Síða 1 af 1

Sæluríki, Slunkaríki og Skjaldbreið 17.3

Posted: 17.mar 2012, 20:33
frá Doror
Skelltum okkur á 4 bílum uppá Lyngdalsheiði í dag.
Ég á Cherokee, Hörður á Hilux, Andri á Vitöru og Kristinn á Pajero.

Fengum frábært veður og færi en þegar halda átti á Skjalbreið reið yfir skafrenningur og blinda og maður þurfti að opna hurðina til að sjá hvort að maður væri stopp eða á ferð.

Regrouppuðum við Skriðu og skelltum okkur í Sæluríki í pulsur og kakó.
Eftir það var komið fínasta veður og skyggni þannig að við skelltum okkur innað Slunkaríki, frábært færi og sums staðar hægt að crúsa í háa drifinu á 60-70 kmh.

Renndum svo viðstöðulaust uppá Skjaldbreið og svo þaðan niður á Þingvelli. Frábær ferð í alla staði.

Myndir frá mér:
http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150859846835898.520991.538965897&type=1

Re: Sæluríki, Slunkaríki og Skjaldbreið 17.3

Posted: 17.mar 2012, 20:43
frá hobo
Var að enda við að setja mínar myndir inná F4x4.

http://f4x4.is/index.php?option=com_jfu ... mId=315837

Re: Sæluríki, Slunkaríki og Skjaldbreið 17.3

Posted: 17.mar 2012, 23:00
frá hobo
[youtube]cxKeG71lIUc[/youtube]

Re: Sæluríki, Slunkaríki og Skjaldbreið 17.3

Posted: 17.mar 2012, 23:57
frá -Hjalti-
Ég var þarna á fimmtudag í frábæru verði á jeppanum , var þarna í dag á sleðanum , sá ofaná ykkur undir Skriðu. Skemmtilegar myndir

Re: Sæluríki, Slunkaríki og Skjaldbreið 17.3

Posted: 18.mar 2012, 21:36
frá kjellin
[youtube]tIRUfGPnrIw[/youtube]

sma video klippa, fra laugardeginum,
og þettað eru helvíti flottar myndir frá ykkur

Re: Sæluríki, Slunkaríki og Skjaldbreið 17.3

Posted: 18.mar 2012, 21:59
frá biggi72
Smekklegur þessi pajero.
En hvað voru þið lengi upp og niður aftur?

Re: Sæluríki, Slunkaríki og Skjaldbreið 17.3

Posted: 18.mar 2012, 22:26
frá Doror
Við vorum svona 10-15 mínútur upp og 6 mínútur niður.