Síða 1 af 1

Kjalvegur.

Posted: 01.aug 2013, 22:46
frá grallarinn
Veit einhver hvort Kjalvegur er skárri en í fyrrasumar?Kannski verið heflaður í vor eða sumar.

Re: Kjalvegur.

Posted: 01.aug 2013, 23:34
frá Gunnar00
grallarinn wrote:Veit einhver hvort Kjalvegur er skárri en í fyrrasumar?Kannski verið heflaður í vor eða sumar.


veit til þess að hann var heflaður í síðasta eða þar síðasta mánuði. spurning hversu vel það hefur haldið sér.

Re: Kjalvegur.

Posted: 01.aug 2013, 23:46
frá svennib
Ók Kjalveg fyrr í vikunni og er hann svo sem þokkalegur þegar búið er að hleypa úr. Þó nokkuð farið að myndast af þvottabrettum hér og þar. Mundi ekki fara með vagna þarna yfir nema að þeir séu á þeim mun betri fjöðrunarbúnaði.

Re: Kjalvegur.

Posted: 02.aug 2013, 01:00
frá Grásleppa
Dró tjaldvagn yfir kjöl í seinustu viku.. margir kaflar þar sem hraðinn var þetta 10-15 km/h en vagninn var líka ekkert á neitt spes fjöðrun, en við fengum einhverjar 25°c í kerlingarfjöllum svo það bætti það upp og rúmlega það!

Re: Kjalvegur.

Posted: 18.aug 2013, 03:10
frá Kyndilsguggan
Orðaði þetta svona hjá mér þarsíðustu helgi:

Í þetta sinn um Kjöl ég skreið,
og Creedence í tækið setti,
greyið bíllinn fyrir það leið,
að fara þetta þvottabretti!
:)

En einmitt, bara hleypa úr þá er það ágætt.

Re: Kjalvegur.

Posted: 28.aug 2013, 23:42
frá risinn
Kjalvegur er ??? Búinn að vera að fara margar ferðir upp að Hvítárvatni í sumar á allskonar bílum, og núna er staðan þannig að það er nánast snjó úrhleyping. Var þarna í gær á 46" Liner í 7 psi, og var að að spá í að fara neðar, en nennti ekki að fara út. Holótur vegur er eitthvað sem að hefur öðlast nýja merkingju.

Kv. Ragnar