Síða 1 af 1
					
				Landmannalaugar og nágrenni
				Posted: 04.feb 2010, 11:27
				frá Garpur
				Daginn, hefur einhver verið á ferðinni þarna? Okkur langar nokkrum í bíltúr um helgina og erum á lítið breyttum bílum, ef einhver veit um færðina þarna þá má endilega pósta því hérna inn,
Kv
Alli
			 
			
					
				Re: Landmannalaugar og nágrenni
				Posted: 04.feb 2010, 12:48
				frá Járni
				Ég var þarna fyrir um mánuði, enginn snjór og ekkert vesen. Efast um að það hafi breyst
			 
			
					
				Re: Landmannalaugar og nágrenni
				Posted: 04.feb 2010, 13:04
				frá pardusinn
				Það er ekki góð hugmuynd að fara á lítið breyttum bílum inn í Landmannalaugar á þessum tíma.
Eitthvað gerir frostið undanfarið kannaski færið betra en um nýliðna helgi var engöngu fært fyrir meira breytta bíla.
Bendi á myndaalbúm á þessari síðu svo menn geti kannski áttað sig betur á aðstæðum.
http://sersveitin.123.is/album/default.aspx?aid=169996 
			
					
				Re: Landmannalaugar og nágrenni
				Posted: 04.feb 2010, 15:38
				frá Járni
				Já, eitthvað er þetta búið að breytast. Það var allt gaddfreðið þarna þegar ég fór.
			 
			
					
				Re: Landmannalaugar og nágrenni
				Posted: 04.feb 2010, 15:42
				frá EinarR
				Þegar við vorum þarna í byrjun janúar voru það árnar sem skiptu því hvort hægt væri að fara á Subaru Justy. Getur ekki hafað bæst snjó allavega en það gæti verið hálka
			 
			
					
				Re: Landmannalaugar og nágrenni
				Posted: 04.feb 2010, 18:31
				frá Brjótur
				Hvenær eru þessar myndir teknar af sérsveitinni? 
kveðja Helgi
			 
			
					
				Re: Landmannalaugar og nágrenni
				Posted: 04.feb 2010, 18:37
				frá pardusinn
				Þriðjudaginn 26 Janúar s.l.
			 
			
					
				Re: Landmannalaugar og nágrenni
				Posted: 04.feb 2010, 20:16
				frá Brjótur
				Jæja það hefur þá aðeins breyst síðan ég var þarna ca 10 jan þá hef ég áreiðanlega keyrt 20  km í 30 til 50 cm djúpu vatni
það var hálfgerð sigling:) við verðum að lifa í voninni að veturinn sé ekki búinn.
kveðja Helgi
			 
			
					
				Re: Landmannalaugar og nágrenni
				Posted: 04.feb 2010, 22:23
				frá Garpur
				.....takk fyrir þessar upplýsingar drengir, þetta getur ekki verið spennandi færi ef það er svo allt orðið gaddfreðið......ekki ef maður ætlar í léttann rúnt!!!
Kv.
Alli