Síða 1 af 1

Sunnudagsskreppur 24/3

Posted: 22.mar 2013, 23:03
frá Doddi23
Jæja mér langar að athuga hvort það hafi einhver áhuga á að fara í smá túr á sunnudaginn (virðist vera nokkuð góð spá þá), var að spá í að fara inn á Kaldadal og svo austur línuveginn, upp á Skjaldbreið og svo áfram austur að Hagavatni og Jarlhettum og svo niður á Kjalveg. Ef færð og annað leifir þá er vel athugandi að endurskoða þetta plan.
Ef einhverjir hafa áhuga á að renna þetta með mér þá er það vel athugandi, látið bara vita hér eða sendið mér einka skilaboð.

(fyrst síðasti svona þráður sem ég setti inn var "eyðilagður" þá vil ég biðja þá sem hafa þörf á að tjá sig um eitthvað ótengt þessari ferð að gera það annars staðar.)

Kv.
Doddi
Ps. Er á 38" Cherokee

Re: Sunnudagsskreppur 24/3

Posted: 23.mar 2013, 00:08
frá Haffi
Ekki það að það skipti máli, en við verðum allavega þrír á þessu svæði á morgun laugardag, fín spá..

Re: Sunnudagsskreppur 24/3

Posted: 23.mar 2013, 11:14
frá Doddi23
Það er einn búinn að hafa samband við mig en eru engir fleiri til í að skreppa aðeins á morgun?

Re: Sunnudagsskreppur 24/3

Posted: 23.mar 2013, 20:42
frá Doddi23
Hættur við vegna áhugaleysis þannig að deginum verður eytt í skúrnum í staðinn :(

Re: Sunnudagsskreppur 24/3

Posted: 23.mar 2013, 20:49
frá binni1
sælir ættlum að skreppa á 3 jeppum á skjaldbreiðina á morgun verðum á n1 mos um 10leitið ef einhverjir ættla að vera í sammfloti.

Re: Sunnudagsskreppur 24/3

Posted: 24.mar 2013, 00:25
frá Haffi
Kaldidalurinn er marauður og eins upp að jaka