Síða 1 af 1

Re: Hvar er snjór?

Posted: 31.okt 2011, 22:37
frá elfar94
ég komst í smá föl í skálafelli um daginn :) veit ekki hvort það sé ennþá

Re: Hvar er snjór?

Posted: 31.okt 2011, 22:54
frá Fetzer
skálafelli.. hvaa bara 1cm eða eitthvad

Re: Hvar er snjór?

Posted: 02.nóv 2011, 02:17
frá Oskar K
það voru nú þokkalegirskaflar á leiðinni uppá skálafell um dagin

Re: Hvar er snjór?

Posted: 02.nóv 2011, 10:55
frá -Hjalti-
Strákar það er ekki verið að tala um fólksbílafæri:)

Re: Hvar er snjór?

Posted: 02.nóv 2011, 12:47
frá KÁRIMAGG
Er ekkert að gerast á Lyngdalsheiði eða á því svæði ??
Ég er þá að spá í sleðafæri

Re: Hvar er snjór?

Posted: 02.nóv 2011, 12:55
frá -Hjalti-
Getur alveg gleymt því að það sé sleðafæri þar svona snemma Kári

Re: Hvar er snjór?

Posted: 02.nóv 2011, 14:29
frá LFS
tók þessa mynd nuna i hadeginu !

Image

Re: Hvar er snjór?

Posted: 02.nóv 2011, 15:56
frá Hjörvar Orri
Hvar er þetta?

Re: Hvar er snjór?

Posted: 02.nóv 2011, 22:20
frá Svenni30
Hjörvar Orri wrote:Hvar er þetta?


Myndi skjóta á Siglufjörð

Re: Hvar er snjór?

Posted: 02.nóv 2011, 23:36
frá LFS
heitur þettað er tekið a ólafsfirði eg gæti truað þvi að það se þokkalegasti snjór a lágheiðinni spain er samt ekki góð 6-7 gráður a föstudagin og strax farið að hlína !

Re: Hvar er snjór?

Posted: 05.nóv 2011, 19:52
frá Svenni30
Fór á rjúpu í dag á Lágheiðina. Fullt af snjó bara helvíti gaman.
En hefði mátt fá meira af rjúpu. Sá eina og náði henni.

Image

Image

Image

Image

Image

Re: Hvar er snjór?

Posted: 06.nóv 2011, 22:27
frá AgnarBen

Re: Hvar er snjór?

Posted: 06.nóv 2011, 22:50
frá Sævar Örn
Image

Við rætur Langjökuls hjá Jaka

Image

í 900m hæð, snerum við förin eftir okkur voru krapablaut og vatnið seitlaði eftir þeim, það hefur hinsvegar snjóað mikið og sprungur ábyggilega vel pakkaðar, það þyrfti bara að gera heljarfrost í viku þá yrði jökullinn greiðfær.

Re: Hvar er snjór?

Posted: 06.nóv 2011, 23:47
frá SHM
Ég var í ferðinni, sem AgnarBen vísar í hér fyrir ofan. Það snjóaði heilmikið að Fjallabaki aðfararnótt sunnudags og meðfylgjandi myndir voru teknar hér og þar á leiðinni frá Strútsskála niður í Rangárbotna. Snjódýptin var talsverð, sérstaklega á leiðinni úr Hvanngili og niður í Rangárbotnana. Ath. Myndirnar stækka ef smellt er á þær.

Kv. Sigurbjörn.

IMG_2556.jpg

IMG_2567.jpg

IMG_2570.jpg

IMG_2576.jpg

IMG_2582.jpg

Re: Hvar er snjór?

Posted: 07.nóv 2011, 01:10
frá elfar94
var að koma úr skálafelli, þar er góður snjór, 3 tilraunir og ég komst næstum alla leið upp, spólaði mig fastan í snjónum efst á veginum xd

Re: Hvar er snjór?

Posted: 07.nóv 2011, 02:42
frá Oskar K
á lödunni þá ? fór þarna upp á lækkuðum subaru í fyrradag

Re: Hvar er snjór?

Posted: 07.nóv 2011, 13:26
frá hobo
Góðar myndir hjá þér Sigurbjörn.
Maður sér það á svipnum á þér hve gott það er fyrir sálina að komast á snævi þakin fjöllin.
Sérstaklega svekkjandi fyrir okkur sófariddarana :)

Re: Hvar er snjór?

Posted: 07.nóv 2011, 14:24
frá AgnarBen
Það væri fínt ef það blotnaði aðeins í þessu og frysti svo en því miður þá er spáin þannig að það er bullandi hláka næstu daga. Þessi snjór hverfur örugglega mest allur .....

Re: Hvar er snjór?

Posted: 07.nóv 2011, 15:05
frá SHM
hobo wrote:Góðar myndir hjá þér Sigurbjörn.
Maður sér það á svipnum á þér hve gott það er fyrir sálina að komast á snævi þakin fjöllin.
Sérstaklega svekkjandi fyrir okkur sófariddarana :)


Takk fyrir. Það er rétt hjá þér að svona ferðir eru mjög góðar fyrir sálartetrið. Það gerði líka gæfumuninn hversu mikið snjóaði aðfararnótt sunnudagsins eins og myndirnar sýna. Maður reiknaði svo sem ekki með miklu eftir að hafa ekið inn í Dalakofa á auðum vegi á föstudagskvöldi og það var því mikill gleðigjafi fyrir alla að keyra til baka að hluta til sömu leið í snjó, sem á köflum náði upp í drifkúlu og stundum hærra á 44" Land Rovernum, sem fór fyrir hópnum.
Vonandi hverfur snjórinn ekki allur þrátt fyrir leiðinda veðurspá næstu daga.

Re: Hvar er snjór?

Posted: 14.nóv 2011, 10:46
frá elfar94
Oskar K wrote:á lödunni þá ? fór þarna upp á lækkuðum subaru í fyrradag


ég fór upp á skálafell á löduni, það var dágóður snjór þar. eg festi mig líklega því að ég er á ónýtum örmjóum dekkjum, hann liggur útí bremsum báðum megin að framan og ég var með hálfónýtan gírkassa

Re: Hvar er snjór?

Posted: 14.nóv 2011, 17:25
frá Fetzer
hahaha gast ekki verið með meiri "lödu" sýringu.. gamli góði :) en ef það var allt ut hert að framan, kveiknaði ekki i dekkjunum á leiðinni :)

Re: Hvar er snjór?

Posted: 14.nóv 2011, 19:24
frá elfar94
Fetzer wrote:hahaha gast ekki verið með meiri "lödu" sýringu.. gamli góði :) en ef það var allt ut hert að framan, kveiknaði ekki i dekkjunum á leiðinni :)

haha nei, sem betur fer ekki, ætli snjórinn hafi ekki kælt þau :p