Síða 1 af 1
Gisting í Reykjafirði á Ströndum ?
Posted: 29.apr 2014, 13:38
frá AgnarBen
góðan dag
Veit einhver hér hvaða möguleikar eru með vetrargistingu í Reykjafirði á Ströndum ? Fann þetta á netinu en á í erfiðleikum með að ná í einhvern í þessum númerum
http://www.reykjarfjordur.is/Eru fleiri gistimöguleikar þarna ?
kveðja
Agnar
agnarben@gmail.com893 0557
Re: Gisting í Reykjafirði á Ströndum ?
Posted: 29.apr 2014, 17:08
frá villi58
Það eru nokkur hús þarna, man ekki hvað mörg en þegar ég var þarna þá var gist í fjórum húsum.
Grunar að þú getir fengið einhver svör á hafnarvoginni Ísafirði.
Re: Gisting í Reykjafirði á Ströndum ?
Posted: 29.apr 2014, 18:58
frá jeppakall
veit að sá sem sér um þetta heitir Þröstur,gisti þarna um síðustu helgi
Re: Gisting í Reykjafirði á Ströndum ?
Posted: 30.apr 2014, 09:34
frá AgnarBen
Eru einhver snjóalög á flatlendinu í Reykjafirði, er jeppafært þarna niður ?
Veistu hvernig ég næ í þennan Þröst ?
ps, ef einhver veit um ódýra gistingu í kringum Hólmavík, sumarbústað eða eitthvað slíkt þá væri vel þegið að heyra af því ....
Re: Gisting í Reykjafirði á Ströndum ?
Posted: 30.apr 2014, 16:01
frá Úlfur
Það er í minningunni býsna bratt niður í fjörðinn af hálsunum sitt hvoru megin, ekki þannig að maður þyrfti að styðja sig við grjót, en ekki þannig að maður myndi hugsa það sem bílaleið. Gæti verið minna bratt að fara skriðjökulinn, en hann er nokkuð sprunginn á sumrin. Þú getur skoðað hann t.d. á þessum loftmyndum
http://vegasja.vegagerdin.is/Þá er líklega farið að saxast á snjóinn neðst ef marka má mynd dagsins
http://rapidfire.sci.gsfc.nasa.gov/imag ... terra.250mÉg fór þess leið ofan af jökli og til baka aftur daginn eftir í lok maí, fyrir nokkrum árum, með áðurnefndum Þresti og þá skildum við skíðin eftir á hálsinum milli Reykjafjarðar og Þaraláturfjarðar, þegar snjóinn þraut og gengum svo niður brekkuna ofan í fjörðinn. Það er líklegast skásta leiðin, en þú gæti lent í að þurfa að ganga 2 til 3 km síðasta spölinn.
Re: Gisting í Reykjafirði á Ströndum ?
Posted: 30.apr 2014, 16:05
frá Úlfur
Og Þröstur er Jóhannesson og býr á Ísafirði
Re: Gisting í Reykjafirði á Ströndum ?
Posted: 30.apr 2014, 22:02
frá jeppakall
enginn snjór þegar komið er niður í fjörðinn, full seint að fara þetta á jeppum núna að mínu mati. brekkan er snjólítil og erfið, fórum niður jökulinn innst í fyrðinum og það var allt í lagi þá allavega ,snjóbrýr sem héldu vel.