Síða 1 af 1
fimmvörðuháls eða þórsmörk
Posted: 13.aug 2011, 23:59
frá mattador_vido
Sælir félagar.
Veit einhver hvernig færðin er frá skógum uppá fimmvörðuháls eða þórsmörk ?
Re: fimmvörðuháls eða þórsmörk
Posted: 14.aug 2011, 14:15
frá Skúli
Ef þú ert að spá í að ganga upp að gosstöðvum þá er það fínt beggja megin frá en mun styttra að ganga upp frá Básum. Hringurinn þaðan og aftur niður er ca. 6-7 tímar en talsvert lengra að ganga þangað frá Skógum. Vegurinn upp á háls er hins vegar ennþá lokaður og verður líklega ekki opnaður meðan hann liggur nánast í gegnum útihúsin á Ytri-Skógum, en það er eitthvað í vinnslu að finna nýtt vegstæði.
Rennifæri í Bása síðast er ég vissi.
Kv - Skúli
Re: fimmvörðuháls eða þórsmörk
Posted: 14.aug 2011, 18:12
frá Oskar K
bara flott færi í bása fyrir helgi, vegurinn góður og árnar ekkert til að tala um
Re: fimmvörðuháls eða þórsmörk
Posted: 17.aug 2011, 10:57
frá mattador_vido
Þakka ykkur fyrir... ég kíki á þetta