Síða 1 af 1

Bláfellsháls/kjölur sunnan heiða

Posted: 01.feb 2010, 18:48
frá Polarbear
hér er ein færsla til að afmeyja þennan þráð :) ég kíkti uppá Bláfellsháls í gær og fékk vægast sagt sjokk. varla föl í veginum og bert utan hans. frá hálsi og eins langt og augað eygði til kerlingafjalla var rétt smá fölgráma að sjá og alls staðar sást í grjót og bera mela. það er sama og enginn snjór þarna uppfrá. nánast er fólksbílafært uppí Skálparnes.

Re: Bláfellsháls/kjölur sunnan heiða

Posted: 02.feb 2010, 09:00
frá ofursuzuki
Það er bara svona, þannig að ef ég næ ekki að klára Súkku fyrir þorrablót okkar í Húnvetningadeild F4x4 sem
halda á 19-21 feb.í Gíslaskála, þá get ég bara farið á konubílnum (33" Nissan Terrano) ef ekki snjóar mikið fram að því sem
eins og staðan er í dag er ekki beint útlit fyrir en skjótt skipast veður og það getur allt breyst.