Síða 1 af 1

Skjaldbreið, hvernig er færið

Posted: 13.des 2014, 08:42
frá Allithor
Jæja, eru einhverjir búnir að fara á Skjaldbreið og nágrenni núna nýlega? Er ekki að verða komið sleðafæri?

Kv.

Re: Skjaldbreið, hvernig er færið

Posted: 13.des 2014, 08:49
frá Gutti
Skjaldbreiður
Um Skjaldbreið :)
Ég ætla að taka rúnt inná Uxahryggi í dag, ég skal láta þig vita í kvöld hvort það er ekki einhver snjór þarna uppfrá.

Re: Skjaldbreið, hvernig er færið

Posted: 13.des 2014, 21:58
frá Gutti
Það var nóg af snjó og sköflum til þess að leika sér á jeppa inná uxahryggjum og Kaldadal en ekki skemmtilegt sleðafæri að mínu mati.

Re: Skjaldbreið, hvernig er færið

Posted: 13.des 2014, 22:15
frá Ford F250
nóg af sköflum til þess að leika sér í bara gaman að kíkja þángað í dag

Re: Skjaldbreið, hvernig er færið

Posted: 14.des 2014, 09:50
frá gunnarb
Við fórum á 2 44" hiluxum fyrir viku langleiðina upp í Slunkaríki, um Kaldadal. Þá var mikið af nýföllnum snjó sem gerði færið þungt á köflum. Það var hinsvegar lítið af snjó þar til við vorum komnir nokkra km inn á Skessubásaveg (eins og Jón Ofsi lagði til að línuvegurinn norðan við Skjaldbreið yrði kallaður :-)

Re: Skjaldbreið, hvernig er færið

Posted: 14.des 2014, 20:41
frá Allithor
Takk fyrir þetta, við ætlum að kíkja á Heklusvæðið.