Síða 1 af 1

Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 06.des 2012, 17:46
frá kjartanbj
Jæja ,var að velta fyrir mér hvort einhver vilji kíkja einhverja dagsferð eða rúnt á laugardaginn, upp á Kaldadal tildæmis
veit að það eru einhverjir að fara einhverja ferð á sunnudaginn saman, en fyrir þá sem eru uppteknir á sunnudag væri gaman að rotta sig saman í smá dagsferð

ef einhverjir hafa áhuga þá mega þeir hinir sömu láta vita hérna á þræðinum

ætli við verðum ekki á rás 52, nema einhver í hópnum sé ekki með 4x4 rásirnar

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 07.des 2012, 09:39
frá Doddi23
Nú lítur út fyrir að það eigi að vera mun betra veður á Laugardeginum heldur en Sunnudeginum þannig að ég er nú farinn að velta fyrir mér hvort þú sért búin að ákveða eitthvað nánar hvert þú ætlar að fara?

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 07.des 2012, 14:06
frá kjartanbj
Er ekki búin að ákveða neitt, spurning hvar sé styðst að fara í einhvern snjó, Kaldadal eða nágreni við hann mögulega , bara spurning um að koma með einhverjar hugmyndir

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 07.des 2012, 14:30
frá reyktour
Ég er alveg að fýla veðrið á morgun.
spurning að sleppa sunnudagsferðinni og fara á morgun.
Hvað er númerið hjá þér Kjartan?

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 07.des 2012, 14:44
frá kjartanbj
Ætlum að hittast allavega 2 á Fitjum keflavík kl 8 í fyrramálið og stoppa á N1 í Mosfellsbæ kl 9 og kíkja á snjóalög upp á Kaldadal

öllum velkomið að koma með

um að gera að tanka bílana bara í dag, virðist vera eitthvað verðstríð í gangi hjá oliufélögunum

Megið gera grein fyrir ykkur hér að neðan þeir sem hafa áhuga á að kíkja með

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 07.des 2012, 15:28
frá reyktour
2x 80 cruiser og einn defender.

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 07.des 2012, 17:21
frá kjartanbj
fleiri sem hafa áhuga ? :)

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 07.des 2012, 20:31
frá kjartanbj
Minni á þetta

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 08.des 2012, 00:40
frá Doddi23
Sælir

Við erum mikið að velta fyrir okkur að rúlla með ykkur á morgun, en við munum ekki ákveða það endanlega fyrr en í fyrramálið (8:00).
Væri ágætt að fá símanúmer hjá einhverjum ykkar svona uppá ef okkur til dæmis mundi seinka aðeins.

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 08.des 2012, 00:43
frá kjartanbj
8477726 er nr mitt, legg af stað kl 8 í bæin frá keflavík, áætlum svo að leggja af stað um 9 leytið

stefnan sett í átt að kaldadal, mögulega svæðið í kringum Skjaldbreið líka , fer eftir því bara hvernig snjór verður þegar við komum þangað uppeftir

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 09.des 2012, 15:02
frá hobo
Hvernig fór með laugardagsferðina? Sögur, myndir?

Re: Dagsrúntur á Laugardaginn 8des

Posted: 09.des 2012, 15:22
frá Gummi Ola
Fórum á 5 bílum Kaldadal í Jaka og þaðan á jökul. Færið var þungt á jökli og snérum við til baka þegar við áttum ca. 1.5 km eftir á hábunguna.

Hér eru nokkrar myndir:
https://www.facebook.com/media/set/?set ... 254&type=3