Síða 1 af 1

SNJÓR

Posted: 25.feb 2010, 10:01
frá Hagalín
Jæja eru menn eitthvað búnir að blana ferðir um helgina........
Veit af einum hóp á leið inn í laugar og verða fram á morgundaginn......

Re: SNJÓR

Posted: 25.feb 2010, 14:20
frá frikki
að sjáfsögðu verður snjórinn mátaður :)

Re: SNJÓR

Posted: 25.feb 2010, 14:50
frá jeepson
Það er víst að verða ófært við reynisfjallið rétt hjá vík. og á selfossi er orðið þungfært samkvæmt fréttum rás2 hafið þið heyrt eitthvað meir um færð á suður landinu.

Re: SNJÓR

Posted: 25.feb 2010, 17:25
frá Hagalín
Þeir sem fóru inn í laugar eru snúnir við. Voru víst á bílum frá 31" og upp í 38" :)
En þar er einhver snjór og blind bylur.....

Re: SNJÓR

Posted: 25.feb 2010, 17:39
frá JonHrafn
Það var 3gja punda færi fyrir hilux á 38" fram eftir degi hérna í Sandgerði.

Björgunarsveitin búin að vera að síðan kl 6.30, 2 bílar, og síðan eru 3 strákar úr björgunarsveitinni á einkabílum, allir á 38". 5 bílar non stop í allan dag að aðstoða.

Þannig að það ætti nú að vera hægt að finna flotta skafla um helgina :þ

Re: SNJÓR

Posted: 25.feb 2010, 18:21
frá jeepson
Ég er að keyra súkkuna mína hérna á 24pundum í snjónum semsagt harð oumpuðu. En ætli maður fari nú að hleipa æur dekkjunum niður í 10pund til að komast aðeins meir í púðrinu og sköflunum.

Re: SNJÓR

Posted: 25.feb 2010, 19:11
frá Stebbi
jeepson wrote:Ég er að keyra súkkuna mína hérna á 24pundum í snjónum semsagt harð oumpuðu. En ætli maður fari nú að hleipa æur dekkjunum niður í 10pund til að komast aðeins meir í púðrinu og sköflunum.


Þið getir gleymt þessu strax, ég er búin að vera á rúntinum í allan dag á VW Caddy og búin að sprengja alla skafla sem ekki var búið að skafa í burtu. :)

Re: SNJÓR

Posted: 25.feb 2010, 19:14
frá stebbi1
Ég ásamt galvöskum félögum ætlum að reyna komast úr mývatnssveit í kistufell.
Hvernig svosem það á eftir að ganga í öllum þessum snjó :D

Re: SNJÓR

Posted: 26.feb 2010, 12:07
frá EinarR
Ferðin í landmannalaugar var þannig að það ver einn á 31" dekkum (Jimny) annars voru þetta 33" súkkur sem voru alveg að meika það, 38" Hiluxar og 44" Patrólar. Ferðin fór þannig að þegar við vorum hálfnaðir uppettir frá Hrauneyum snéru þeir við sem höfðu vit á því, aðrir þjróskuðust áfram. Eitthver hluti snéri svo við eftir okkur og 4 voru eftir. 2 bílar voru 3 km frá laugum en snéru við þegar þeir heyrði kall frá hinum 2. Þar sem þeir snéru við var 110 cm púður og það mokaði niður snjó. Síðan á leiðini niður í eyjar sprengdi einn 3 dekk á bílnum hjá sér og eins og þeir orðuðu það "skignið er orðið fínnt, við sjáum á milli bíla og allt!" Massa reynsla og hel***** óheppni að það var bilur akkúrat þennan dag.

Re: SNJÓR

Posted: 26.feb 2010, 20:06
frá Meikarinn
Það er hópur á leið að norðan og uppí Gíslaskála og mér skilst að það sé rennifæri alveg að Hveravöllum en svo þyngist færðin eftir það.

Re: SNJÓR

Posted: 26.feb 2010, 22:09
frá Hagalín
Var að heira frá þeim inn í Gíslaskála og voru þau að lenda þar.
Lítill sem enginn snjór inn að Hveravöllum að norðan og svo
þegar komið er fram hjá Hveravöllum þyngist færið mikið og
er mjög þungt á köflum.
Þar er rosa blíða og stjörnubjart....