Síða 1 af 1
					
				Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 00:35
				frá frikki
				Er búið að opna Gæsavatnaleið og ef ekki hvenær þá
kkv
Frikki
			 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 00:48
				frá frikki
				
			 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 07:48
				frá Hjörturinn
				Hvað er það sem stendur fyrir því að þetta sé ekki enn opið?
			 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 08:34
				frá Einfari
				Hjörturinn wrote:Hvað er það sem stendur fyrir því að þetta sé ekki enn opið?
Spurðu Vegagerðina
 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 08:54
				frá Hansi
				Vika hálfur mánuður í opnum F910 segir vegagerðin, snjór og aurbleyta... 
Segjast ekki vera með gæsavatnaleiðina sem slíka á sinni könnu...
			 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 10:12
				frá ivar
				Ég veit um mann sem gæti verið ég eða eh annar sem hefur keyrt þessa leið fyrir opnun á sumrin.
Þarna hafa leynst snjóskaflar í skörðum ofl og einn ákveðinn skafl að mig minnir stuttu eftir gæsavatnaskála sem fer seint.
Hefur ekki verið nein aurbleyta þau skipti sem ég hef farið en hinsvegar er þetta grítt og óskemmtilegt ef þarf að spóla í smá snjóskafli þar sem grunnt er á grjót.
Myndi samt halda að þetta væri orðið vel fært fullbreyttum jeppum í dag.
			 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 11:15
				frá HaukurB
				Voru allt að 3-5m háir snjóskaflar fyrir c.a. viku þegar hálendisvakt í Dreka fór þangað, held það eigi að skoða ástand á veginum aftur í þessari viku (að mig minni)
			 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 20:16
				frá kjartanbj
				það er engin önnur leið úr Nýjadal yfir í Drekagil/Herðubreiðarlindir sem er hægt að fara? spurning um að spjalla við björgunarsveitina bara upp í Nýjadal og sjá hvernig staðan er eða hvort þeir vita eitthvað, fullbreyttir jeppar á ferð, einn tveir skaflar ættu ekki að vera vandamál, skil samt ekki ég skoðaði hálendiskortið um daginn og þá var ekki merkt lokun þarna
			 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 22:25
				frá -Hjalti-
				kjartanbj wrote:það er engin önnur leið úr Nýjadal yfir í Drekagil/Herðubreiðarlindir sem er hægt að fara? spurning um að spjalla við björgunarsveitina bara upp í Nýjadal og sjá hvernig staðan er eða hvort þeir vita eitthvað, fullbreyttir jeppar á ferð, einn tveir skaflar ættu ekki að vera vandamál, skil samt ekki ég skoðaði hálendiskortið um daginn og þá var ekki merkt lokun þarna
Hægt að fara Sprengisand og Vikrafellsleið með smá snúning
 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 22.júl 2013, 23:45
				frá HaukurB
				kjartanbj wrote:það er engin önnur leið úr Nýjadal yfir í Drekagil/Herðubreiðarlindir sem er hægt að fara? spurning um að spjalla við björgunarsveitina bara upp í Nýjadal og sjá hvernig staðan er eða hvort þeir vita eitthvað, fullbreyttir jeppar á ferð, einn tveir skaflar ættu ekki að vera vandamál, skil samt ekki ég skoðaði hálendiskortið um daginn og þá var ekki merkt lokun þarna
Bæði Gæsavatnaleið og Dyngjufjallaleið (F910) eru lokaðar, en eins og Hjalti segir þá geturu farið inn á Sprengisand og farið inn á Vikrafellsleið, annars er það bara þjóðvegurinn og langa leiðin. Mætti samt alveg merkja Gæsavatnaleið ófæra, ætti ekki að vera mikið vesen fyrir vel breytta bíla að fara þessa leið.
 
			
					
				Re: Gæsavatnaleið
				Posted: 23.júl 2013, 22:21
				frá Máni
				Það er nú pottþétt töluverður snjór ennþá á Dyngjufjallaleiðinni. En samkvæmt öruggum heimildum er gamla góða Gæsavatnaleiðin vel fær breyttum jeppum og trukkum. Einhverjir smáskaflar, en ekkert sem stoppar menn skilst mér