Sauðahjúkur, séð yfir gosstöðvar

Til að skipuleggja ferðir, auglýsa eftir félögum, spyrja fregna af færð og ástandi vega.

Höfundur þráðar
Valssons
Innlegg: 6
Skráður: 27.mar 2014, 14:48
Fullt nafn: Tjörvi Valsson
Bíltegund: Vitara

Sauðahjúkur, séð yfir gosstöðvar

Postfrá Valssons » 09.sep 2014, 15:13

"Hundrað á dag á Sauðahnjúki
Náttúra Frá því á fimmtudagskvöld hafa um eitt hundrað manns á dag fylgst með eldgosinu í Holuhrauni frá Vestari-Sauðahnjúki sem er vestur af Snæfelli.
Náttúra

Frá því á fimmtudagskvöld hafa um eitt hundrað manns á dag fylgst með eldgosinu í Holuhrauni frá Vestari-Sauðahnjúki sem er vestur af Snæfelli. Um þrjátíu bílar hafa komið þangað á hverjum degi, flestir seinnipartinn, og fólk fylgist með gosinu sem er í um fimmtíu kílómetra fjarlægð í loftlínu.

"Þetta er umferð sem við höfum eiginlega aldrei séð á þessu svæði og allra síst í september," segir Agnes Brá Birgisdóttir, þjóðgarðsvörður yfir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Aðallega eru þetta Íslendingar sem koma á jeppunum sínum og leggja í bílastæði sem þarna er. Þaðan er hægt að ganga í um tuttugu mínútur stikaða leið upp á topp fjallsins. Á bílastæðinu var áður pláss fyrir fimm til átta bíla en búið er að fjórfalda stærð þess til að koma fleiri bílum fyrir.

Páll Guðmundur Pálsson, sem rekur Laugafell Highland Hostel, er einn þeirra sem hafa skoðað gosið frá þessu sjónarhorni. "Ég fór þarna á laugardagskvöldið

og kíkti á gosið með félögum mínum. Þá taldi ég 22 bíla," segir hann. "Það er ekki nema einn og hálfur tími frá Egilsstöðum að rúlla þetta og þetta er besta útsýnið sem er í boði, utan lokunarsvæðis." Hann segir fallegt að horfa á eldgosið í ljósaskiptunum en að degi til sést það ekkert sérlega vel."

Grein tekin frá fréttablaðinu


Einhver sem veit meira um ástand vega og hefur mögulega áhuga á að fara um helgina?



Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 10 gestir