Vantar kóara frá Ak. á Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Til að skipuleggja ferðir, auglýsa eftir félögum, spyrja fregna af færð og ástandi vega.
User avatar

Höfundur þráðar
Doddi23
Innlegg: 194
Skráður: 14.jún 2012, 21:59
Fullt nafn: Þórður Már Björnsson
Bíltegund: Jepp Cherokee 91 4,0
Staðsetning: Rvk

Vantar kóara frá Ak. á Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá Doddi23 » 25.feb 2014, 23:06


Ég er hugsanlega að leita mér að góðum kóara í alvöru fjallaferð/þorrablót í Kverkfjöllum um helgina (fimmtudagskvöld til sunnudagskvöld). Konan er veik og mig vantar því staðgengil sem er til í allt ;)
Þarf að sjálfsögðu að borga mat og gistingu fyrir sig og ekki væri verra ef hann gæti lagt eitthvað í eldsneytispúkk (Því ekki er þetta ódýr túr).
Við förum frá Akureyri um 19:30 á fimmtudaginn, eða hugsanlega snemma á föstudagsmorguninn.

Ps. Ég er á 44" Patrol

Kv.
Doddi
GSM 779-7809
Síðast breytt af Doddi23 þann 26.feb 2014, 20:13, breytt 2 sinnum samtals.



User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: Vantar kóara fyrir Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá hobo » 26.feb 2014, 00:22

Doddi23 wrote: Konan er veik og mig vantar því staðgengil sem er til í allt ;)


Ég var sko alveg til í að vera kóarinn þinn, alveg þangað til ég las þetta :)


biturk
Innlegg: 971
Skráður: 26.maí 2012, 10:42
Fullt nafn: Gunnar Þórólfsson
Bíltegund: Daihatsu feroza
Staðsetning: Akureyri

Re: Vantar kóara fyrir Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá biturk » 26.feb 2014, 00:45

hobo wrote:
Doddi23 wrote: Konan er veik og mig vantar því staðgengil sem er til í allt ;)


Ég var sko alveg til í að vera kóarinn þinn, alveg þangað til ég las þetta :)


verð að þetta er dealbreaker í ljósi þess að ég á til að drekka talsvert mikið og vera til í allskyns flipp
head over to IKEA and assemble a sense of humor

User avatar

Höfundur þráðar
Doddi23
Innlegg: 194
Skráður: 14.jún 2012, 21:59
Fullt nafn: Þórður Már Björnsson
Bíltegund: Jepp Cherokee 91 4,0
Staðsetning: Rvk

Re: Vantar kóara fyrir Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá Doddi23 » 26.feb 2014, 08:15

biturk wrote:
hobo wrote:
Doddi23 wrote: Konan er veik og mig vantar því staðgengil sem er til í allt ;)


Ég var sko alveg til í að vera kóarinn þinn, alveg þangað til ég las þetta :)


verð að þetta er dealbreaker í ljósi þess að ég á til að drekka talsvert mikið og vera til í allskyns flipp



Voðaleg viðkvæmni er þetta, ég sagði aldrei að þið þyrftuð að gera allt sem hún gerir ;)

User avatar

jongud
Innlegg: 2697
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Vantar kóara fyrir Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá jongud » 26.feb 2014, 08:24

EDIT
Skófludrengur óskast...

User avatar

Höfundur þráðar
Doddi23
Innlegg: 194
Skráður: 14.jún 2012, 21:59
Fullt nafn: Þórður Már Björnsson
Bíltegund: Jepp Cherokee 91 4,0
Staðsetning: Rvk

Re: Vantar kóara fyrir Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá Doddi23 » 26.feb 2014, 17:06

Jæja þá þar sem það virðast ekki vera neinir alvöru jeppamenn eftir hérna á Akureyri sem hafa áhuga á að halda mér vakandi með gamansögum og annari vitleysu, þá stefnir allt í að maður hangi bara heima með skottið á milll lappana eins og aumingi :(
Takk fyrir mig og góða nótt.

User avatar

jongud
Innlegg: 2697
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Vantar kóara fyrir Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá jongud » 26.feb 2014, 17:23

Ekki örvænta, það les þetta kannski einhver í kvöld :)


biturk
Innlegg: 971
Skráður: 26.maí 2012, 10:42
Fullt nafn: Gunnar Þórólfsson
Bíltegund: Daihatsu feroza
Staðsetning: Akureyri

Re: Vantar kóara fyrir Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá biturk » 26.feb 2014, 18:22

Doddi23 wrote:Jæja þá þar sem það virðast ekki vera neinir alvöru jeppamenn eftir hérna á Akureyri sem hafa áhuga á að halda mér vakandi með gamansögum og annari vitleysu, þá stefnir allt í að maður hangi bara heima með skottið á milll lappana eins og aumingi :(
Takk fyrir mig og góða nótt.


ég hefði gaman af því að koma með en ég bara því miður á ekki pening og það er vinnuhelgi hjá konunni svo ég verð með guttan, annars hefði verið gaman að koma með þér :)
head over to IKEA and assemble a sense of humor

User avatar

Höfundur þráðar
Doddi23
Innlegg: 194
Skráður: 14.jún 2012, 21:59
Fullt nafn: Þórður Már Björnsson
Bíltegund: Jepp Cherokee 91 4,0
Staðsetning: Rvk

Re: Vantar kóara frá Ak. á Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá Doddi23 » 27.feb 2014, 23:43

Jæja þá aftur, konana skriðinn á lappir þannig að það var stokkið í að gera bílinn klárann og stendur hann því eldsneytaður og pakkaður út á plani og bíður ftir að fara af stað kl 7:00 í fyrramálið :)
Þá er bara að vona að konan leggist ekki fyrir aftur og verði ófær um að koma með og þjóna manni til borðs, bera í mann öl og svona á blótinu :p

Kv.
Doddi (sem er nokkuð sæll í augnablikinu)

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: Vantar kóara frá Ak. á Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá hobo » 28.feb 2014, 00:26

Góður! :)

User avatar

jongud
Innlegg: 2697
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Vantar kóara frá Ak. á Þorrablót Austurlandsdeildar 4x4

Postfrá jongud » 28.feb 2014, 08:37

Sko til!
Skemmtið ykkur vel.


Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur