Síða 1 af 1

Helgin 27-28 október 2012

Posted: 26.okt 2012, 13:52
frá kjartanbj
Jæja , var að velta því fyrir mér hvort einhverijr hér hefðu áhuga á að kíkja einhvern dagstúr um helgina að skoða aðstæður einhverstaðar

datt bara í hug að það væri kannski gaman að kíkja eitthvað annan hvorn daginn , kíkja eitthvað upp á hálendi og skoða aðstæður og hvort mætti finna einhvern snjó einhverstaðar


endilega ef einhver hefur áhuga þá má hann gefa sig fram


hef enga hugmynd um hvert væri hægt að fara eða neitt, ætla hafa þetta voða casual eitthvað, menn geta bara komið með uppástungur

Re: Helgin 27-28 október 2012

Posted: 26.okt 2012, 14:34
frá AgnarBen
Ef einhver er að leita að smá snjó þá fann ég doldið af honum síðustu helgi í Reykjadölum og á Pokahryggjum. EFST á Pokahryggjum var kominn ágæt frosin snjóskel og hægt að bruna í 8 pundum út um allt :) Vil þó biðja menn að fara varlega, það er ennþá mjög lítill snjór á svæðinu og smá þýða myndi gjörbreyta aðstæðum ! Það var lítill sem enginn snjór niðri við Dalakofann, bara snjóföl og á Landmannaleið var ekki snjóarða.

Reykjadalir
Image

Pokahryggir
Image

Séð ofan af Pokahryggjum niður í átt að Landmannaleið
Image

Séð ofan af Pokahryggjum niður í átt að Landmannaleið, Löðmundur í baksýn
Image

Re: Helgin 27-28 október 2012

Posted: 26.okt 2012, 15:30
frá frikki
vertu í bandi
820 8801

Re: Helgin 27-28 október 2012

Posted: 27.okt 2012, 10:28
frá kjartanbj
búið að breytast bara í rigningu og leiðindaveður