar stigið var á bremsuna. það var sprunga/gap í tónhringnum sem mig grunar að hafi valdið þessu, en eftir þetta fór abs öryggið úr og var bara sett í rétt á meðan á skoðun stóð.

lennti í svipuðu í cherokee sem ég átti, en hann var alltaf hundleiðinlegur með ABS á malarvegum/slóðum.


jongud wrote:Flott þetta, gott að vita af .stl skránum ef maður ætlar að setja eitthvað þarna.
Sjálfum finnst mér fínt að vera með ABS kerfið virkt, það virkar fínt með 40 tommu dekkjum, en portal-hásingar eru kannski fullmikið bras.

í sjálfusér er þetta ekkert mál þar, það er nýr tónhringur í portölunum og það fylgdu með framlengingar á ABS snúruna.

Ég get látið þig fá .obj (mesh skrárnar frá 3d-skönnuninni) eða .3mf fusion skránna ef þú vilt dunda við að hanna þína eigin útfærslu eða setja eitthvað annað í þetta hólf - spjallið leyfir ekki að setja inn .obj skrár

stokkur.jpg
stokkur.jpg (107.27 KiB) Viewed 767 times

klinkbox.jpg
klinkbox.jpg (39.78 KiB) Viewed 767 times

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 66
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 07.apr 2026, 20:59

Páskarnir voru þá notaðir til að koma portaldótinu fyrir. vissi svo sem fyrirfram að hann yrði frekar breiður/útvíður að framan, en þetta virkar mikið meira í raun en ég gerði ráð fyrir - verður eitthvað bras með þessar klassísku íslensku felgur sem eru vanalega með fremur lítið backspeis, en viðmiðunar felgurnar sem mér var gefið upp voru 17x8J með að lágmarki ET+30 - þ.e. c.a. 14CM backspeis að lágmarki. þær felgur sem ég hef séð hvað mest af í yfirbreydd eru bara með frá 8.7 til 10sm backspeisi. Eftir að hafa ráðfært mig við nokkra "sérfræðinga" í breytingum voru þeir flestir á því að taka AT 12" felgurnar, og breikka þær að aftanverðu, þá næðust þær úr 9.3sm backspeisi yfir c.a 14,5sm.

Allavegana, þá mundi ég eftir að taka nokkrar myndir af ferlinu.

byrjað var að taka lokin af portölunum að aftan og renna sæti og bora/snitta fyrir legris nippli.

rennt f urhleypinippli.jpg
rennt f urhleypinippli.jpg (469.1 KiB) Viewed 365 times

urhleypinippill i flans framan.jpg
urhleypinippill i flans framan.jpg (420.94 KiB) Viewed 365 times

urhleipinippill i framportal.jpg
urhleipinippill i framportal.jpg (469.41 KiB) Viewed 365 times

borad fyrir urhleypingu i aftur portal.jpg
borad fyrir urhleypingu i aftur portal.jpg (799.49 KiB) Viewed 365 times




svo var pallinum kippt af, þæginlegur bíll að gera það á að mörgu leiti, 6 skrúfur í palli, og ljósin tekin frá, bensínstútur og annað situr bara í gúmmígrommettu þannig að það þarf ekkert að aftengja þar. og fyrst pallurinn var kominn af, þá var um að gera að rústbanka, sýruþvo, epoxygrunna og mála undir pallinum.

mynd fyrir breytingu.jpg
mynd fyrir breytingu.jpg (687.13 KiB) Viewed 365 times

pallur tekinn af.jpg
pallur tekinn af.jpg (690.81 KiB) Viewed 365 times

fyrir.jpg
fyrir.jpg (906.74 KiB) Viewed 365 times

rustbannkad og syruthvegid 2.jpg
rustbannkad og syruthvegid 2.jpg (877.57 KiB) Viewed 365 times

rustbannkad og syruthvegid.jpg
rustbannkad og syruthvegid.jpg (744.44 KiB) Viewed 365 times

epoxy grunnad.jpg
epoxy grunnad.jpg (620.27 KiB) Viewed 365 times

malad yfir epoxygrunn.jpg
malad yfir epoxygrunn.jpg (792.47 KiB) Viewed 365 times


Í sumar þá tók ég sénsinn og fór yfir nokkrar ár með orginal hásingunni án þess að vera búinn að færa öndunina upp - kom í ljós núna að það var kannski ekki besta hugmyndin sem ég hef fengið, en töluvert kom af kókómjólk þegar ég tók köggulinn frá - legur, kambur og pinjon sluppu samt þannig að þetta var bara þrifið og skellt í nýja rörið.

kokomjolk ur gomlu hasingunni.jpg
kokomjolk ur gomlu hasingunni.jpg (786.1 KiB) Viewed 365 times

gamla hasingin.jpg
gamla hasingin.jpg (651 KiB) Viewed 365 times

pinnboltar f koggul.jpg
pinnboltar f koggul.jpg (1.01 MiB) Viewed 365 times

nyja hasingin.jpg
nyja hasingin.jpg (648.23 KiB) Viewed 365 times

fyrsti portall kominn undir.jpg
fyrsti portall kominn undir.jpg (613.58 KiB) Viewed 365 times

hasing komin undir.jpg
hasing komin undir.jpg (845.46 KiB) Viewed 365 times

fyrsta dekkjamatun ad aftan.jpg
fyrsta dekkjamatun ad aftan.jpg (599.97 KiB) Viewed 365 times

sma munur backspeis verdur vandamal.jpg
sma munur backspeis verdur vandamal.jpg (694.03 KiB) Viewed 365 times

slongumartrod.jpg
slongumartrod.jpg (720.71 KiB) Viewed 365 times

ad verda klart ad aftan.jpg
ad verda klart ad aftan.jpg (554.12 KiB) Viewed 365 times

china special.jpg
china special.jpg (613.33 KiB) Viewed 365 times

pallurinn kominn aftur a.jpg
pallurinn kominn aftur a.jpg (680.89 KiB) Viewed 365 times

haed uppi kulu a 33tommu.jpg
haed uppi kulu a 33tommu.jpg (569.84 KiB) Viewed 365 times

breyddin verdur vandamal.jpg
breyddin verdur vandamal.jpg (392.82 KiB) Viewed 365 times


Eins og kom fram í upphafi, þá verður backspeisið líklega smá vandamál, en með gömlu felgunum, þá er scrub-radius inn orðinn svo mikill að hann er farinn að narta í aftur núna á 33" sem hann gerði ekki fyrir breytinguna, þrátt fyrir sirka 10cm hækkun. það lagast með meira backspeisi.

Annað sem verður mögulega vandamál eru brettakanntar - ég spjallaði við þá í formverk, og þeir voru ekki alveg vissir hvað væri best að gera, þeir voru ekki með mótin klár til að geta mælt, en reiknuðu með því að annaðhvort myndu 38" kantar með innfelldari felgum duga, en líklega þyrfti að skera úr köntum til að fá dekkja radíusinn - eða þá að taka 44" kantana þeirra og mjókka þá- en þeir kantar eru hannaðir fyir hásingafærslu sem ég gerði ekki. því er ég á höttunum eftir tacomu með 38" kanta til að geta mælt breyddina á þeim.

svo kom reyndar líka upp annað vandamál sem ég reiknaði ekki með, bremsudælurnar standa svo langt framm að þær rekast í felguna sem ég er nú þegar með, en þær standa sirka 5cm framar en "wheel-mount surface" stúturinn á AT felgunum er steyptur svo hátt að það er ekki vandamál á þeim, og mér sýnist af myndum að jeppafelgur.is felgurnar geri það líka, en þarf að komast yfir þannig stykki til að máta.

grunar líka að ég hafi klúðrað pinion hallanum, þarf að komast yfir pinion halla/öxulhalla skinnur einhversstaðar.

felguvandamal.jpg
felguvandamal.jpg (110.76 KiB) Viewed 365 times


Elvar Turbo
Innlegg: 75
Skráður: 06.júl 2013, 19:28
Fullt nafn: Elvar Elí Jónasson
Bíltegund: Toyota Hilux

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Elvar Turbo » 08.apr 2026, 08:11

veistu þetta á eftir að vera svo drullu duglegt tæki í snjó. það sem er að hrjá alla jeppa er að draga hásingar/stuðara eða kviðinn í snjónnum sem veitir alltof mikla mótstöðu.
Fór með 54" bíl í ferð um daginn og er nokkuð viss um að svoleiðis tæki drífur mest á því að vera með hátt uppí hásingar.
þetta á eftir að skilja okkur aumingjana eftir fasta með "lowrider" dótið okkar

User avatar

jongud
Innlegg: 2728
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá jongud » 08.apr 2026, 08:14

Ég er með svokallaða 38 tommu kannta undir minni Tacomu, ég verð niðri í Síðumúla á opnu húsi í kvöld ef þú villt mæla kantana.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 66
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 11.apr 2026, 17:13

Jæja, fékk að mæla bílin hans Jongud í vikunni, kantarnir standa um 18 sentímetra út og sýnist því á öllu að allt stærra en 37 á 10" felgu myndi ekki sleppa með 38" köntunum.
eftir að hafa rætt við flesta sem koma að kanntasmíðum, þá kom í ljós að Gunnar Ingvi átti mót fyrir 44" kanta á tacomu í tveimur breyddum, og miðað við mínar mælingar ættu mjórri kantarnir hans að smell passa fyrir 42" á 14" felgum.

eftir páskabreytinguna, þá var allveg djöfullegur víbríngur, sérstaklega undir 2000 sn í fyrsta gír. þetta kom að sjálfsögðu frá drifskaftinu.
Þegar ég sauð fjaðursætin á Prado hásinguna, var ég eitthvað að flýta mér og stillti pinion hallanum upp eins og um einfalt drifskaft með einföldum lið í báða enda væri að ræða. en tacoman er vissulega með tvöfalt drifskaft og tvöföldum lið eftir upphengju. því var ekki um neitt annað að ræða en að sækja fræs og slípirokk og snúa hásingunni upp í rétta afstöðu áður en víbríngurinn myndi sprengja alla hjöruliðina og upphengjuna. nýr pinnion halli er þá orðinn 11.5 gráður og allur víbringur farinn og allt orðið uppá það besta.

Með mér vinnur lærður bílasmiður sem hefur breytt þó nokkrum bílum í gegnum tíðina, og þegar ég var að byrja á þessu hásinga brasi hafði hann orð á því að það væri líklega skynsamlegast að mála hásinguna í svörtum lit, helst matt/satin svörtum en ekki með bíla lakki þar sem það væri lang auðveldast að halda snyrtilegu þegar þyrfti að bletta í eftir steinköst og ef ég þyrfti að sjóða/breyta einhverju á hásingunni - að sjálfsögðu hunsaði ég þetta og notaði toyota Pyrite Mica (T43) sanserað bíla lakk.
með því að skera og snúa hásingunni þá entist þetta lakk heilt innan við viku frá því að hásingin var sett undir og er hún því orðin köflótt með svörtum ryðvarnargrunni.

kannski að maður ætti einhverntíman að hlusta á ráðleggingar annara.

vitlaus halli.jpg
vitlaus halli.jpg (793.89 KiB) Viewed 253 times

fína lakkið.jpg
fína lakkið.jpg (608.65 KiB) Viewed 253 times

nýr halli.jpg
nýr halli.jpg (716.35 KiB) Viewed 253 times


Bilaður
Innlegg: 10
Skráður: 10.jan 2024, 11:05
Fullt nafn: Robert Gillespie
Bíltegund: Ford

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Bilaður » 11.apr 2026, 20:32

Er ekki mikill snúniningur á hásinguni svona? Enn geggjuð smíði.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 66
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 11.apr 2026, 22:31

Þú ert þá að tala um aukna vægið á hásinguna, en já þessi upsettning er mun líklegri til að vinda uppá fjaðrirnar í "S" þar sem það er komin töluverð vogstöng á hásinguna með þessari uppsettningu. - hef verið að fylgjast mjög náið með liðinu sem er að nota 74weld og portalpros portalana, þetta virðist ekki vera neitt ofsalegt vandamál þar.

í þessu tilviki þá snéri ég pinioninu um 2 auka gráður til að reyna að vega á móti því.
það sem gerir það verra er að ég fékk nýjar fjaðrir frá toyota í gegnum inköllun, og var hugmyndin að fá þær og bæta við auka blöðum úr gamla fjaðrasettinu ásamt mjúkum fjöðrum í svokallað "bastard pack".
Það varð smá misskilningur milli mín og toyota þannig að þeir settu nýju fjaðrirnar undir og hentu þeim gömlu, ég setti því 50mm klossa undir fjaðrirnar til að rétta bílinn aftur við snöggvast, þessir klossar margfalda þetta vandamál.

hugmyndin í framtíðinni er að annaðhvort setja aðrar fjaðrir sem fara undir hásinguna(SUA) í stað þess að liggja ofaná henni sem myndi laga þetta til muna eða þá fara í gorma og stífur sem tækju mið af þessu.


Róbert123
Innlegg: 3
Skráður: 06.nóv 2020, 17:53
Fullt nafn: Róbert Gillespie

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Róbert123 » 11.apr 2026, 22:41

Já finnst flott settuppið hjá Guðmundi á XJ-inum.

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 66
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 14.apr 2026, 21:59

Nú bara þekki ég ekki þann bíl og þá upsettningu. er hann á fjöðrum eða stýfum?

Með gorma og stífur, þá hef ég ekki eytt neinum alvöru tíma í að mæla upp og skoða það mál, ég mældi bara upp í flýti nokkra punkta sem eru líklegir og auðvelt að græja brakkett á án þess að fara í einhverjar svaka styrkingar.

miðað við þessa punkta myndi mig langa í meira anti-squat í aksturshæð og minna í sundurslætti, pinion halla breytingin er full mikil og skyndimiðjan er full stutt, en ég þarf að leggjast betur undir bílin og skoða hvað ég hef mikið svigrúm til að færa stýfurnar til, ef ég man rétt þá er þessi hæð á efri stýfu hásingar megin algjört hámark áður en hún fer að rekast uppundir pallinn í fullum samslætti.

Untitled.png
Untitled.png (243.37 KiB) Viewed 135 times

User avatar

jongud
Innlegg: 2728
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá jongud » 15.apr 2026, 08:02

Ekki berjast við að finna upp púðrið, notaðu eitthvað sem er þaulreynt.
4-link kerfið sem var hannað fyrir langalöngu er með efri stífuna rétt ofan við hásingarmiðju.

Image

User avatar

Höfundur þráðar
Snæri
Innlegg: 66
Skráður: 23.sep 2024, 18:32
Fullt nafn: Birkir

Re: Toyota ævintýrið

Postfrá Snæri » 15.apr 2026, 18:19

á þessari mynd er nefnilega útfærslan sem ég er að reyna að forðast þ.e. efri og neðri stífan er á sama X-plani og eru nánast samsíða, svipað og kemur orginal undir sumum bílum t.d. 120 cruiser. þessi upsettning er kinematískt nær radíus örmum heldur en raunverulegri 4-link upsettningu sem krossast.

Ég er lítið betur settur með svona upsettningu heldur en að fá bara mjúkar parabólu-fjaðrir sem fara undir hásingu.


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur