Síða 1 af 1

laugardagur

Posted: 30.jan 2015, 01:42
frá Rauðhetta
Sælir
ætlar einhver eitthvað á laugardag sem er til í að taka mig með, er á patrol 38" læstum

Kv Kristján

Re: laugardagur

Posted: 30.jan 2015, 02:32
frá reyktour
Hvar ertu staddur á landinu??

Re: laugardagur

Posted: 30.jan 2015, 08:44
frá Doror
Ég var að spá í að taka smá rúnt, er í RVK, 38" Grand.

Re: laugardagur

Posted: 30.jan 2015, 10:09
frá Rauðhetta
Já það vantaði, er í kópavogi

Re: laugardagur

Posted: 30.jan 2015, 18:39
frá Carlsen
Er að fara á skjaldbreiður og jökullin fer frá stöðinni ártúnholti kl 9,00
Fleirri bætast við á leiðinni allir velkomnir
Röggi 38 patrol.
S,8997677.

Re: laugardagur

Posted: 30.jan 2015, 19:43
frá Rauðhetta
hljómar vel

Re: laugardagur

Posted: 30.jan 2015, 20:57
frá Doror
Hljomar vel. Ætla að sjá hvort ég finni kóara.

Re: laugardagur

Posted: 30.jan 2015, 21:31
frá Jonasj
Líst vel á þetta.
Jónas
CJ 7 38"
8566538

Re: laugardagur

Posted: 31.jan 2015, 21:03
frá Jonasj
Skemmtilegur dagur í dag. Kristján á Rauðhettu fær sérstakar þakkir fyrir að draga mig á bensínstöðina í Mosó frá Skjaldbreiðarhrauni. Hálf asnalegt að komast þá að því að aftari tankurinn var nánast fullur og þegar skipt var á fremri þá tæmdi hringrásardælan hann 123. Einhver kengur á bensínslöngunni og bíllinn missti þrýsting. Þetta þarf að laga fyrir næstu ferð. Hreinlega hönnunargalli hjá mér.

Re: laugardagur

Posted: 02.feb 2015, 20:32
frá Rauðhetta
Já þetta var spennandi og skemmtilegur dagur
Takk fyrir mig

Re: laugardagur

Posted: 03.feb 2015, 14:07
frá Jonasj
kíkti á bensínið hjá mér. Málið virðist liggja í tanknum. Það er eitthvað sem blokkar rennslið úr honum. Dæla og lagnir í lagi.
Ætli ég þurfi ekki að tæma hann og reyna að opna.

Slæmt að verða "bensínlaus" með ca 120 l á aðal tanknum

Re: laugardagur

Posted: 04.feb 2015, 00:12
frá Rauðhetta
þetta er svosem ekkert "slæmt" bara áskorun að finna ástæðuna
loftunin kanski?

KV Kristján

Re: laugardagur

Posted: 04.feb 2015, 10:52
frá Jonasj
Tæmdi tankinn og fann hvað þetta var. Þetta var þéttisílikon. Smá ormur sem hefur þrýst úr boltagati og dottið inn í tankinn. Passaði akkúrat í úttakið og þétti 100%. Vona að það séu ekki fleiri svona í tanknum.