Síða 1 af 1

Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 10.mar 2011, 11:01
frá Grease Monkey
Sælir Félagar
Ég er að fara einbíla með nokkra félaga Nesjavallaleiðina og Lyngdalsheiðina á morgun og hugmyndin er að renna uppí skálpa, vitiði hvernig snjóalög eru á þessum leiðum, á maður von á veseni á 35" Pajero

Kv
Baldvin

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 10.mar 2011, 13:47
frá Brjótur
Já sæll !! Baldvin ég veit ekki fyrir víst hvernig pípuleiðin er en hef samt trú á að þú þurfir stærri dekk i hana og trúlega Gjábakkaveg líka og þú ferð EKKI í Skálpanes það veit ég fyrir víst, þú ferð upp á bláfellsháls á pæjunni, svona er að vera ekki á alvöru jeppa ( lesist Patrol ) :)

kveðja Helgi

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 10.mar 2011, 17:38
frá Grease Monkey
Brjótur wrote:Já sæll !! Baldvin ég veit ekki fyrir víst hvernig pípuleiðin er en hef samt trú á að þú þurfir stærri dekk i hana og trúlega Gjábakkaveg líka og þú ferð EKKI í Skálpanes það veit ég fyrir víst, þú ferð upp á bláfellsháls á pæjunni, svona er að vera ekki á alvöru jeppa ( lesist Patrol ) :)

kveðja Helgi


Takk fyrir þetta Helgi, mig var svo svosem búinn að gruna þetta, mér býðst 38" Patrol að láni fyrir þessa ferð en ég bara þori ekki að taka því því ég þarf að komast til baka líka hahaha (Lesist, Pajero Konungur jeppanna) fátt meira hressandi en tegunda rígur ;)

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 10.mar 2011, 22:46
frá Brjótur
Sæll aftur ég er nú ekkert að djóka sko með færðina :) verst að ég verð ekki til að draga þig þarna á morgun þar sem ég er að fara í Landmannalaugar, en farðu varlega kallinn :)

kveðja Helgi

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 10.mar 2011, 23:23
frá Freyr
Var á Gjábakkavegi í dag og fór inn að Skjaldbreið, færið var ágætt en þungir skaflar inn á milli, of þungir fyrir 35" Pajero og 38" patrol einbíla er á mörkunum.

Freyr

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 10.mar 2011, 23:43
frá þórarinn
Freyr wrote:Var á Gjábakkavegi í dag og fór inn að Skjaldbreið, færið var ágætt en þungir skaflar inn á milli, of þungir fyrir 35" Pajero og 38" patrol einbíla er á mörkunum.

Freyr


Þungt færi , meira að segja það þungt að 38" súkka var skilin eftir þarna uppfrá. þá er nú mikið sagt haha

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 11.mar 2011, 10:51
frá frikki
Helgi eigum við ekki bara að fara aftur þarna upp og syna mönnum hvernig á að gera þetta hehehe
kv
Frikki :)

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 11.mar 2011, 17:34
frá Habbzen
Ég fór þessa leið á miðvikudaginn og var á 31", ég komst þetta með mikilli hjálp frá stærri jeppum, eftir vörðu á lyngdalsheiðinni var vesen fyrir 38" og 44" bílana að finna góða leið og voru allir mikið í því að festa sig. En ég mæli enganveginn með því að þú farir þetta einbíla.

Mbk.

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 12.mar 2011, 09:56
frá Grease Monkey
Jæja þá er ferðin afstaðin og ég fór að ykkar ráðum og hélt mig bara við þjóðveginn og það gekk allt eins og í lygasögu, maður þarf að fara uppgrada uppúr Ártúnsbrekkubreytingunni það er nokkuð ljóst hehe

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 12.mar 2011, 20:11
frá Brjótur
Jú Frikki til er ég :)

Re: Nesjavallaleið/lyngdalsheiði

Posted: 13.mar 2011, 13:59
frá beygla
eg var þarna í gær á 38" bíl var mjög gott færi fór frekkar hratt yfir en myndi samt ekki fara einbíla á 35" bíl