Færð í þórsmörk

Til að skipuleggja ferðir, auglýsa eftir félögum, spyrja fregna af færð og ástandi vega.

Höfundur þráðar
Aparass
Innlegg: 308
Skráður: 25.sep 2011, 21:29
Fullt nafn: Guðni Þór Scheving

Færð í þórsmörk

Postfrá Aparass » 10.jan 2017, 20:31

Vitið þið hvernig færð er inn í þórsmörk og vitið þið hvort fært sé inn þar sem lónið var og hvort áin sem kemur úr jöklinum þar sé frosin eða hvort það sé enn hægt að ganga inn í jökulinn þar meðfram ánni?
kv.



User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1391
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: Færð í þórsmörk

Postfrá Járni » 13.jan 2017, 13:18

Er nú ekki með svörin á hreinu, en bróðir minn fór þangað á bílnum mínum rétt eftir áramót. Það gekk víst bara vel.
Land Rover Defender 130 38"


vidart
Innlegg: 138
Skráður: 07.sep 2011, 18:44
Fullt nafn: Viðar Þorgeirsson
Bíltegund: Toyota LC 90
Staðsetning: Reykjavík

Re: Færð í þórsmörk

Postfrá vidart » 15.feb 2017, 20:20

veit einhver hvernig færið er núna inní Þórsmörk?

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Færð í þórsmörk

Postfrá jongud » 16.feb 2017, 08:19

Sá myndir á fésbókinni frá einum sem fór á lítið breyttum 120 krúser inn í mörk um síðustu helgi.
Hann dró tvo ítalska túrista upp úr sandbleytu, en þeir voru á Suzuki swift bílaleigubíl.


Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 6 gestir