Síða 1 af 1
Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 20.nóv 2012, 15:20
frá Doddi23
Sælir
Eru einhverjir að fara eitthvað út frá Reykjavík á laugardaginn?
Hef mikinn áhuga á að dýfa dekkjunum í einhvern snjó til að prófa nýja mótorinn sem var verið að græða í græjuna.
Kv.
Doddi
Ps. Er á 38" Cherokee og er mjög vanur.
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 20.nóv 2012, 15:25
frá AgnarBen
Hvernig vél varstu að setja í hann ?
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 20.nóv 2012, 15:34
frá Doddi23
Það er því miður bara orginal 4L mótor, hann er meira hugsaður sem bráðabirgða mótor þangað til ég hef gert gamla mótorinn upp. Var með þónokkuð sprækan tjúnaðann 4L áður sem var að skila mikklu meira en þessi.
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 20.nóv 2012, 16:15
frá reyktour
Við erum 2 að fara á sunnudaginn.
Skálpanes og eitthvað upp á jökul.
Erum búinir að fá upplýsingar frá sleðaleigunni.
Þeir gefa það út að það sé frábært færi.
spurning að fara upp að þursaborgum.
Kv. Sveinbjörn
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 20.nóv 2012, 16:23
frá Doddi23
Takk fyrir gott boð Sveinbjörn en því miður þá kemst ég ekki á sunnudaginn.
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 20.nóv 2012, 16:40
frá Seli
ég hafði hugsað mér að fara létta hálfsdagsferð inn að hlöðufelli eða svæðinu í kring á laugardaginn, það væri gaman að hafa hópinn sem stærstann ef að einhver hefur áhuga á því.
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 20.nóv 2012, 22:10
frá AgnarBen
Það er vel hugsanlegt að ég væri til í skrepp á laugardaginn ef veðrið verður þokkalegt.
kveðja
Agnar
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 21.nóv 2012, 14:16
frá Doddi23
Sælir aftur.
Agnar og/eða Seli ég mundi gjarnan vilja fara eitthvað með ykkur á laugardaginn, ég er nýlega fluttur til Rvk þannig að ég þekki nánast ekkert hér í kring og hef heldur enga til að flækjast með. Ég hef bara einusinni fyrir löngu síðan farið um svæðið við hlöðufell, lyngdalsheiðina og þar um kring.
Ps. í þetta skiptið get ég samt bara farið með einhverjum sem er með loft þar sem A/C dælan sem ég ætlaði að setja í bílinn í gær passaði ekki :(
kv.
Doddi
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 21.nóv 2012, 15:57
frá Seli
það stefnir allt í það að við förum nokkrir félagar Kaldadalinn eða þvælumst eitthvað í kringum Hlöðufellið.
Ég er með litla loftdælu með mér en hún hentar eingöngu þolinmóðum einstaklingum.
Það eru allir velkomnir að rúnta þetta með okkur, getið náð í mig í s:8651398
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 22.nóv 2012, 17:07
frá lettur
reyktour wrote:Við erum 2 að fara á sunnudaginn.
Skálpanes og eitthvað upp á jökul.
Erum búinir að fá upplýsingar frá sleðaleigunni.
Þeir gefa það út að það sé frábært færi.
spurning að fara upp að þursaborgum.
Kv. Sveinbjörn
Það væri gaman að fá að fljóta með þar sem spáin fyrir sunnudaginn er nokkuð góð.
Er á 38" Grand Cherokee.
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 23.nóv 2012, 09:31
frá Seli
Jæja, hugmyndir hjá mér og nokkrum félögum er að þvælast eitthvað í kaldadal eða í kringum hlöðufellið, öllum velkomið að koma með.
Verðum á 35-38" bílum
Hugmyndin var að leggja af stað frá shell vesturlandsvegi uppúr 7 eða svo.
Þið sem hafið áhuga á að fljóta með geta bjallað í mig í s: 8651398
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 23.nóv 2012, 16:12
frá Gummi Ola
lettur wrote:reyktour wrote:Við erum 2 að fara á sunnudaginn.
Skálpanes og eitthvað upp á jökul.
Erum búinir að fá upplýsingar frá sleðaleigunni.
Þeir gefa það út að það sé frábært færi.
spurning að fara upp að þursaborgum.
Kv. Sveinbjörn
Það væri gaman að fá að fljóta með þar sem spáin fyrir sunnudaginn er nokkuð góð.
Er á 38" Grand Cherokee.
Ég kemst mögulega á Sunnudag. Hvenær eru menn að spá í að leggja af stað?
kv. Gummi
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 24.nóv 2012, 11:28
frá lettur
Gummi Ola wrote:lettur wrote:reyktour wrote:Við erum 2 að fara á sunnudaginn.
Skálpanes og eitthvað upp á jökul.
Erum búinir að fá upplýsingar frá sleðaleigunni.
Þeir gefa það út að það sé frábært færi.
spurning að fara upp að þursaborgum.
Kv. Sveinbjörn
Það væri gaman að fá að fljóta með þar sem spáin fyrir sunnudaginn er nokkuð góð.
Er á 38" Grand Cherokee.
Ég kemst mögulega á Sunnudag. Hvenær eru menn að spá í að leggja af stað?
kv. Gummi
Hafðu bara samband við Sveinbjörn "fararstjórann" 8453739. Það eru allir velkomnir með.
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 24.nóv 2012, 19:37
frá brynjarberg
Fóru eithverjir eithvað í dag hér á suðvestur horninu og eru með eithverjar fréttir af snjó???
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 24.nóv 2012, 21:13
frá hobo
Skrapp í dag með tveimur öðrum bílum.
Það er sáralítill snjór í Kaldadal, eiginlega ekki hægt að fara af slóða, en það er meiri snjór við Hlöðufell og þar í kring og hægt að leika sér aðeins.
Það þarf samt að snjóa svolítið meira..
Hér eru myndir:
Myndaalbúm á f4x4
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 24.nóv 2012, 22:04
frá brynjarberg
Takk fyrir þetta, við ætlum að kikja þarna uppeftir á morgunn.
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 25.nóv 2012, 17:43
frá hobo
Endilega sýna okkur myndir!
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 28.nóv 2012, 07:16
frá firebird400
Þetta var svo gaman þarna á sunnudaginn, enda fyrsta almennilega snjóferðið á land rovernum mínum. Veðrið var eðal en færið þungt.
Ég á smávegis af myndum, skal setja þær inn þegar ég er búinn að koma þeim á tölvuna.
Takk fyrir mig.
Agnar og gamli Rauðmaginn
Re: Ferð á laugardaginn 24 Nóvember?
Posted: 28.nóv 2012, 22:49
frá Gummi Ola