Nokkrar myndir frá Vatnajökli
Posted: 20.maí 2011, 16:40
Útivist fór fyrir stuttu 4 daga ferð um Vatnajökul. Fyrsti dagur frá Skálafellsjökli að Goðheimum og síðan niður að skála við Snæfell. Annar dagur um jökul að Sigurðarskála í Kverkfjöllum og þriðja daginn að Grímsfjalli og í Jökulheima. Síðasta daginn var farið í Hrauneyjar og heim. Yfirleitt gott færi fyrir 44 og síðan 38 í förum á eftir þeim. Oftar en ekki gott veður og gott skyggni. Gekk ágætlega nema Ram þurfti fljótlega að snúa við líklega með brotinn millikassa. Einnig brotnaði framöxull í Land Rover á öðrum degi. Krapi hér og þar frá jökli að Hrauneyjum en ekki djúpur allavega á þeim stöðum sem bílar fóru niður.