Síða 1 af 1

Hrunamannaafréttur-Kerlingarfjöll-Setur-Sóleyjarhöfði

Posted: 23.mar 2013, 07:38
frá Hagalín
Fórum í Setrið í November nokkrir saman á bílum frá 33" - 46"
Hefði mátt vera meiri snjór en Sóleyjarhöfðinn var orðinn heldur fyrir F250 46".
Fengum flott veður upp Hrunamannaafrétt inn í Leppistungur og í Kerlingarfjöll.
Okkur tókst að koma LanCr 120 33" nánast klakklaust upp í Kerlingarfjöll þar sem hann var skilinn eftir.
Milli Kerlingarfjalla og Seturs fengum við snarvitlaust veður og vorum einhverja 6klst þar á milli.
Á sunnudeginum fórum við yfir Sóleyjarhöfðann og niður í Hrauneyjar þar sem ferðinni var slitið fyrir suma.

Fórum við svo á tveimur bílum aftur upp Kjalveg til að sækja 120 LandCr.

Flottur túr og var þetta jómfrúar-túrinn á F250 hjá mér.

Set inn tengil inn á ljósmyndarann sem var með í för og njótið myndanna.

Hagalín

http://www.facebook.com/#!/media/set/?s ... 638&type=3

Re: Hrunamannaafréttur-Kerlingarfjöll-Setur-Sóleyjarhöfði

Posted: 23.mar 2013, 10:21
frá RúnarA
Glæsilegt, ekki neinn venjulegur ljósmyndari.

Rúnar