Síða 1 af 1
Skjaldbreiður færi?
Posted: 16.mar 2013, 21:03
frá isak2488
Hvernig er færið þangað uppeftir? og ætla sér einhverjir að fara þangað á morgun?
Re: Skjaldbreiður færi?
Posted: 16.mar 2013, 21:57
frá hobo
Var þarna á svæðinu í dag, fór þó ekki upp á Skjaldbreið. Skelfilega lítill snjór við fjallið, mestur þó að norðanverðu.
Alveg hægt að þræða sér leið upp á topp get ég nánast fullyrt.
En færið er mjög gott, Fór upp á Ok og á Langjökul, niður hjá Slunkaríki. Bara hart og flennifæri í allar áttir.
Re: Skjaldbreiður færi?
Posted: 16.mar 2013, 22:10
frá Gunnar00
Væri gaman að taka renning þangað á morgun
Re: Skjaldbreiður færi?
Posted: 16.mar 2013, 22:34
frá hobo
Þetta er tekið áðan. Fínn snjór við Slunkaríki en mjög lítill í hrauninu neðst við Skjaldbreið. Vorum í tómu basli að komast á línuveginn.

Re: Skjaldbreiður færi?
Posted: 16.mar 2013, 22:48
frá Gunnar00
Þetta lítur nú bara ágætlega út, var þetta einhvað rosalegt basl? einhvað sem ætti að stoppa dagsferð með familíunni?
Re: Skjaldbreiður færi?
Posted: 16.mar 2013, 22:53
frá hobo
Nei það er alveg pottþétt lítið mál að fara af línuveginum á fjallið. Það var bara erfitt að finna góða leið upp á veginn af flæðunum þarna fyrir neðan.
Ég mæli með að kíkja á þetta í blíðunni á morgun.
Re: Skjaldbreiður færi?
Posted: 16.mar 2013, 23:03
frá Gunnar00
Spurning hvort maður kíkir ekki á morgun, einn á 32" Cruiser sem ég var að spá í að draga með, svona til að sína honum að það þurfi einhvað stærra í alvöru ferðir :)
Re: Skjaldbreiður færi?
Posted: 16.mar 2013, 23:14
frá Stebbi
Gunnar00 wrote:Spurning hvort maður kíkir ekki á morgun, einn á 32" Cruiser sem ég var að spá í að draga með, svona til að sína honum að það þurfi einhvað stærra í alvöru ferðir :)
Ef að færið er eins og síðustu helgi þá stendur hann grjótharður upp á toppi Skjaldbreiðs og hlær af þér fyrir að hafa eytt öllum peningnum í þessi stóru dekk þegar það var hægt að rúlla þetta á fólksbíl.
Re: Skjaldbreiður færi?
Posted: 16.mar 2013, 23:18
frá Gunnar00
Stebbi wrote:Gunnar00 wrote:Spurning hvort maður kíkir ekki á morgun, einn á 32" Cruiser sem ég var að spá í að draga með, svona til að sína honum að það þurfi einhvað stærra í alvöru ferðir :)
Ef að færið er eins og síðustu helgi þá stendur hann grjótharður upp á toppi Skjaldbreiðs og hlær af þér fyrir að hafa eytt öllum peningnum í þessi stóru dekk þegar það var hægt að rúlla þetta á fólksbíl.
haha, ég tek myndir ef af þessu verður og sjáum til hvað gerist. :)
Re: Skjaldbreiður færi?
Posted: 17.mar 2013, 09:37
frá Hfsd037
Við verðum á tveimur Hiluxum 2000 og 2008 upp á Eyjafjallajökli ef ykkur langar að kíkja þangað. 7768201