Síða 1 af 1
Eyjafjallajökull
Posted: 04.maí 2012, 12:46
frá Járni
Er einhver á leið þangað á sunnudeginum 6. mai?
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 04.maí 2012, 15:12
frá ivar
Ég var s.s. ekki á leiðinni þangað, en það getur alveg komið til greina að kíkja með ef þig vantar ferðafélaga uppá öryggið.
Ég er ágætis akkeri og með öflugt spil :)
Ívar
844-2887
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 04.maí 2012, 21:33
frá Járni
Jæja, stefnan er tekin á Eyjafjallajökul á sunnudaginn. Veðrið á að vera algjört æði, æði.
Ef fleiri vilja slást í för eða ætla að vera þarna á svæðinu er síminn hjá mér 848-9958 og síminn hjá Ívari er hér fyrir ofan.
Ég er á Patrol og Ívar á Ford 350
Kv, Árni
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 05.maí 2012, 12:41
frá gislisveri
Brottför er plönuð á N1 Selfossi kl 8:00.
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 05.maí 2012, 15:01
frá bjornod
Hvar ætlið þið upp?
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 05.maí 2012, 16:44
frá Járni
Hamragilsheiði, það er víst lokað hjá Skógum.
Einnig gæti tímasetningin sem Gísli Sverris nefnir hér að ofan færst eitthvað örlítið aftar.
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 05.maí 2012, 17:02
frá gislisveri
Járni wrote:Hamragilsheiði, það er víst lokað hjá Skógum.
Einnig gæti tímasetningin sem Gísli Sverris nefnir hér að ofan færst eitthvað örlítið aftar.
Hamragarðsheiði mun það vera.
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 05.maí 2012, 17:07
frá Magni
Veit einhver hvernig færið er?
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 05.maí 2012, 18:22
frá hobo
gislisveri wrote:Járni wrote:Hamragilsheiði, það er víst lokað hjá Skógum.
Einnig gæti tímasetningin sem Gísli Sverris nefnir hér að ofan færst eitthvað örlítið aftar.
Hamragarðsheiði mun það vera.
Ehheemm, Hamragarðaheiði til að vera nákvæmur :)
Þetta verður flott ferð hjá ykkur, veðrurspáin gæti ekki verið flottari.
Hef ekki farið þetta, en það koma dagar eftir morgundaginn fyrir mig.
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 05.maí 2012, 19:02
frá Magnús Ingi
mér skilst að það sé alveg renni færi upp á topp:)
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 05.maí 2012, 19:13
frá Járni
Jújú, jájá, rétt skal vera rétt.
En ku víst allt vera æðislegt á allan máta, svo endilega hafið samband ef þið viljið fljóta með eða láta vita að þið verðið á svæðinu.
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 05.maí 2012, 22:49
frá AgnarBen
sælir
Ég stefni á Eyjafjallajökul á morgun, verð einbíla og fæ kannski að vera í samfloti með ykkur, læt heyra í mér í fyrramálið. Ég stefni á að fara úr Rvk rétt fyrir kl. 8.
kveðja
Agnar
893 0557
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 06.maí 2012, 16:25
frá AgnarBen
Takk fyrir fínan skottúr strákar.
Þetta kallar maður "quick´n dirty" - fórum úr bænum klukkan 8, komnir upp á topp kl. 11 og kominn aftur heim klukkan þrjú. Aðgengið að jöklinum er ennþá þokkalegt ofan af Hamragarðaheiðinni, færið var frábært um morguninn enda hafði frosið um nóttina og fór ég upp í 6 pundum og var maður á köflum á meira en 60 km/klst á leiðinni upp :) Það var komin talsverð sólbráð um hádegið og færið aðeins þyngst neðst í brekkunum.



Re: Eyjafjallajökull
Posted: 06.maí 2012, 16:42
frá Járni
Jú, þetta var alveg ljómandi!
Læt hér fylgja eina mynd með.

Re: Eyjafjallajökull
Posted: 06.maí 2012, 21:35
frá lc80cruiser1
Voruð þið einir á ferð á jöklinum
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 06.maí 2012, 22:05
frá jeepson
Flottir.
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 06.maí 2012, 22:07
frá Járni
Það hafa verið um 10-15 bílar þarna, með okkur talið.
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 06.maí 2012, 22:34
frá icewolf
""big like""
Re: Eyjafjallajökull
Posted: 06.maí 2012, 23:30
frá -Hjalti-
Greinilegt að þið hafið fengið Flott veður