Vöð á Íslandi

Til að skipuleggja ferðir, auglýsa eftir félögum, spyrja fregna af færð og ástandi vega.
User avatar

Höfundur þráðar
Subbi
Innlegg: 282
Skráður: 05.jan 2013, 00:23
Fullt nafn: Guðmundur Hj Falk
Bíltegund: GMC Suburban

Vöð á Íslandi

Postfrá Subbi » 10.jan 2013, 04:13

er alltaf að sanka að mér uppl um vöð á Íslandi

veit einhver hvaða vað þetta er og ég vorkenni nú bílnum hann skellur ansi harkalega niður á grjótið stundum og drifkúlurnar fá að finna fyrir því


[youtube]http://youtu.be/PrzpdWnJVvk[/youtube]
Síðast breytt af Subbi þann 24.des 2013, 00:54, breytt 1 sinni samtals.


Kemst allavega þó hægt fari


Heiðar Brodda
Innlegg: 623
Skráður: 08.mar 2010, 19:59
Fullt nafn: Heiðar Steinn Broddason
Bíltegund: 4Runner '87 38''
Staðsetning: Egilsstaðir

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá Heiðar Brodda » 10.jan 2013, 09:12

þetta er flott ekkert verið að fara gætilega kv Heiðar Brodda


harnarson
Innlegg: 60
Skráður: 14.aug 2012, 23:44
Fullt nafn: Hallgrímur Arnarson
Bíltegund: Land Rover Defender

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá harnarson » 10.jan 2013, 09:38

Getur verið að þetta sé Grjótá á Hrunamannaafrétti? Maður sér umhverfið ekki nógu vel til að átti sig nógu vel á því.

Kíki stundum á þetta vaða-tal: http://www.peturs.net/gop/g_vinir/ferdi ... tm#vadatal


Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá Ofsi » 10.jan 2013, 10:33

Erfitt að sjá þetta út. Ég er nánast öruggur, eða óöruggur :-) á að þetta sé ekki Grjótá. Þó nafnið passi vel við. Ég held þó að þetta sé stutt frá. Þ.e að þetta sé vestasta vaðið á Stóru-Laxá á gömlu leiðinni (Tangaleið, línuveginum) Þar er alveg einsaklega stórgrýtt


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá lecter » 10.jan 2013, 12:59

hugsið þegar maður kemur að á og veit ekki neitt ,,,þarna getur maður bara litið i kringum sig og seð allt þetta grjót þá veit maður að þetta grjót er lika i ánni og liklega sóru steinarnir en frekar sem berast ekki burt með staumnum ,,,


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá lecter » 10.jan 2013, 13:08

viewtopic.php?f=7&t=15249&p=81212#p81212

eg veit ekki hvort þetta sé akkurat jeppinn sem maður velur i svona hálendis akstur ,, en ég verð samt að hrosa þessum ökumanni fyrir að komast þetta ,,, spurning hver hleipir svona bilum inn á hálendið sem eru ekki jeppar


lecter
Innlegg: 1010
Skráður: 02.des 2012, 02:05
Fullt nafn: Hannibal Sigurvinsson
Bíltegund: kaiser M715 44"

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá lecter » 10.jan 2013, 13:14

videoið virkar ekki en þetta er blai transporterinn sem maður sér i endan á youtube sem synir þennan landrover


harnarson
Innlegg: 60
Skráður: 14.aug 2012, 23:44
Fullt nafn: Hallgrímur Arnarson
Bíltegund: Land Rover Defender

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá harnarson » 10.jan 2013, 22:46

Ofsi wrote:Erfitt að sjá þetta út. Ég er nánast öruggur, eða óöruggur :-) á að þetta sé ekki Grjótá. Þó nafnið passi vel við. Ég held þó að þetta sé stutt frá. Þ.e að þetta sé vestasta vaðið á Stóru-Laxá á gömlu leiðinni (Tangaleið, línuveginum) Þar er alveg einsaklega stórgrýtt


Gæti passað.

User avatar

DABBI SIG
Innlegg: 306
Skráður: 01.feb 2010, 00:02
Fullt nafn: Davíð Þór Sigurðsson
Staðsetning: Garðabær
Hafa samband:

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá DABBI SIG » 10.jan 2013, 23:37

lecter wrote:http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=7&t=15249&p=81212#p81212

eg veit ekki hvort þetta sé akkurat jeppinn sem maður velur i svona hálendis akstur ,, en ég verð samt að hrosa þessum ökumanni fyrir að komast þetta ,,, spurning hver hleipir svona bilum inn á hálendið sem eru ekki jeppar


það er kannski hluta af því að okkur finnst þetta gróft og slæmt vað að þetta er Land Rover á skurðarskífum sem er að fara þarna yfir með æðislega fjöðrun hoppandi til og frá :) (nú verður allt brjálað)

En hvort þetta sé vestasta vað á Stóru Laxá er ég á báðum áttum. Fór þetta seint í sumar og vissulega er búið að breyta veginum frá því sem var áður en minnist þess ekki að aðkoman að því hafi litið svona út en þó gæti það vel verið. Vaðið þar er allaveg nokkuð gróft. Veit einhver af hverju gamli vegurinn var lagður þannig að þvera þurfti ánna tvisvar í stað þess að velja vegarstæði eins og það liggur núna, örfáum metrum ofar(norðar) og þ.a.l. sleppa við tvo ála af ánni?
-Defender 110 44"-

User avatar

Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá Freyr » 11.jan 2013, 00:24

Tek undir að þetta sé á línuveginum Háifoss - Gullfoss eins og fram hefur komið. Man ekki númer hvað í röðinni þetta vað er á Stóru Laxá. Þetta vað er á gömlu leiðinni sem var notuð áður en Dalecovod reisti nýju línuna þarna kringum 2005. Minnir samt að það hafi ekki þurft að fara þetta vað heldur hafi annað betra verið í boði aðeins neðar eða ofar.

Kv. Freyr


logimar
Innlegg: 37
Skráður: 01.feb 2010, 00:38
Fullt nafn: Logi Már Einarsson

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá logimar » 11.jan 2013, 00:31

Tek undir með Frey, fór þetta seinnipart sumars og var ekki í framdrifinu þegar ég fór þarna yfir og lenti í vandræðum í brekkunni upp úr og varð að fara út og setja í lokurnar,,,, :) L.

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá Tómas Þröstur » 11.jan 2013, 08:25

Ég er alveg að springa úr forvitni hvar þetta gæti verið. Var að skoða disk með vaðamyndum í gær sem fylgdi með bók sem Páll Ásgeir gaf út um árið og þar er vestasta vaðið öðruvísi á disknum. En það myndskeið gæti verið af nýju 2005 leiðinni sem talað er um. Hef einu sinni farið þetta - 1992 og get vitnað um að síðasta vaðið eða með þeim síðustu ef ekið er í vestur er mjöööög grýtt. Festi mig í ánni á breyttum Hilux. Eða þannig, var ekki með lokunar á því ég var að breyta bílnum á þessum tíma og var með 5,71 að aftan en orginal að framan og var lítið að nota framdrifið í þessari ferð.


Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá Ofsi » 11.jan 2013, 16:37

Leiðinn um línuveginn (sem heitir Tangaleið, Suðurlandsmenn kalla vegin einfaldlega Línu.) var breytt til þess að þurfa einungis að fara tvö vöð í stað þriggja og auk þess þægilegri vöð en voru á gamla veginum. Vestast og miðvaðið voru verstu vöðin. Vaðið við Sandver er dýpst en á besta botninum. Núverandi vað sunnan við Helgaskála er einnig á góðum malarbotni.

Við verður að fara að hafða upp á þessum útlending áður en við springum úr forvitni :-)


Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá Ofsi » 11.jan 2013, 16:44

Er búin að bera þetta saman við myndir sem ég af vöðum á Stóru Laxá, þetta er vestasta vaðið, Ofsi 10 stig :-)
PS kann ekki enn að setja inn myndir :-( hver getur sett inn myndina fyrir mig. ég er með netfangið rotta01@gmail.com er einhver bíður sig fram :-)
Viðhengi
Stóra Laxá vestasta vað 25.jpg


brell
Innlegg: 12
Skráður: 28.apr 2012, 21:00
Fullt nafn: Björgvin R. Leifsson
Bíltegund: Grand Vitara

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá brell » 09.júl 2013, 15:47

Skil ég ykkur rétt að það sé búið að færa veginn þannig að maður sé laus við tvö vestari vöðin á Stóru-Laxá? Er þetta vel merkt þannig að engin hætta sé á að villast á gömlu leiðina?
Enn fremur: Er rétt að búið sé að færa veginn við Fossá og finna betra vað ofar?


Úlfur
Innlegg: 39
Skráður: 27.okt 2011, 13:27
Fullt nafn: Haukur Eggertsson

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá Úlfur » 12.júl 2013, 10:37

Talandi um vöð. Mér skilst að ég hafi e.t.v. verið síðasti maðurinn til að fara yfir Kaldaklofskvíslina áður en að Vegagerðin "lagaði" vaðið. Allir steinarnir sem vísuðu veginn, að ofan og neðan, farnir.


Brjotur
Innlegg: 369
Skráður: 31.mar 2013, 15:39
Fullt nafn: Helgi j. Helgason
Bíltegund: Patrol

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá Brjotur » 14.júl 2013, 22:26

Ja þetta er rett hja Ofsa og þetta er fjandi storgrytt :)

User avatar

DABBI SIG
Innlegg: 306
Skráður: 01.feb 2010, 00:02
Fullt nafn: Davíð Þór Sigurðsson
Staðsetning: Garðabær
Hafa samband:

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá DABBI SIG » 14.júl 2013, 23:50

Það er búið að færa vaðið á fossá já. Það er komið ca kílómeter ofar og er því ekki lengur farið á steinklöppunum rétt neðan við fossinn eins og var gert. Nú er farið yfir breitt og nokkuð gott vað, ekkert of grýtt.

Varðandi vöðin þrjú sem eru með stuttu millibili þá minnir mig endilega þegar ég fór þarna seint í ágúst í fyrra að vestari tvö vöðin væri hægt að sleppa við, þ.e. búið að færa veginn örlítið norðan og þannig sleppa þeim. Ég get þó verið að rugla en ég að sjálfsögðu fór bæði vöðin uppá gamanið og kannaði því ekki hvort hinn vegurinn sleppti vöðunum.
-Defender 110 44"-


brell
Innlegg: 12
Skráður: 28.apr 2012, 21:00
Fullt nafn: Björgvin R. Leifsson
Bíltegund: Grand Vitara

Re: Vöð á Íslandi

Postfrá brell » 18.júl 2013, 17:51

Fór þarna uppeftir í gær að nýja vaðinu á Fossá og horfði á Patrol á 33" fara yfir. Ég er á 30" Grand Vitara og með mér var mágur minn á óbreyttum eldri Vitara. Eftir að hafa horft á Patrolinn mátum við það svo að þetta væri of stórgrýtt fyrir okkar bíla. Var gamla vaðið virkilega verra og þá hvernig?

Við ókum nú til baka og ákváðum að reyna Skáldabúðaheiði, sem ónefndur höfundur bóka um fjallaakstur segir færa öllum jeppum á sumri. Eftir að komið var upp brekkuna ofan við skálann tók við lágadrifsakstur í stórgrýti nánast alla leiðina upp á Tangaleið og er þetta varla fært minnstu jeppunum eins og slóðinn er núna.

Við fórum svo Tangaleið til vesturs. Mjög lítið var í Stóru-Laxá og búið er að færa veginn þannig að maður losnaði við tvö vestari vöðin.


Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 8 gestir