Síða 1 af 1
Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 05.nóv 2011, 22:03
frá Árni Braga
Er ekki málið að skella sér á FJÖLL
hvernig væri nú að smala saman í góðan hóp
og skella sér í bíltúr,
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 06.nóv 2011, 09:42
frá hobo
Þessi helgi hentar mér vel.
Ég skal stimpla mig með, með fyrirvara um veður.
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 07.nóv 2011, 11:30
frá andrig
frí helgi, ég er til
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 07.nóv 2011, 13:00
frá kjartanbj
Vinnuhelgi.. kemst ekki
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 07.nóv 2011, 23:39
frá Árni Braga
þetta verður góð helgi trúið mér.
verðum með hitting á verkstæðinu hjá mér
á miðvikudag 16 nóv og förum yfir málin
kv
Árni
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 07.nóv 2011, 23:56
frá -Hjalti-
ég er til
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 08.nóv 2011, 14:33
frá hobo
Árni Braga wrote:þetta verður góð helgi trúið mér.
verðum með hitting á verkstæðinu hjá mér
á miðvikudag 16 nóv og förum yfir málin
kv
Árni
Ljómandi!
Þá vantar bara staðsetningu og tíma á miðvikudeginum.
Er einhver áfangastaður í huga?
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 08.nóv 2011, 17:20
frá Árni Braga
Ég er á Lynghálsi 10 gamla þýskíslenska húsið við hliðina á heiðrúnu vínbúð
hittumst þar kl; 20:oo
kv
Árni
ps ég hef í huga að gista allavega 1 nótt
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 15.nóv 2011, 15:02
frá andrig
það er ennþá on að hittast hjá þér annað kvöld?
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 15.nóv 2011, 15:29
frá Brynjarp
ég er að fara liklega inní setur og kerlingafjöll,,helgarferð
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 15.nóv 2011, 16:43
frá hobo
Er ekki orðið alveg snjólaust á hálendinu eða hvernig eru aðstæður?
Maður fer að hallast að því að máta sig í brekkunni við Jaka, frekar en að keyra inn í mitt land í drullu til að finna skafla..
Tala ég af viti eða er ég kominn í tuðgírinn?
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 15.nóv 2011, 16:56
frá Árni Braga
nei ég held að þetta sé rétt hjá þér
það er spurning að fresta þessu.
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 15.nóv 2011, 18:03
frá JonHrafn
Hitastig síðustu viku á hveravöllum segir allt sem segja þarf. 641metra hæð

Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 15.nóv 2011, 22:17
frá Árni Braga
Allir velkomnir í hitting ef þeir vilja
láta bara vita hér á spjalli.
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 16.nóv 2011, 18:50
frá hobo
Ég er að spá í að kíkja upp að Jaka á laugardag ef einhver vill kíkja með. Er með allar græjur nema að ég er ekki ennþá búinn að kaupa mér nógu sterkan spotta. Gott væri því ef viðkomandi ætti svoleiðis. Hver er til?
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 17.nóv 2011, 19:58
frá kjartanbj
ef ég væri ekki að vinna þá væri ég meira en til.. þarf að komast eitthvað að prufa jeppan og nýju dekkin
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 17.nóv 2011, 20:11
frá hobo
Er enginn sem kemst með mér, Hjalti gto varst þú ekki til?
Spáin er góð fyrir utan hitastig.
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 17.nóv 2011, 20:30
frá -Hjalti-
hobo wrote:Er enginn sem kemst með mér, Hjalti gto varst þú ekki til?
Spáin er góð fyrir utan hitastig.
Blessaður Hörður. Planið með að klára jeppan gekk ekki upp því rafsuðan hjá mér ákvað að yfirgefa samkvæmið. Fyrir utan það hvað mér þykir alveg hrikalega leiðinlegt að rúnta langjökul hehe
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 17.nóv 2011, 20:46
frá hobo
Afsakanir afsakanir.. :)
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 17.nóv 2011, 21:26
frá Árni Braga
Er þetta ekki vonlaus helgi ?
það er örugglega bara drulla og bleyta um allt eða hvað ?
Ef engin ætlar á fjöll þá er um að gera að dúlla bara í bílunum
og gera þá betri fyrir komandi vetur ef hann þá kemur
það er alltaf nóg að gera við að snudda í einhverju sem við kemur bílnum.
Re: Helgin 18 til 20 nóv
Posted: 18.nóv 2011, 12:54
frá hobo
Ætli maður sé ekki bara búinn að dunda nóg í þessum jeppa mínum undanfarið, farið að langa á fjöll.