Sælir,
varðandi Langjökul almennt langar mig að vara við aðstæðum á jöklinum þessa dagana. Vorum á sprungubjörgunaræfingu fyrir ofan túristasleðarúntinn Skálpanes-megin á laugardaginn. Það er snjór á jöklinum sem heldur engu. Misstum tvo bíla niður á þessum stutta kafla upp að svæðinu.
Fjöldinn allur af björgunarmönnum stigu í gegnum sprungur á 100-200m spotta frá bílum/sleðum að verkefnunum. Amk. tveir fóru í sprungur, í línu. Félagi minn hvarf ofan í skafl fyrir aftan mig sem ég var nýbúinn að labba yfir, fjóra metra niður og nóg eftir fyrir neðan hann.
Héldum síðan upp á jökul, það var krapi þegar ofar dró en hart og fínt færi uppi á hájöklinum, í 1100-1200 metrum. Brekkan upp í Fjallkirkju erfið og hálka í henni, rétt við núll gráður þar uppfrá.
Mætti alveg snjóa helling þarna og frjósa áður en jökullinn verður góður til ferðalaga.
Minni á sprungupælingarnar í eldri þræði, förum ekki á jökla án þess að vera með belti, línu, búnað til að hífa félaga upp og kunnáttu til þess. Búnaður líka útlistaður hér:
viewtopic.php?f=2&p=119354