Síða 1 af 1
Ferð um helgina 1-2.des ?
Posted: 28.nóv 2012, 21:53
frá AgnarBen
Er ekki einhverjir að fara á fjöll um helgina, laugardag fram á sunnudag sem vilja leyfa mér að fljóta með ? Er kominn með alvarleg fráhvarfseinkenni þar sem ég hef ekki farið neitt síðan síðustu helgi ;-)
Er á vel útbúnum 39,5" Cherokee XJ og er vanur.
kveðja
Agnar
agnarben@gmail.com
Re: Ferð um helgina 1-2.des ?
Posted: 30.nóv 2012, 18:05
frá firebird400
Mikið vildi ég óska þess að ég væri að fara einhvað um helgina.
Hef einmitt ekkert farið heldur síðan um síðust helgi, agalegt alveg. :D
Re: Ferð um helgina 1-2.des ?
Posted: 30.nóv 2012, 18:15
frá AgnarBen
Já þetta er agaleg pína alveg að þurfa að bíða í 5 daga á milli helgana :)
Við förum tveir einbíla út úr bænum í fyrrmálið einhverja góða leið upp í Setur og ætlum að gista þar eina nótt og svo heim á sunnudeginum með F4x4 genginu sem er þar. Ef einhver hefur áhuga á að slást í hópinn þá er það velkomið ....
Re: Ferð um helgina 1-2.des ?
Posted: 30.nóv 2012, 19:46
frá Doror
Úff hvað væri til í þetta. Þarf að koma haugnum í ferðafært stand sem fyrst greinilega.
Re: Ferð um helgina 1-2.des ?
Posted: 01.des 2012, 20:25
frá hobo
Þetta hef ég eftir Agnari:
Kominn í Setrið. Hér eru Toyotur bilaðar í bunkum, brotið drif í 90 krúser, brotinn öxull í 4Runner, framhásing hjá Samma færðist úr stað og örugglega margt fleira. Það er talað um að hér þyrfti að koma upp Toyota varahlutalager!
Gott veður og þokkaleg snjóalög, sérstaklega í kring um Setrið og suður af og norðan Kerlingarfjalla. Lítill snjór við Sóleyjarhöfða.
Re: Ferð um helgina 1-2.des ?
Posted: 01.des 2012, 20:30
frá lc80cruiser1
Var Agnar ofurölvi þegar hann sendi þessi skilaboð
Re: Ferð um helgina 1-2.des ?
Posted: 02.des 2012, 01:18
frá hobo
Það veit ég ekki, en heyrst hefur að ég sé farinn að skoða aðrar tegundir..
Re: Ferð um helgina 1-2.des ?
Posted: 02.des 2012, 13:40
frá villi58
Þetta er öruggla vitleysa, hlítur að vera Patrolar.
Re: Ferð um helgina 1-2.des ?
Posted: 03.des 2012, 17:51
frá -Hjalti-
villi58 wrote:Þetta er öruggla vitleysa, hlítur að vera Patrolar.
Kanski ekki skrítið að Toyoturnar hafi bilað því það voru einu bílarnir sem fóru upp í Setur ;)