Síða 1 af 1

Hlöðufellsbrekkan við Laugarvatn

Posted: 06.feb 2011, 20:22
frá JonHrafn
Loksins kom snjór hérna suðurfrá, við réðumst nú ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því þessi brekka er helvíti erfið. Erum bara sáttir við 39.5" irokinn sem var vígður í þessari ferð, negldur í drasl og microskorinn.

En það vantaði sárlega driflæsingar, erum með 4,88 lánsköggla, alveg opna þar sem bæði 5.29 lsd drifin gáfu upp öndina síðastliðin mánuð.

http://www.youtube.com/watch?v=87Q6lWlthOI

1kzt eftir rebuild , nýtt hedd, skipt um allar legur, túrbínu ofl.. fyrsta ferðin eftir tilkeyrslu.
Image

Byrjar vel
Image

Kominn út fyrir slóðann, og gil fyrir neðan , brá svoldið. Hefði átt að keyra alveg uppi í hlíðinni.
Image

Image

Patti að smakka holuna.
Image

Helvíti mikil hækkun og þungt færi.
Image

Á endanum fékk hilux hita, mikið hjakk, mikil hækkun og logn. Pabbi horfir á eftir patrol . . . . enda sá bíll úthvíldur þar sem Toyotan ruddi alla leiðina fyrir hann :)
Image

Patrol í bjartsýniskasti
Image

Re: Hlöðufellsbrekkan við Laugarvatn

Posted: 06.feb 2011, 21:42
frá -Hjalti-
Ekkert smá flottur Hilux hjá ykkur !

Re: Hlöðufellsbrekkan við Laugarvatn

Posted: 06.feb 2011, 21:57
frá JonHrafn
Takk fyrir það.

En hann er endalaust í smíðum eins og bílarnir hjá flestum :þ Spurning hvernig er best að bæta kælinguna, intercoolerinn er að blocka vatnskassan, spurning um að setja ristar á húddið svo hitinn sleppi út og dragi kalt inn neðan frá.

Re: Hlöðufellsbrekkan við Laugarvatn

Posted: 07.feb 2011, 18:21
frá Hilmar Örn
Hvaða vatnskassa ertu með. Ég var með 2.4 Hilux vatnskassa við 3,0 d og var hann alltof lítill fyrir þessa vél. Ég lét Gretti smíða kassa fyrir mig úr botnunum á hilux kassa og hefur bílinn aldrei hitað sig eftir það. Áður var ég alltaf í hitavandamálum. Í prufutúrnum með nýjan vatnkassan var farið upp á Tungnafellsjökull á fullri gjöf í einum rikk og hreyfði hann ekki hitamælin við það. Ég er líka með intercooler fyrir framan og virðist það ekki hafa áhrif á kælinguna.

Hins vegar er opið á milli bodys og grindar hjá mér í kringum vélina þannig að loft nær að flæða þar út. Ég hef heyrt að menn hafi verið í hitavandamálum ef það er búið að loka of mikið í kringum vélina þannig að loft nái ekki að flæða almennilega út.

Re: Hlöðufellsbrekkan við Laugarvatn

Posted: 07.feb 2011, 18:22
frá JonHrafn
Þetta er 4runner kassinn, orginal, en splunkunýr, nýr vatnslás og vatnsdæla líka. En við erum búnir að loka alveg inn í brettunum sitthvoru megin við vélina. Og einangrunarmottuna undir húddinu, spurning að láta hana hverfa.

Re: Hlöðufellsbrekkan við Laugarvatn

Posted: 07.feb 2011, 22:40
frá Lindi
Ég lenti í því að minn var alltaf að hitasig ég kígti einn daginn á vasslásinn og var hann í henglum hefur ekki hitað sig eftir að ég skipti.

Re: Hlöðufellsbrekkan við Laugarvatn

Posted: 08.feb 2011, 22:38
frá Hilmar Örn
þú getur líka prófað að opna inn í brettunum, lítið mál að loka því aftur ef það virkar ekki.

Ég var alltaf með einangrunnarmottuna undir húddinu, þangað til í sumar að hún var farin að rifna þá tók ég hana úr. Hef ekki orðið var við neinn mun.