Síða 1 af 1
Hrafntinnusker á óbreyttum jeppa ?
Posted: 21.júl 2013, 17:19
frá -Hjalti-
Hvernig er það , er vegurinn þokkalegur frá Rauðufossafjöllum yfir í Hrafntinnusker ( Allavega að skaflinum ) og fær óbreyttum jeppa ?
Re: Hrafntinnusker á óbreyttum jeppa ?
Posted: 21.júl 2013, 20:01
frá Grásleppa
Þekki svæðið ekki alveg nógu vel til að útlista þessu, en ég veit um fólk sem ætlaði í Hrafntinnusker frá Landmannahelli en komst ekki alla leið útaf sköflum.. ert þú kannski að meina leiðina frá Syðri Fjallabaksleið inní Hrafntinnusker?
Re: Hrafntinnusker á óbreyttum jeppa ?
Posted: 21.júl 2013, 22:39
frá Bskati
Ég hitti útlending á Jimny þarna fyrir nokkrum árum eftir að hafa jeppast í margar klukkustundir á tveimur 38 tommu hiluxum.
En Jimny fer auðvitað mikið meira heldur en flestir breytir jeppar, enda ber ég óttablandina virðingu fyrir þeim :)