Síða 1 af 2

Nú verður farið í ferð

Posted: 26.aug 2012, 20:41
frá Árni Braga
Erum að spá í ferð helgina 7-9 sept
staðir og stundir eru ekki komnar á planið.
En þetta á að vera góð ferð með góðum mönnum
þeir sem vilja vera með sendi mér póst eða spjalla hér.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 26.aug 2012, 21:10
frá hobo
Ég er kominn í startholurnar, og bíð spenntur eftir ferðaáætlun.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 26.aug 2012, 22:24
frá Árni Braga
Gaman að fá þig með vinur..

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 26.aug 2012, 22:28
frá kjartanbj
ansri hræddur um að þetta verði vinnuhelgi hjá mér

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 26.aug 2012, 22:29
frá Oskar K
kjartanbj wrote:ansri hræddur um að þetta verði vinnuhelgi hjá mér


ég skal tilkeyra pajero

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 27.aug 2012, 22:13
frá kjartanbj
komið vaktaplan hjá mér, frí laug og sun þessa helgi, svo er bara spurning hvert menn vilja fara

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 28.aug 2012, 06:30
frá Árni Braga
Var að spá í hring í kringum Hofsjökul.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 28.aug 2012, 07:47
frá kjartanbj
ég er til í alla vitleysu :) hringur í kringum hofsjökul hljómar spennandi :)

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 28.aug 2012, 14:47
frá kjartanbj
Það verður kannski hægt að komast í snjó ;)

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 28.aug 2012, 15:08
frá Óskar - Einfari
kjartanbj wrote:ég er til í alla vitleysu :) hringur í kringum hofsjökul hljómar spennandi :)



Því miður þá er sprengisandur ófær.... þið verðið bara að hanga heima og bóna.....

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 28.aug 2012, 15:14
frá kjartanbj
Hahahahaha, Já verðum þá bara að vera heima :-/

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 28.aug 2012, 17:10
frá Árni Braga
assskoti allt á kafi í snjó.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 28.aug 2012, 17:35
frá kjartanbj
Já, það skemmir náttúrulega allt fyrir okkur

En Hvað segirðu, setja upp eitthvað ferða plan? :)

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 01.sep 2012, 21:02
frá hobo
Hvað er að frétta hér, er komin einhver áætlun?

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 01.sep 2012, 21:14
frá kjartanbj
ég var einmitt að senda árna skilaboð áðan hvort það ætti ekki að fara ákveða eitthvað, ég er allavega alveg heitur fyrir þessari ferð
örugglega gaman að kíkja þetta, var ófært þegar við ætluðum þetta um daginn sem hluta af stóru ferðinni sem við fórum í , enda engir smá vatnavextir þá helgina á öllu hálendinu

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 03.sep 2012, 06:24
frá Árni Braga
Ég er klár í að fara þennan hring,

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 03.sep 2012, 08:43
frá -Hjalti-
Árni Braga wrote:Ég er klár í að fara þennan hring,


Komdu nú með nákvæmara ferðaplan Árni :) hvaða leiðir ætlaru að fara og hvar ætlar þú þér að gista ? eða ertu að spá að keyra þetta í einum rikk ?

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 03.sep 2012, 17:01
frá hobo
Ég verð á hliðarlínunni þangað til veðurspáin er örugg. Nenni ekki að keyra þetta nema veðrið verði skaplegt.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 03.sep 2012, 18:26
frá Árni Braga
Jæja er búin að vera tala við menn um leiðarval.

ég sting upp á að fara á föstudeigi inn í Gíslaskála
og á laugardeigi í laugafell.síðan heim á sunnudeigi .
þetta er held ég bara ágætis plan.
þið meigið koma með hugmyndir ef að þetta hentar ekki.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 04.sep 2012, 15:09
frá kjartanbj
Veðurspá aðeins búin að skána síðan ég skoðaði hanaí gær, minni rigning, helst hægt að eiga von á smá snjókomu
en hver hefur svosem látið það stoppa sig

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 04.sep 2012, 18:27
frá Árni Braga

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 04.sep 2012, 23:05
frá -Hjalti-
Ég er "game"

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 06:04
frá Árni Braga
Flottur.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 09:12
frá kjartanbj
ég er Game :) og verð með kóara , verðum að hitta ykkur bara í skála á föstudagskvöldið, vinna hjá mér á föstudaginn

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 15:08
frá kjartanbj
Spurning um að ákveða tíma sem verður lagt af stað á , þó það líti út fyrir að ég leggi af stað eitthvað seinna en þið mögulega

en þeir sem ætla fara eru þá

Árni Braga
Hjalti
Kjartan
Hörður?

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 16:54
frá hobo
Ég er ennþá á hliðarlínunni.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 18:12
frá Ofsi
Verður greinilega spennandi. Mæli með að þið þræðið ykkur niður með Hofsjökli að austanverðu og akið svo yfir á stíflunni. Það eru ekki svo margir sem hafa gert það. Ferðakveðjur Ofsi

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 18:13
frá Árni Braga
bíð enn eftir svari með gistinguna. kemur á eftir.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 18:15
frá kjartanbj
ok flott :)

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 18:24
frá Árni Braga
Var að fá svar Gíslaskáli er ekki laus en Árbúðir er laus.
ég panta þar fyrir okkur.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 19:12
frá kjartanbj
ok :)

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 22:42
frá kjartanbj
Hefur virkilega engir annar jeppamaður hérna áhuga á ferðinni? allir búnir að vera voða latir með að ferðast í sumar

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 22:52
frá vidart
Væri til í að koma með en grunar að 35" dekk sé ekki nóg til að fylgja ykkur

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 05.sep 2012, 23:03
frá kjartanbj
Líklega ekki á þessari leið :) en það hljóta vera einhverjir hérna á 38+

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 06.sep 2012, 11:24
frá frikki
Eg er að fara helgina eftir þ.e.a.s 14-15-16 sept á svipaðar slóðir

kkv
F.H

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 06.sep 2012, 17:02
frá hobo
Ég kem ekki með.

En ég óska í staðinn eftir ferðafélaga/félögum, fyrstu helgina í október.
Stefnan er að fara til Akureyrar yfir Sprengisand, jafnvel leggja af stað á fimmtudagskvöldi í Hrauneyjar.

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 06.sep 2012, 17:46
frá Árni Braga
Var að fá fréttir að Blanda sé með öllu ÓFÆR og ekki ráðlagt að vera á þessu svæði
þannig að ?????????????????

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 06.sep 2012, 18:24
frá kjartanbj
Ég er opinn fyrir öllu, hlýtur að vera hægt að fara eitthvað annað í staðinn bara, nóg að skoða svosem á hálendinu, skilst að Hjalti sé með einhverja hugmynd í kollinum

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 06.sep 2012, 22:17
frá -Hjalti-
vidart wrote:Væri til í að koma með en grunar að 35" dekk sé ekki nóg til að fylgja ykkur


góði besti , 35" er alveg fínt ;)
Ég er með hugmynd sem ég er búin að leggja fyrir nefnd. Bíður bara samþykkis :)

Re: Nú verður farið í ferð

Posted: 07.sep 2012, 12:28
frá kjartanbj
Jæja einhverjar fréttir?