Síða 1 af 1

Ferð annan i jolum

Posted: 25.des 2013, 19:25
frá Doror
Nu virðist vera agætis spa og bjartviðri hérna sunnan til. Eru menn spenntir fyrir því að taka góðan rúnt a morgun?

Re: Ferð annan i jolum

Posted: 25.des 2013, 19:51
frá gráni
Maður nennir nú ekki einhverju rúnteríi annað hvort að fara í almennilega jeppaferð eða vera bara heima!

Re: Ferð annan i jolum

Posted: 25.des 2013, 20:38
frá Tollinn
Er að spá í að fara eitthvað um helgina ef viðrar

Kv Tolli

Re: Ferð annan i jolum

Posted: 25.des 2013, 20:53
frá Ragnare
Eina vitið að kíkja á morgun.

Re: Ferð annan i jolum

Posted: 25.des 2013, 21:05
frá Doror
Þetta má vera alvöru ferð, fara tímanlega og eyða öllum deginum á fjöllum.

Re: Ferð annan i jolum

Posted: 25.des 2013, 21:39
frá Doror
Ég og Ragnar ætlum að fara inn að Langjökli á morgun, upp Gjábakkaveg og þaðan af.

Mæting á Select klukkan 9ish.

Re: Ferð annan i jolum

Posted: 26.des 2013, 20:40
frá Doror
Tókum virkilega góðan rúnt í dag frá Gjábakkavegi að vörðu, þaðan að og uppá Skjaldbreið. Renndum svo niður af henni norðaustanverðri í skála við Tjaldafell. Eftir smá matarpásu þar fórum við inn að Stóra Björnsfelli í feiknamiklum snjó og svo þaðan suður að Skjaldbreiðarvegi og Uxahryggina að Þingvöllum. Talsvert komið af snjó og lítið mál að keyra upp Skjaldbreiðina sunnan megin frá.

Fleiri myndir má sjá hér: https://www.facebook.com/media/set/?set=a.10152461931615898.1073741834.538965897&type=1&l=0a8a47f76c