Síða 1 af 1
Skroppið í Landmannalaugar
Posted: 02.aug 2012, 09:48
frá hobo
Fór á mánudaginn í Landmannalaugar í geggjuðu ferðaveðri.
Gjáin

Landmannahellir

Dómadalsvatn

Landmannalaugar


Ljótipollur

Ljótipollur

Við Hófsvað

Nyrst á Sigölduleið, horft suðureftir línuveginum

Re: Skroppið í Landmannalaugar
Posted: 02.aug 2012, 22:58
frá -Hjalti-
Gaman af þessum myndum , En mikið djöfull eru nágrenni skálana í Landmannalaugum fráhrindandi á sumrinn, allt stútfullt af útlendingum. Held að það sé skarra að vera þarna á veturna með fullum íslendingum.
Re: Skroppið í Landmannalaugar
Posted: 03.aug 2012, 09:15
frá hobo
Já þetta er eins og á útihátíð, frekar fráhrindandi. En maður reynir bara að horfa frekar í kring um sig og upp til fjalla :)
Re: Skroppið í Landmannalaugar
Posted: 03.aug 2012, 13:26
frá kjartanbj
ástæðan fyrir að maður gisti bara í Landmannahelli um daginn :) datt ekki í hug að sofa á grjótinu í landmannalaugum með hundruði útlendinga allt í kring , mikið rólegra og betra í hellinum
Re: Skroppið í Landmannalaugar
Posted: 03.aug 2012, 13:57
frá vidart
Ég var í Landmannalaugum fyrir tveimur vikum síðan og ég verð að segja að það er ekkert ónæði af útlendingunum. Það er meira ónæði af syngjandi og fullum Íslendingum. Útlendingarnir fara snemma að sofa og vakna snemma, kannski er það sem fer í taugarnar á Íslendingunum að geta ekki sofið út í þynnkunni.
Re: Skroppið í Landmannalaugar
Posted: 07.aug 2012, 00:02
frá Óvinurinn
ekkert ónæði af dönnuðum og kurteisum erlendum ferðamönnum sem eru farnir í háttin fyrir 23 á kvöldin. Hinsvegar er það fjölmennið sem engu að síður getur virkað fráhrindandi vissulega í samanburði við fámennið að vetri til.....
svo er gríðarlega fínt að planta sér bara í skálana inni við landmannahelli líka.. stórfínt alveg
Re: Skroppið í Landmannalaugar
Posted: 07.aug 2012, 01:24
frá -Hjalti-
Óvinurinn wrote:ekkert ónæði af dönnuðum og kurteisum erlendum ferðamönnum sem eru farnir í háttin fyrir 23 á kvöldin. Hinsvegar er það fjölmennið sem engu að síður getur virkað fráhrindandi vissulega í samanburði við fámennið að vetri til.....
svo er gríðarlega fínt að planta sér bara í skálana inni við landmannahelli líka.. stórfínt alveg
Akkurat það sem ég ætlaði að segja. Mér er nokkuð sama þó það heyrist í fólki eitthvað framm á nótt. Það er bara þetta fjölmenni sem er virkilega fráhrindandi.
Re: Skroppið í Landmannalaugar
Posted: 07.aug 2012, 08:46
frá Tómas Þröstur
-Hjalti- wrote:Óvinurinn wrote:ekkert ónæði af dönnuðum og kurteisum erlendum ferðamönnum sem eru farnir í háttin fyrir 23 á kvöldin. Hinsvegar er það fjölmennið sem engu að síður getur virkað fráhrindandi vissulega í samanburði við fámennið að vetri til.....
svo er gríðarlega fínt að planta sér bara í skálana inni við landmannahelli líka.. stórfínt alveg
Akkurat það sem ég ætlaði að segja. Mér er nokkuð sama þó það heyrist í fólki eitthvað framm á nótt. Það er bara þetta fjölmenni sem er virkilega fráhrindandi.
Well- var í tjaldi í Dreka nýlega. Þar voru allir komnir á fætur hjá einum hóp útlendinga klukkan sex að morgni og það með íslenskum fararstjóra - alveg frábært.....