Léttar leiðir á Reykjanesi

Til að skipuleggja ferðir, auglýsa eftir félögum, spyrja fregna af færð og ástandi vega.

Höfundur þráðar
baldvinl
Innlegg: 6
Skráður: 25.jan 2014, 20:55
Fullt nafn: Baldvin Lárus Sigurbjartsson
Bíltegund: Toyota, VW

Léttar leiðir á Reykjanesi

Postfrá baldvinl » 20.feb 2014, 13:30

Sælir,
Vitiði um einhverjar skemmtilegar leiðir á Reykjanesinu sem eru léttar fyrir óbreyttan jeppa til að leika sér og æfa sig?

Kv. Baldvin Lárus


Baldvin Lárus Sigurbjartsson
baldvinl@simnet.is

2013 VW Golf TDI
1998 Toyota Land Cruiser 90 33"

2006 Toyota Avensis Wagon (Seldur)
2011 VW Polo TDI (Seldur)

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: Léttar leiðir á Reykjanesi

Postfrá Tómas Þröstur » 20.feb 2014, 14:56

Td Djúpavatnsleiðin á milli Vatnsskarðsnáma og Suðurstrandarvegar.

User avatar

Lindemann
Innlegg: 147
Skráður: 02.feb 2010, 17:24
Fullt nafn: Jakob Bergvin Bjarnason
Bíltegund: Cherokee ZJ

Re: Léttar leiðir á Reykjanesi

Postfrá Lindemann » 20.feb 2014, 23:24

Djupavatnsleiðin er fín til að leika sér, oft dálítill snjór þar!

En ég mæli með því að menn fari samt aldrei einbíla þó það sé verið að fara stutt, það er t.d. ekki símasamband allsstaðar á djúpavatnsleiðinni og ekki gott ef menn festa sig.
Suzuki Vitara '97 32"
Jeep Grand Cherokee '95 38"


andrijo
Innlegg: 111
Skráður: 22.aug 2011, 14:37
Fullt nafn: Andri Johnsen
Bíltegund: Patrol 35"

Re: Léttar leiðir á Reykjanesi

Postfrá andrijo » 21.feb 2014, 00:47

fór áleiðis að djúpavatni í dag og þar er helvíti mikið krapadrull en allt í lagi...líka gaman að keyra breiðdal á milli vatnsskarðs austan við námuna á krýsuvíkurvegi og að bláfjallavegi...bara halda sig á veginum:)
Það er virkilega sorglegt að sjá hvernig hjóla/fjórhjólamenn og jeppamenn sem ekki kunna sig hafa farið með vigdísarvelli og hlíðarnar í sveifluhálsi og breiðdal, ekki til fyrirmyndar og mun líklega ekki jafna sig næstu áratugi.

Svo er skemmtilegur slóði sem hægt er að keyra ef farið er að syðri enda kleifarvatns og beygt til hægri við skilti sem stendur á hverahlíð, það glittir í nokkra kofa við vatnið, slóðinn fer framhjá kofunum og upp í hlíðina. Ætla svosem ekki að fullyrða um hvort þetta sé löglegur slóði eða ekki, getur einhver svarað því?

bk.
Andri

User avatar

Subbi
Innlegg: 282
Skráður: 05.jan 2013, 00:23
Fullt nafn: Guðmundur Hj Falk
Bíltegund: GMC Suburban

Re: Léttar leiðir á Reykjanesi

Postfrá Subbi » 26.feb 2014, 01:53

Slóðin sunnan við kleifarvatn liggur inn að Gullbringu sem Sýslan er skírð eftir og er Löglegur og búinn að vera þarna lengi og notaður til upprekstrar og smölunar hér áður fyrr einnig ef að lítið er í vatninu er hægt að fara austan með fjöruni til baka og koma upp hjá Lambhagatjörnini sem nú er þurr
Kemst allavega þó hægt fari


Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 13 gestir