Síða 1 af 1
snæfellsjökull.
Posted: 11.maí 2013, 23:36
frá 66kall
ég er að spá í ferð á jökulinn um næstu helgi 18 maí, og vantar upplýsingar, til dæmis hvaðan er lagt af stað upp, færð, og er eitthvað að varast, er á ólæstum 38" hilux, takk.
Re: snæfellsjökull.
Posted: 13.maí 2013, 09:30
frá Tómas Þröstur
Það er fólksbílafær vegur upp að jökli suðaustur af jöklinum rétt hjá Hellnum/Arnarstapa. Eitthvað er af sprungum auðvitað í jöklinum en aðalhættan er þegar upp er komið - þverhnípt niður vestanmegin á toppnum og jú þetta er bratt ef ís - hef séð bíla renna til baka niður stjórnlítið
Re: snæfellsjökull.
Posted: 13.maí 2013, 21:17
frá 66kall
takk fyrir þetta tómas, nú vonast ég bara eftir góðu veðri.